Morgunblaðið - 20.12.1977, Síða 44
ÚTVEGSSPILIÐ
sÖlusími 53737
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1977
Dómur kveðinn upp í Guðmundar- og Geirfinnsmálum:
Tveir i fangelsi til æviloka
— hin hlutu 16, 12 og 3 ár
Sjá forsendur og dómsniðurstödu
á bls. 22, 27, 32, 37 og 46
--------------□
DÖIVIUR var í gær kveóinn upp í sakadómi Reykjavíkur í umfangs-
mestu sakamálum seinni ára á Islandi, Guómundar- og Geirfinnsmál-
um. Tveir hinna ákæróu, Kristján Viðar Vióarsson og Sævar IVIarinó
Ciesielski. sem báðir eru 22 ára gamlir, voru taldir sannir aó sök um
aó hafa svipt þá Guómund Einarsson og Geirfinn Einarsson lífi auk
fl« ri alvarlegra brota og voru þeir dæmdir í ævilangt langelsi. íVleö
oróaiaginu ævilangt fangelsi er átt vió fangelsisvist þar til ævi
viðkomandi lýkur, eins og felst í oróunum, nema dömsmálaráðherra
Iáti fangann lausan til re.vnslu á refsitímanum eins og honurn er
heimilt Iögum samkvæmt. Þaó hefur ekki gerst áöur á þessari öld
a.m.k. aö maóur hafi veriö dæmdur til lengri fangelsisvistar en 16 ár.
endalaun og er þar um háar upp-
hæöir aö ræða. Þá voru Sævar
Marínó, Erla og Tryggvi Rúnar
dæmd til þess aö greiða nokkrum
aðilum skaðabætur.
Dóminn kváðu upp sakadómar-
arnir Gunnlaugur Briem, Ár-
mann Kristinsson og Haraldur
Henrysson og var niðurstaða
dómsins samhljóða.
Akærði Tryggvi Rúnar Leifsson
»"ar dæmdur i 16 ára fangelsi en
til frádráttar kemur gæzluvarð-
hald hans frá 23. desember 1975.
Ákærði Guðjón Skarphéðinsson
var dæmdur í 12 ára fangelsi en
til frádráttar kemur gæzluvarð-
hald hans 12.—18. desember 1975
og frá 13. nóvember 1976. Ákærða
Erla Bolladóttir var dæmd í 3 ára
fangelsi en til frádráttar kemur
gæzluvarðhald hennar 13.—20.
desember 1975 og frá 4. maí — 22.
desember 1976. Ákærði Albert
Klahn Skaftason var dæmdur í ^5
mánaða fangelsi en til frádráttar
kemur gæzluvarðhaldsvist hans
frá 23. desember 1975 til 19. marz
1976.
Auk þess voru ákærðu dæmd til
að greiða saksóknarlaun og verj-
Spassky
vann 11.
skákina
Sjá skákina á bls. 20.
BORIS Spassky, fyrrum
lieimsmeistari í skák vann
elleftu einvígisskákina í ein-
vígi sínu við Viktor Korchnoi í
Belgrad í gær. Þetta er fyrsta
sigurskák Spasskys í einvíg-
inu, en Korchnoi hefur unnið
fjórar. Staðan f einvíginu er
nú sú að Korchnoi hcfur hlotið
6‘A vinning, en Spassky 354,
auk þess sem biðskákinni úr
tíundu umferð einvígisins er
enn ólokið, en staðan í henni
er mjög flókin og tvísýn, þrátt
fyrir að Korchnoi hafi peði
Lögreglumenn voru til taks
Dómsuppkvaðningin fór fram í
dómssal sakadóms Reykjavíkur
ktukkan 14 í gær. Töluverður við-
búnaður var vegna dómsupp-
kvaðningarinnar. Einkennis-
klæddir lögreglumenn voru til
taks og þeir þrír sakborningar,
sem viðstaddir voru, Kristján Við-
ar, Sævar og Tryggvi Rúnar voru
færðir í húsakynni sakadóms í
handjárnum. Gunnlaugur Briem
dómsformaður Ias dómsniðurstöð-
una í heyranda hljóði og var eng-
Framhald á hls. 28.
Sævar Marínó Ciesielski og Kristján Viðar Viðarsson koma út úr húsakynnum sakadóms Reykjavíkur
eftir dómsuppkvaðninguna í gær. Þeir voru í fylgd tveggja lögreglumanna og handjárnaðir. Sævar og
Kristján hlutu báðir ævilangt fangelsi og eru þeir fyrstu mennirnir, sem hljóta svo þungan dóm á Ísl&ndi
á þessarri öld a.m.k. Ljósm. Mbl. RAX.
