Morgunblaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 1
48 SIÐUR MEÐ 4 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 274. tbl. 64 árg. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Luciana Pulk sem komst at úr fiugslysinu vid Madeira á sunnudags- kvöldió er hér borin inn á sjúkrahús í Funchal. Hún og maður hennar Justine Pulk voru í brúðkaupsferð og hugðust dvelja á Madeira unc jólin. J ólafundur og Begin í Gagnrýni á tillögur Begins í ísrael Tel Aviv, Kairó, New Vork, Moskvu, 1 9. des AP Reuter. MENACHEM Begin, forsæt- isráðherra ísraels, og Anwar Sadat Egyptalandsforseti hittast á jóíadag í egypsku borginni Ismailia við Súez- skurð til að ræða tillögudrög þau sem Begin hefur kynnt Carter Bandaríkjaforseta. Begin sagði í dag að Carter hefði talið tillögurnar „sann- gjarnar" og hann hefði ekki trú á því að Sadat myndi hafna þeim. Tillögurnar fela í sér sjálfstjórn fyrir Palestinu Araba á Vesturbakka Jórdan- ár og Gazasvæðinu og ..jafnan rétt til búsetu fyrir Gyðinga á Vesturbakkan- um og fyrir Palestínumenn i israel Begin sagði að hinir helgu staðir Jerú- salem borgar yrðu settir undir stjórn helztu trúarhópanna þar en borgin yrði áfram höfuðborg ísraelsrikis Gagnrýni kom samstundis fram á tillögur Begins bæði frá samherjum hans og stjórnarandstöðunni Yitzak Rabin, fyrrverandi forsætisráðherra, gagnrýndi þær mjög i viðtali við isra- elska útvarpið og hann sagði að þær fælu i sér alltof mikla sjálfsstjórn til handa Aröbum á Vesturbakkanum Hann sagði að tillögurnar kynnu að hafa þær afleiðingar að eins konar þriðja riki yrði milli Jórdans og ísraels og það gæti orðið uppspretta erfiðleika fyrir alla aðila Rabin sagði að ísraelar ættu að halda sér við fyrri tillögur sínar til lausnar málinu. þ e að leysa mál Vest- urbakkans með þvi að skipta honum Myrtu útsendar- ar PLO Holden? Lomlon, líl. «los. Al*. Roulor. BREZKA blaóið Sunday Mirror sagói í forsíóufrétt í gær aó út- scndarar Palestínumanna hefóu myrt blaóamanninn David Ilolden í Kairó á dögunum. Astæóan hafi veriö sú aó nokkrir PLO-skærulióar liafi verió í flug- vélinni frá Amman til Kairó sem Holden var meö. Hal i Holden bor- iö kennsl á aö minnsta kosti einn mannanna, leiðtoga hópsins og sá hafi einnig þekkt Holden, og Itafi örlög Holdens þar meö verió ráö- in. 'Framhald á bls. 30. Arabar neikvæðir: Tillaga Begins fel- ur ekkert nýtt í sér Jerúsalem, Beirút, Trípólí, Damascus, Kairó, Bahrain, Vín, S.Þ., 1 9 desember. AP — Reuter FLESTAR Arabaþjóðir lýstu i dag óánægju sinni með tillogur Mena chens Begins forsætisráðherra ísra- els. en þær gerði hann kunnar eftir viðræður sinar við Jimmy Carter Bandarikjaforseta. í þeim viðbrögð- um sem fram hafa komið i Araha löndum er andi tillagna Begins oftast sagður sá að styrkja að eilifu hald Gyðinga á lendum Araba og gera að engu hugsanlegt riki Palestinufólks. Þá er jafnvel sagt að tillögur Begins séu afturför miðað við ályktanir og vilja Sameinuðu þjóðanna. Hafez Assad forseti Sýrlands sagðist í dag efins um að sérstakur friður á milli ísraels og Egyptalands gæti kom- ið í veg fyrir að Egyptar tækju þátt i striði við ísrael. kæmi til nýrra deilna Hann sagði að drægi til nýs stríðs við ísrael mundu allir Arabar, jafnvel Egyptar, standa saman og gæti ekkert pappirsgagn breytt þvi Palestinumenn sem búa á vestur- bakka Jórdan og Gaza svæðinu sögð- ust andvigir tillögum Begins um sjálfs- forræði þeirra, og kröfðust þess að ísraelsmenn drægju heri sina til baka af svæðunum ..Tillögur Begins eru núll og nix hvað okkur varðar Það er Ijóst að kappsmál okkar er að setja á stofn sjálfstætt riki Palestinumanna á okkar heimaslóðum, en tillögur Begins gera ráð fyrir þvi að við verðum máðir út,” sagði Majed Abu Sharar, upplýsingamálafulltrúi Frelsishers Palestinumanna í viðbrögðum Frelsissamtaka Palestinumanna PLO kom fram að samtökin munu beita „öllum möguleg- um ráðum” til að koma í veg fyrir að tillögur Begins nái fram að ganga. og voru tillögurnar kallaðar fráleit og fár- ánleg vitleysa. Lýbiska fréttastofan Jana skýrði frá að talsmaður utanrikisráðuneytisins i Tripóli hefði sagt