Morgunblaðið - 20.12.1977, Síða 7

Morgunblaðið - 20.12.1977, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977 7 „Afrek” stjórnar- andstöðu í nýlegri forystugrein Norðanfara segir: „í lýðræðis- og þing- ræðisþjóðskipulagi gegnir stjórnarandstaða mikil- vægu hlutverki — eða ætti að gera. Það hlutverk felst ekki í þvi að gagn- rýna stjórnarstefnu og stjórnaraðgerðir, þó að sá þáttur aðhalds sé vissu- lega mikilvægur. Stjórnar- andstaða á jafnframt og ekkert síður að setja fram eigin stefnumörkun i öll- um samtíma viðfangsefn- um þjóðfélagsins — þann veg að borgararnir hafi marktækan samanburð valkosta í samfélagsmál- um. í þessu efni hefur stjórnarandstaðan á ís- landi gjörsamlega brugð- izt. Hún virðist hafa fátt eitt fram að færa annað en neikvætt nöldur. Hinn almenni borgari vill gjarnan fá að vita hverjar þær leiðir eru sem stjórnarandstaðan vill fara i efnahagsmálum þjóðarinnar. Hvaða höml- ur hefur hún tiltækar á verðbólguna i þjóðfélag- inu? Hvern veg vill hún bregðast við viðskipta- halla þjóðarbúsins út á við? Hvern veg vill hún mæta skuidasöfnun okkar erlendis? Hvaða leiðir á hún í handraða sinum til að styrkja veika rekstrar- stöðu atvinnugreina okk- ar: landbúnaðar. sjávarút- vegs, iðnaðár og verzlun- ar? Það kemur fram i ágætri grein Pálma Jóns- sonar, alþingismanns, i þessu blaði, að kaup gjaldsþróun i landinu hef- ur leitt til 96% hækkunar kaupgjaldsliða fjárlaga frumvarps fyrir komandi ár, miðað við frumvarp að fjárlögum fyrir yfirstand- andi ár. Hvern veg vill stjórnarandstaðan mæta þessum útgjaldaauka? Með aukinni skattheimtu — og þá hverskonar? Með niðurskurði rikis- framkvæmda — og þá hverra? Með samdrætti i samfélagslegri þjónustu — og þá hverri? Hverjir eru þeir valkostir i fjár- lagadæminu sem stjórnar- andstaðan hefur upp á að bjóða? Á að láta sitja við þá sýndarmennsku að krefjast hækkunar rikis- framlaga til svo að segja allra málaflokka, en heimta samtímis lækkun þeirra rikistekna (skatt- heimtu), sem risa þurfa undir útgjöldunum? Svo gegnsæ, „afstaða” á ekki lengur upp á pallborð al- mennings." Sundurlyndi sí og æ „Það er ekki nóg, a.m.k. ekki gagnvart sæmilega þroskuðu fólki, að bera stækkunargler upp að þeim brestum, sem sagðir eru á núver- andi stjórnarsamstarfi eða niðurstöðum þess. Hinn almenni borgari hlýtur að spyrja notendur stækkun- arglersinsaman Eitthvað haldbetra þarf að fylgja. En svo er ekki hjá núver- andi stjórnarandstöðu. Auk þess að núverandi stjórnarandstaða hefur gjörsamlega brugðist þeirri skyldu sinni að leggja fram skýrt afmark- aða stefnu í vandamálum líðandi stundar, þ.e. ábyrga valkosti, sem al- menningur getur vegið og metið i samanburði við stjórnargjörðir, hangir annað á spýtunni, sízt girnilegra. Það landlæga sundurlyndi íslenzkrar „vinstri mennsku", sem kemur ekki einungis fram i hatrammri baráttu flokka á milli, heldureinn- ig innan flokka. Óþarft er að tina til dæmi um svo auðsæa staðreynd. Satt að segja ber fátt fyrir augu á vinstri væng is- lenzkra stjórnmála sem er beinlínis traustvekjandi. Reynslusaga S:mtak- anna, sem stofnuð voru til að „sameina alla vinstri menn á íslandi" en hafa verið að klofna allt frá stofnun þeirra og fram á þennan dag er dæmigerð fyrir þessa „vinstri mennsku". Hún er naum- ast sú kjölfesta i þjóðar- skútuna sem tii þarf, til að mæta þvi sjóalagi sem framundan er". Samanburður á stjórn og stjórnar- andstöðu „Menn geta haft skipt- ar skoðanir á samstjórn Sjálfstæðisf lokksins og Framsóknarflokksins, eins og öðrum rikisstjórnum, sem myndaðar hafa verið i þessu landi. Hitt leynist sárafáum að rikisstjórnin hefur mikla yfirburði þeg- ar hún er borin saman við jafn dug- og úrræðalausa stjórnarandstöðu og þá, sem við búum við. Það út af fyrir sig er ekki sérstakt hól um ríkisstjórnina, enda þarf ekki mikið til ávinnings i þeim saman- burði. Það, sem gefur rikisstjórninni gildi i aug- um landsmanna er: hvern veg tókst að leysa land- helgismál okkar; hvern veg tókst að skapa festu á ný i öryggismálum þjóðar- innar; hvern veg tókst að koma rikisfjármálum á Framhald á bls. 30. GOÐ GJÖf SAMEINAR NYTSEMI na FFAiicn Hinir heimsþekktu hönnuðir hjá Iittala eru sífellt að endur- nýja úrvalið af Iittala glösum, diskum, könnum, karöfflum, bökkum, vösum, ög stjökum. Nýjar vörur frá Iittala eru ávallt augnayndi. Komið, skoðið, veljið vörur frá Iittala. IJrvalið hefur sjaldan verið fallegra. TÍLÍBOÐ? PEYSIIR með rúilukraaa og V-hálsmáli LAUGAVEGUR 21599 I --A. HÚSGflGnfiVERSLlin KRISTJflnS SIGGEIRSSOnflR HF. LAUGAVEG113. REYKJAVÍK. SÍMI 25870 EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU AUCÍLYSINGA- SÍMINN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.