Þúsundir tonna af grjóti
hrundu úr Heimakletti
Sjór steig í 70 metra hæð og flóðbylgja skall á hafnargörðunum
Tíu til fimmtán þúsund tonn af
móbergi hrundu úr Heimakletti i
gærmorgun úr tæplega 100 metra
hæð og í sjó niður við innsigling-
una i Vestmannaeyjahöfn. Mikil
flóðbylgja myndaðist og ruddist
hún yfir hafnargarðana og inn
höfnina. Hafnargarðarnir drógu
mikið úr flóðbylgjunni og þegar
bylgjan kom innst í höfnina var
hún um metri á hæð. Miklir
skruðningar fylgdu hruninu og
þegar bjargstykkin skullu i sjóinn
stigu sjógusur í allt að 70 metra
hæð, eða nærri því upp í Klettinn
þar sem hrunið varð. Hrunið varð
austan við Dönskutó á svæöi sem
er nærri hundrað metra breitt og
tugir metra á lengd upp i gróður-
inn í Klettinum. Mikill loftþrýs-
ingur skall á bænum við hrunið
Formaður Stéttarsambands bænda:
Niðurfelling söluskatts af
kjöti fær tregar undirtektir
„TÖNNINN í þeim viðræðum,
sem við höfum átt við fulltrúa
ríkisstjórnarinnar sfðustu daga,
hefur ekki verið jákvæður í garð
þeirrar óskar okkar að söluskatt-
ur verði felldur niður af kjöti og
I.jötvörum, og undirtektir hafa
því verið tregar", sagði Gunnar
Guðbjartsson, formaður Stéttar-
sambands bænda í viðtali við Mhl.
í gær. Sagði Gunnar að Stéttar-
sambandið hefði ekki fengið nein
endanleg svör við þeim skilyrð-
um, sem aukaaðalfundur þess
setti fram vegna aðgerða í fram-
Ieiðslu- og sölumálum landhúnað-
arins en undirtektir hefðu þó ver-
ið heldur jákvæðari varöandi
breytingu á útreikningi út-
flutningsbóta og aðstoð ríkissjóðs
við sölu smjörs á niöursettu verði.
Ljóst væri þó að ef til smjörút-
sölu kæmi yrði það ekki fyrir
áramót. „En við teljum það ekki
nóg að rfkisvaldið fallist á þessi
tvö síðastnefndu skilyrði og ef
söluskatturinn verður ekki felld-
ur niður af kjötinu, teljum við
útilokað að stvðja samþykkt
fódurbætisskatts á hændur,“
sagði Gunnar.
Landbúnaðarráðherra, Halldór
E. Sigurðsson, sagði í gær að ríkis-
stjórnin hefði ákveðið að fjalla
um atvinnumálin í heild sinni í
þinghléinu um jölin og þar á með-
al yrði fjallað um vandamál land-
búnaðarins. Halldór vildi ekki tjá
sig um einstök skilyrði Stéttar-
sambandsfundarins en varðandi
frumvarp til breytinga á lögum
Framleiðsluráðs landbúnaðarins
þess efnis að heimila álagningu
fóðurbætisskatts og beitingu
kvótakerfis, sagðist Halldór hafa
kynnt þingmönnum stjórnar-
flokkanna efni þeirra en liann
væri ekki tilhúinn til að standa að
flutningi þeirra nema um þau
Framhald á bls. 29
Fjórir menn
létust af
slysförum
um helgina
(Sjá fréttir bls. 2)
FJÖRIR menn létust af slys-
förum í kringum helgina.
Tveir mannanna drukknuðu
þegar hátur þeirra fórst í
mynni Steingrímsfjarðar á
laugardagskvöld; sama kvöld
kafnaði maður í reyk þegar
cldur kom upp í húsinu nr. 27
við Þingholtsstræti í Reykja-
vík, og í gærmorgun beið svo
verkamaður bana þar sem
hann var við vinnu sína um
borð í skipi í Sundahöfn í
Reykjavík.
Mennirnir tveir sem fórust í
Steingrímsfirði, hétu Jóhann
Snæfeld Pálsson, 58 ára, Ilam-
Framhald á bls. 30.
og titruðu rúður víða í húsum í
bænum, en flestir bæjarbúar
urðu varir við dynkinn sem
heyrðist er hrunið átti sér stað.
Enginn bálur var á Víkinni eða i
innsiglingunni þegar hrunið átti
sér stað, en skömmu áður hafði
Lóðsinn í Eyjum siglt þar inn.
Hefði getað farið illa ef bátar
hefðu verið á leiðinni inn undan
Heimakletti.
Astæðan fyrir hruninu er talin
vera sú að undanfarna daga hafa
verið til skiptis í Eyjum mikil
frost og úrhelli.
dagar
til
Jjóla