Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 5

Neytendablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 5
______________________UMHVERFISVERND_______________________ Þurfum sterkara blýlaust bensín - segir Jónas Bjarnason, framkvœmdastjóri FIB. Hér á landi eru nú fáanlegar tvær gerðir bifreiðabensíns, - 98 oktan, svokallað super- bensín eða kraftbensín með blýinnihaldi, og 92 oktan blýlaust bensín. Áður var aðeins ein tegund bifreiðabensíns til sölu, þ.e. 93 oktan með blýi. Talið er að 50% íslenskra bifreiða geti notað 92 oktan bensín, en tölur um bensínsölu eftir 1. mars sýna að salan á því er aðeins 38% af heildarbensínsölunni. Sala á sterka bensíninu jókst um 2% í mars, því að í febrúar skiptist bensínsalan þannig að 40% hennar var 92 oktan en 60% 98 oktan. Hér á eftir verður fjallað um það hvort íslenskir bifreiðaeigendur eiga einir að taka frumkvæði að því að nota blýminna bensín. í hvers verkahring er það að hvetja til notkunar á því? Hverjir vilja kosta einhverju til að loftmengun vegna útblásturs frá bifreiðum, minnki á höfuðborgarsvæðinu? Út frá umhverfissjónarmiðum er tvímælalaust best að blýinnihald bensíns sé sem minnst. Það 92 oktan bensín sem kom á markað hér hinn 1. maí 1988, er nánast alveg laust við að innihalda blýi, eða með 0.00025 gr./lítra. Til samanburð- ar var 93 oktan bensínið með 0.40 gr./lítra og 98 oktan bensínið sem nú er til sölu, hefur haft 0.15 gr./lítra blýinnihald síðan í ágúst 1987. Að sögn Jónasar Bjarnasonar fram- kvæmdastjóra FÍB væri æskilegt að magn þeirra efna sem koma í stað blýs, t.d. benzen og hexan, minnki um helming og verði þar með sambærilegt við það sem best gerist í nágrannalöndunum. Félag íslenskra bifreiðaeigenda barðist fyrir því að fleiri tegundir bensíns fengjust hér á landi. 1984 samþykkti félagið t.d. ályktun þess efnis að hér yrði fáanlegt blýlaust bensín, því upp úr 1980 varð ör þróun á sniði bifreiða og voru þær æ meir miðaðar við notkun á blýlausu bensíni. 1985 gerði félagið könnun þar sem kom í ljós að af 133 löndum var Island meðal 28 landa þar sem aðeins fékkst ein tegund bensíns. Hin 27 löndin voru aðallega frumstæð Afríkuríki. Árangur bráttunnar skilaði sér svo þegar kraft-bensínið kom 14. maí 1986. Hingaðkomu blýlausa bensínsins bar hins vegar brátt að þegar það kom öllum að óvörum í maí 1988. Hinn 3. mars sama ár samþykkti Alþingi ályktun þess efnis að hingað yrði flutt inn blýlaust bensín og var nefnd skipuð til að vinna að framgangi málsins. Hún varð því verkefnislaus þegar olíufélögin fengu farm af þessu bensíni til landsins. Var nefndinni þá falið að vinna að gerð tillagna um mengunarvarnir og skilaði áfangaáliti í ágúst 1988. Enginntími til kynningarstarfs Jónas Bjarnason segir FÍB mjög ánægt með að blýlaust bensín sé nú fáanlegt hér á landi en félagið lýsti strax óánægju sinni með að ekki gæfist betri fyrirvari til að kynna bensínið og notkun þess fyrir bif- reiðaeigendum. Eðlilegur fyrirvari hefði verið fjórir til sex mánuðir. Margir bif- reiðaeigendur vissu ekki hvort bensínið væri æskilegra á þeirra bifreiðar og telja sig jafnvel öruggari með að nota kraft- bensínið. Félagið hefur ekki viljað blanda sér í umræðuna um hvort bensínið henti betur fyrir hinar ýmsu tegundir bifreiða og telur eðlilegast að bifreiðaumboðin séu ábyrg fyrir slíkum upplýsingum. Hefur listi þess efnis legið frammi á bensínstöð- um og er bifreiðaeigendum bent á að spyrjast fyrir þar. Sum umboðin kostuðu einnig auglýsingar með þessum upplýsing- um um það leyti sem blýlausa bensínið kom til landsins. 5

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.