Morgunblaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977 39 hafi á þeim árum oft gefið þeim sem minna máttu sin og lítið höfðu. Greiðvikni hennar jókst svo eftir þvi sem efnahagurinn varð meiri og niunu margir minn- ast höfðingsskapar hennar í þeim efnum. Heimili hennar var hlý- legt og vistlegt og mátti þar á margan hátt eygja persónuleika hennar. Ekki alls fyrir löngu fór hún að hafa orð á því, að hún þyrfti að fara að koma jólagjöfunum frá sér, þvi hana hefði dreymt fyrir því, að hún ætti ekki langt eftir. Búið var að ganga frá þessum gjöfum svo og öðrum gjöfum, þeg- ar hún lézt. Hún var ekki í rónni fyrr. 1 stórri fjölskyldu er alltaf eitt- hvað að gerast. Hún mundi öll afmæli, unga fólkið giftir sig og börn fæðast. Þessu fylgdist hún öllu með og gaf viðeigandi gjafir. 90 eru afkomendur hennar og af þeim 82 á lífi. Tengdamóðir mín var elskuleg kona. Um hana og hennar lífshlaup mætti skrifa athyglisverða sögu. A sínum yngri árum starfaði hún í Kvenfé- lagi Bessastaðahrepps og var hún ein af stofnendum þess. Hún var gerð að heiðursfélaga fyrir all- mörgum árum. Aðal vettvangur hennar var þó innan veggja heim- ilisins. Hún lifði og hrærðist fyrir sína nánustu og allir sem henni kynntust, þótti vænt um hana. Auðbjörg var iðjusöm kona. Hin síðari ár gerði hún mikið af því að prjóna og nutu barnabörnin og barnabarnabörnin þess, svo og hinir fullorðnu. Hver sokkur og hver vettlingur báru vott um vandvirkni hennar. Allt sem hún gerði, var í kærleika gjört. Þegar umsvif minnkuðu gaf hún sér tíma til lesturs góðra bóka, sér til fróðleiks og skemmtunar. Barnabörn, makar þeirra og barnabarnabörn, sem eru í Svi- þjóð, Danmörku, Englandi og Ameríku við nám og störf, senda saknaðar og þakkar kveðjur úr fjarlægð og harma það, að geta ekki fylgt henni síðasta spölinn. Ekkert hefði verið tengdamóð- ur minni meira fjarri skapi, en það, að hlaðið væri á hana oflofi. Því er ekki til að dreifa í þessari grein, en mörgu væri hægt við að bæta er lýsti mannkostum henn- ar. Við í fjölskyldunni eigum henni svo óendanlega mikið að þakka. Við minnumst þeirra hjóna með ást og virðingu. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Margrét Sveinsdóttir. Hinn 14. þessa mánaðar andað- ist á St. Jösepsspítala í Hafnar- firði Auðbjörg Jönsdóttir. Hún var fædd 5. maí 1888. Foreldrar hennar voru Guðný Sveinsdóttir frá Skarðshlíð undir Eyjafjöllum og Jón Sigurðsson frá Skálmarbæ í Alftaveri. Hún fluttist hingað í Bessa- staðahrepp árið 1908 ásamt eigin- manni sínum, Klemensi Jónssyni kennara og síðar skólastjóra hér við Bjarnastaðaskóla. Klemens var oddviti hreppsins um áratugi og gegndi auk þess ýmsum trún- aðarstörfum fyrir sveit sina allt þar til hann lézt árið 1955. Þeim hjónum varð 10 barna gioi.aou/' pB .jgBn onav wfn -tujen auðið. Þau eru: Jón, bátsmaður, kvæntur Soffiu Lárusdóttir, hann drukknaði af Tryggva gamla 1936, Eggert, skipstjóri, kvæntur Lilju Óskarsdóttur, Guðjón, lækn- ir, kvæntur Margréti Hallgrims- dóttur, Guðný, gift Gunnlaugi Halldórssyni arkitekt, Sveinbjörn vélstjóri, kvæntur Margréti Sveinsdóttur, Sigurfinnur bóndi, ókvæntur, Gunnar stýrimaður, drukknaði af Sviða 1941, kvæntur Fanneyju Vilhelmsdóttur, Guð- laug, gift Gunnari Kristjánssyni teiknara, Sveinn iðnverkamaður, kvæntur Asu Sigurðardóttur, Sig- urður múrari kvæntur Sigurrós Grimsdóttur. Það hefur því verið mikið og margþætt starf, sem móðir og hús- freyja hefur