að tillögur Begins væru skref afturábak og markmið þeirra væri að viðhalda hernámi Israela á lendum Araba. „Tillögurnar bjóða ekki uppá neitt nýtt Þær afmá rétt Palestínumanna til sjálfsforræðis og endurreisnar ríkis síns, og gera ráð fyrir Jerúsalem sem israelskri borg að eilifu Óvinir okkar í ísrael hefðu getað lýst yfir þessum tillögum sinum ein- hliða, en með klækjum ætla þeir að reyna að fá Araba til að fallast á og undirrita hugmyndir sínar,” sagði tals- maður utanrikisráðuneytisins i Tripóli ennfremur I Jórdaniu sagði Adnan Abu Odeh upplýsingafulltrúi landsms að tillögur Begins væru jafngildar tilraunum til að koma skipulagi á hernám Israela á Abaralendum i stað þess að binda endi á það Hussein konungur hefur ekkert látið frá sér fara um tillögur Begins, en Franihald á bls. 28. Tvö bankarán framin í V-Þýzkalandi: Ræningjar höfðu á brott með sér 3,6 millj. marka Vfstur-Berlín. 19. drs. Rrutrr. BANKARÆNINGJAR höfðu á braut moð sér um það bil tvær milljónir með Sadat Ismailia milli ísraels og Jórdaniu eða leyfa þar takmarkaða heimastjórn undir eftirliti ísraela. Fram til þessa hefur Verka- mannaflokkur Rabins jafnan gagnrýnt Begin fyrir ósveigjanleika gagnvart Aröbum og þykir þvi koma úr hörðustu átt gagnrýni Verkamannaflokksins á þessar tillögur, sem ganga langtum lengra en hugmyndir Rabins og flokks- manna hans. Einn þingmanna Likud- flokks Begins, Moshe Shamir, gagn- rýndi og tillögurnar og sagði að þær fælu i sér svo miklar tilslakanir að þær Framhald á bls. 28. þýzkra marka í dag í vopnuðu ráni. Ræningjarn- ir drápu gjaldkt'ra bankans er hann neitaði að afhenda þeim féð og skutu þeir hann í hjartastað svo að hann lézt samstundis. Ræningjarnir voru þrír og allir með grímur. Sá fjórði beið í i)íl fyrir utan og kom- ust þeir síðan undan. Nokkru síóar var framið annaó rán í banka ekki ýkja langt fra. Er álitiö aö þar hafi sömu menn ver- iö aó verki. Þar höfðu ræningjarnir 1,6 millj. marka upp úr krafsinu. Lögregla leitar nú ræningjanna. en t)ifreið þeirra fannst mannlaus siödegis. Alls er því fengurinn jafnv. á 4. milljarð isl. króna. Flugslysið við Madeira: „Við höfðum aðeins nokkrar sekúndur til að bjarga okkur út” Funchal, Madeira 19 des AP „VIÐ HÖFÐUM ekki nema nokkr- ar sekúndur til að bjarga okkur út úr vélinni, eftir að hún hafði hrap- að i sjóinn," sögðu ýmsir þeir sem komust af úr flugslysinu við Funchal á Madeira á sunnudags- kvöldið. Sumir farþeganna sögðust hafa reynt að hjálpa öðrum að festa á sig björgunar- beltin, en stundum hefði það ekki tekizt og þeir hefðu orðið að horfa á fólkið farast til að bjarga sjálfum sér. „Við börðumst við að komast út úr vélinni og vatnið fossaði inn. Margir voru fastir i sætum sinum. Það var gripið i mig þegar ég var að reyna að komast út . Ég varð að beita öllu afli til að losa mig Það siðasta sem ég sá voru uppréttar hendur þeirra sem fastir voru i sæt- um sinum — i bón um hjálp En ég gat ekkert gert. Ég hefði ekki bjarg- að þeim og ekki bjargast sjálfur,” sagði Jacob Wetli, hálfþritugur kaupsýslumaður frá Ruschlikon skammt frá Zúrich Og Wetli hélt áfram Vatnið var kalt og það var niðamyrkur Ég sá Ijósin i Funchal og skildi ekki hvers vegna enginn kom Ég sá fólk á sundi rétt hjá mér Eftir klukkutima tók að draga af þvi og það hrópaði á hjálp Ég sá fólk sökkva og ég dró einn upp en hann var dáinn ” Lisanne Richard miðaldra kona frá Genf komst lifs út úr vélinni ásamt eiginmanni sinum, Albert Richard Hún sagði að töluvert af oliu hefði runnið i sjóinn og maður hennar sem væri ekki syndur hefði gleypt oliu og lézt hann siðar um nóttina á sjúkrahúsi i Funchal Marcus Merli 16 ára piltur sagði „Tiu eða fimm minútum áður var vélin hátt á lofti. Skyndilega hrapaði hún i sjó niður Ég hélt þetta væri martröð Fólkið hrópaði allt i kring- um mig. Vatnið fossaði inn á nokkr- um sekúndum Móðir min Irene gat ekki losað sig Ég er hræddur um að hún sé dáin Ég gat sjálfur losað mig strax Ég gat ekki hjálpað henni þvi að ég var að kafna Faðir minn komst út en hann er ósyndur Ég er Framhald á bls. 28.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.