Morgunblaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.12.1977, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER Í977 Eggert G. Þorsteinsson í þingræðu: Tillitsemi og sannsýni opin- berra aðila þarf til að koma — eigi að vera unnt að reka endurhæfingar- stöð Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra áfram Hér fer á eftir þingræóa, sem Eggert G. Þorsteinsson flutti við umræóur um fjárlög í síðustu viku. Herra Forseti. Þrátt fyrir all- margra ára veru mína hér á hv. Alþingi þá munu þskj. bera þess vitni, að ég hafi ekki um of tafið umræðu um fjárlög eða einstaka liði þeirra. Svo stendur nú á þó, aó ég tel rétt að segja hér örfá orð, þá ekki síst í framhaldi þeirra umræðna sem fram hafa farið nú um sérstakan málaflokk, sérstök vandamál, hóps manna í landinu, ,sem lítt á þess kost að mæla fyrir sínum málum, þ.e.a.s. vandamál hinna lömuóu og fötluðu. Við lok mænuveikifaraldursins hér fyrir um það bil 25—27 árum síðan voru stofnuð samtök, þ.e.a.s. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hér í Reykjavík og í kjölfar þeirr- ar félagsstofnunar nokkur önnur félög, sem hliðstæó verkefni höfðu með höndum og það var að safna saman því fólki, sem áhuga hefði á að leysa vanda þess fólks, sem í þessi veikindi hefði ratað og aðstoða það við að fá þá læknis- og hjúkrunarmeðferð, sem nauðsyn- leg verður talin. Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra átti á sl. vetri 25 ára starfsaf- mæli og komu þá fram í fjölmiðl- um mjög rækilega þau afrek, sem unnin hafa verið við, allt það sjálfboðastarf, sem á vegum félagsins hefur verið unnið allt frá fyrrnefndum mænuveikifar- aldri, sem ég áðan nefndi. Hér hefur fyrst og fremst verið um það að ræða að fórnfúsar hendur hafa lagt fram ómælda fyrirhöfn og fjármuni og hefur þar ekki greint á um aldursflokka manna, karla og kvenna, allt frá barna- hlutaveltum upp til þess að sam- tökin hafa erft eignir hins eldra fólks sem kynni hafa haft af þess- um sjúkdómi, hefur verið megin- burðarásinn í fjáröflun þessara samtaka. Eina viðurkenningin af hálfu þess opinbera á starfi þessa fólks hefur verið svonefnt eld- spýtnagjald, sem lengi vel lék á 100—200 þús. kr., en var nú fyrir 4 árum endurskoðað með þeim árangri, að það hefur gefið í tekj- ur til samtakanna um það bil 2 millj. eða 2,2 millj. á s.l. ári. Allir sjá, að með 50—60 millj. kr. veltu vegur þessi aðstoð þess opinbera ekki þungt. Ennþá er stuðst við þá sömu burðarása og í upphafi, þ.e.a.s. frjálst vinnuframlag og frjáls fjárframlög einstaklinga og félagasamtaka úti um land allt og hefur þó stærsti aflgjafinn þar verið svonefnt simahappdrætti. Félagið barðist fyrir því að koma yfir starfsemi sína húseign. Þess ber að geta, sem gert hefur verið, að s.l. 4 ár hefur Alþingi stutt afborganir af þessari hús- eign með 1 millj. kr. á fjárl. Þetta var hús upp á 20 millj. kr. að verðmæti, sem jafnframt hefur verið barist við að reyna að halda, þó að öll rök séu með því að brýna nauðsyn beri til að stækka þetta húsnæði með viðbótartryggingu, hefur þess ekki verið kostur á þessu 5 ára tímabili, að hefja framkvæmdir vegna fjárskorts. Ég segi, nauðsynin á því að hefja framkvæmdir og styð hana með aðeins einni setningu, að s.I. 7 ár hefur biðlistinn eftir sjúkrameð- ferð á endurhæfingarstöð félags- ins að Háaleitisbraut 13 verið frá 120—190 manns, sem biða hafa orðið eftir meðferð misjafnlega langan tíma, vegna þess að reynt hefur verið að skjóta fram fyrir í röðina þeim sjúklingum, sem brýnasta þörf hafa haft hverju sinni. Við horfumst í þessu félagi í dag í augu við þá staðreynd, að komi ekki verulega til tillitssemi og sannsýni af hálfu þess opin- bera, þá muni innan örfárra mán- aða þurfa það sama að koma yfir þessa starfsemi sem hefur á orðið um Rauða kross tslands. Eins og ég áðan sagði er starfsemi félags- ins borin uppi af frjálsum fram- lögum einstaklinga, hundruðum og jafnvel þúsundum manna í sambandi vió happdrættið, þrátt fyrir þá mikilvægu aðstoð munum við horfast í augu við að loka verður þessari endurhæfingar- stöð líkt og Rauða kross spitalan- um, sem fréttir hafa verið um þessa dagana. Það er ekki nægjanleg skýring á þessu efni, SKEMMTARINN Undratækið frá KO BALDWIN er jólagjöf allrar fjölskyldunnar Hljóðfæraverzlun PÁILMNÍS dR Borgartúni 29 Sími 32845 Labba hertu þig LABBA HERTU ÞIG Ilöfundur: Merri Vik Þýðing: Gísli Ásmundsson Gerð: Prentsmiðjan Leiftur hf. Utgefandi: Prentsmiðjan Leiftur hf. Þetta er einkar skemmtileg saga af 13 ára telpu, sem fær ekki skilið, aö ein af kröfunum fyrir inngöngu i raðir fullorðinna er kunnátta í meðferö léttra talna. Hún fellur á vorprófi og verður aö lesa til haustprófa. Þaó er henni huggun, að hún er ekki ein, heldur er fallislinn Jónas þján-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.