orðið að inna af hendi á þeim tima, þegar efni voru lítil og nútíma þægindi óþekkt. Þá var ekki spurt um, hvað vinnutíminn væri langur, en oft lögð nótt við dag svo vel mætti fara og heimilinu borgið. Þessa eiginleika hafði Auðbjörg í rikum mæli. Hún var hlédræg kona, sem var sínu stóra heimili allt. En umhyggja hennar og velvild náði langt út fyrir heimili hennar og vandamenn. Hún var kona sem vildi öllum gott gjöra. Hún var einnig félagslynd. Þegar Kvenfé- lag Bessastaðahrepps var stofnað fyrir 50 árum, var hún ein af stofnendum þess. Og ein af beztu félögum þess félags, og heiðursfé- lagi hin siðari ár. Auðbjörg var alltaf reiðubúin til starfa, meira að segja nú hin siðari ár. Hún lagði drjúgan skerf til ýmiskonar starfa í þágu félags- ins, svo sem basara og alls konar safnana, sem félagið hefur staðið fyrir. Einnig hefur Auðbjörg gef- ið félaginu gjafir og minningar- sjóði, sem Kvenfélagið hefur und- ir höndum. Hún var alltaf sami trausti félaginn, sem ævinlega var gott að Ieita til. Fyrr á árum var þetta félag mjög fámennt og munu félagar hafa verið um og innan við 10 um árabil, en þessar konur létu það ekki á sig fá og störfuðu af fullum krafti. Auðbjörg var ein þeirra og erum við í mikilli þakkarskuld við hana og þær allar, er unnu þessi óeigingjörnu störf við erfiðar að- stæður. Það er ósk okkar og von, að störf og lífsviðhorf Auðbjargar gleymist ekki, heldur geti orðið leiðarljós í okkar litla félagi um ókomna tíð. Hún er kvödd af okk- ur öllum með þakklæti og virð- ingu. Júlíana Björnsdóttir. Glæsilegt úrval jólagjafa Utvarpstæki meö og án segulbands Útvarpsklukkur Segulbandstæki Kassettutöskur Plötustatíf Heyrnatól Mikiö úrval af hljómplótum og kassettum Hagstætt verð. Ávallt næg bílastæði. Arnn'ila 38. Símar 31133 og 83177, , D i. . i M r Kdaiooær !■ 1 „Ég lá endilangur í grasinu með skammbyssu í hendi. Armbandsúrið mitt tifaði í samræmi við æðislegan hjartslátt minn. í óralanga sekúndu sá ég andlit vina minna, sem fallið höfðu fyrir hendi nazista. Sprengjurnar áttu að springa eftir þrjár mínútur. Ef við hefðum farið rétt að, táknaði það eyðileggingu enn einnar verksmiðju, sem nazistum var bráðnauðsynleg. Enn voru tvær mínútur eftir. Ég tók eftir að ég var farinn á rif ja upp, hvernig ég hafði lent hérna, hvernig þetta hafði allt byrjað. Ein mínúta. Eg beit á neðri vörina. Jafnvel þótt þetta spellvirki bæri árangur, þá gæti svo farið áður en kvöldið væri á enda, að við værum allir dauðir.“ — Þannig hefst þessi ógnarsaga, hún er skjalfest og sönn frásögn, sannkölluð Háspennubók! „Hér er um martröð dularfullra atvika og ofbeldis að ræða“, segir Evening News i London. — „Harð- soðin bók, sem skrifuð er af þekkingu, — full af stormum, bellibrögðum og skjótri atburðarás", seg- ir Birmingham Mail. — „Blóðidrifin ógnarsaga um morð, ofbeldi og dularfulla atburði úti á rúmsjó, sem ætti að gleðja hina fjölmörgu lesendur, sem velta því fyrir sér.hvað hafi eiginlegaorðið af hinum gömlu, góðu ævintýrafrásögnum. Og svarið er, Brian Callison skrifar enn slíkar sögur. Ég spái því, að þegar hinir fjölmörgu lesendur McLeans upp- götva bækur Brian Callisons, muni vinsældir hans verða gífurlegar", segir Sunday Express. — En Alister McLean sagði einfaldlega: „Það getur ekki verið til betri höfundur ævintýrabókmennta í land- inu núna“. — Þetta er sannkölluð Háspennubók! b%jcs.a aur aa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.