Bændablaðið - 21.04.1998, Side 1

Bændablaðið - 21.04.1998, Side 1
7. tölublað 4. árgangur Þriðjudagur 21. apríl 1998 ISSN 1025-5621 Opifl hús hja Rala ú Mfiflru- vfillum Miðvikudaginn 29. apríl gefst bændum og öðrum áhuga- mönnum kostur á að kynna sér starfsemi Rannsókna- stofnunar landbúnaðarins á Möðruvöllum. Kynning verður í höndum bú- stjóra og sérfræðinga og munu þeir segja frá þeim rannsóknum sem unnið er að og sýna að- stöðuna. Fólk getur farið fyrst í til- raunafjósið og séð þar fóðurtil- raunir með nautgripi, bæði mjólk- urkýr og kálfa af mismunandi kúa- kynjum. Einnig geta gestir skoðað mismunandi básamilligerðir sem verið er að prófa í fjósinu. í jarð- ræktarhúsinu (Eggertsfjós), verður gerð grein fyrir rannsóknum á plöntum og smádýrum í jarðvegi. Kynningin stendur frá kl. 13:00 til kl. 17:00 og getur fólk komið hvenær sem er á þeim tíma. Allir eru velkomnir. Baendablaðið Bændablaðið kemur næst út 5. maí. Stærri auglýsingar þurfa að hafa borist blaðinu síðdegis 29. apríl en tekið er á móti smáauglýsingum til kl. 16:00 30. apríl. GuOmundur Lárusson hæfflr sem formaOur LK „í sumar hef ég í hyggju að snúa mér alfarið að bú- rekstrinum og minnka þátt- töku í félagsmálum. Því mun ég ekki gefa kost á mér sem formaður LK á aðalfundi fé- lagsins í ágúst,“ sagði Guð- mundur Lárusson, formaður Landssam- bands kúa- bænda en hann hefur gegnt for- mennsku í LK í tíu ár. „Starf mitt hjá LK hefur vissulega gefið mér mikið. Ég hef kynnst mörgu góðu fólki og tekið þátt í ýmsu áhugaverðu en því verður ekki á móti mælt að búið hefur liðið fyrir félagsmálaþátttökuna." Guðmundur sagði að í upphafi hefði LK ekki verið viðurkennt sem málsvari búgreinarinnar. „Þetta hefur breyst og því fagna ég að sjálfsögðu," sagði formaður LK. „Nú hefur það einnig gerst að ábyrgð á framleiðslu og verð- lagningu nautakjöts er alfarið á ábyrgð LK. Umdeildasta verk- efnið sem LK hefur beitt sér fyrir er innflutningur á erfðaefni. Hér er á ferðinni afar mikið tilfinninga- mál og ég get vel viðurkennt að við fórum óvarlega af stað en nú tel ég að að náðst hafi meiri sátt um verkefnið. Eg trúi því að þetta sé leið sem bændur geta almennt verið sáttir við. Viðtal við Guðmund Lárusson verður birt í Frey sem kemur út innan skamms. Sölufélag garðyrkjumanna semur við Búnaðarbankann Samningurinn felur I súr 34% lækkun Qúrmagnskostnaflar SFG vinniir markvisst nð lækkun kostnaflar hjú garflyrkjubændum Garðyrkjubændur, sem leggja afurðir sínar inn hjá Sölufélagi garðyrkju- manna, geta nú vænst þess að lækka fjármagnskostnað fyrirtækja sinna í kjölfar samnings sem SFG hefur gert við Búnaðarbanka íslands. Samningurinn felur í sér lækkun á fjár- magnskostnaði um 34%. Samningur- inn er eitt af mörgum skrefum sem SFG hefur tekið á liðnum árum í þá átt að draga úr rekstrarkostnaði garð- yrkjustöðva. Frá árinu 1995 hefur SFG til dæmis tekið á sig flutningskostnað frá garðyrkjustöðvum til höfuðstöðva fyrirtækisins. Einnig hefur SFG frá árinu 1997 séð um umbúðir vegna framleiðslunnar. Á liðnum árum hefur söluþóknun fyrirtækisins lækkað um rúm 30%. „Samningurinn við Búnaðarbankann er í höfn en hann leiðir af sér að fjármagns- kostnaður framleiðenda, sem leggja inn hjá SFG, og þurfa á bankafyrirgreiðslu að halda lækkar verulega. Bændur hafa með sölu á viðskiptavíxlum verið að greiða 14% for- vexti auk 1% kostnaðar í hvert skipti sem að víxill hefur verið seldur en þeir hafa yfirleitt verið til um 65 daga. Á ársgrund- velli hefur því árlegur kostnaður bænda verið að lágmarki 18% með sölu viðskipta- víxla en lækkar nú niður í 12%. Það munar um minna,“ sagði Pálmi Haraldsson, for- stjóri Sölufélags garðyrkjumanna. Pálmi sagði aðstæður allar í þjóðfélaginu hafa breyst frá því sem áður var og nú væri það beinlínis skylda afurðasölufyrirtækja að að- stoða framleiðendur við að lækka kostnað. „Þetta er nauðsynlegt þar sem það er ekkert svigrúm lengur hjá neytandanum. Ekki er hægt að sækja auknar tekjur í vasa hans með hækkun á afurðaverði enda hefur verð á íslensku grænmeti lækkað ár hvert.“ SFG gengur í ábyrgð Pálmi sagði að Búnaðarbankinn, undir forystu Stefáns Pálsson, bankastjóra, hefði sýnt það að hann hefði áhuga og vilja að standa undir nafni. „Bankinn vildi koma til móts við þarfir umbjóðenda okkar, garð- yrkjubænda, og gera við okkur heildar- samning. Þama gengur SFG í ábyrgð fyrir bænduma og því getur bankinn leyft sér að lækka kostnaðinn eða með öðmm orðum vextina." En er SFG að færa Búnaðar- bankanum umtalsverð viðskipti? Pálmi sagði erfitt að meta það í smáatriðum en lík- legt væri að ýmsir bændur mundu færa við- skipti sín í Búnaðarbankann í framhaldi af gerð samningsins. Hins vegar væri enginn neyddur til að færa viðskipti sín úr öðmm bönkum yfir í Búnaðarbankann. „Við emm með þessum samningi að brjóta upp ákveðið munstur. Það er ekki keppikefli SFG að bændur skipti eingöngu við Búnaðarbankann en það sýndi sig að hann hefur áhuga á að bæta hag framleið- enda og ég er bankanum þakklátur fyrir að hafa komið að málinu af jafn mikilli ábyrgð og raun ber vitni. Ljóst er að framleiðendur em margir hverjir með háan fjármagns- kostnað og hvað varðar stærri búin þá getum við verið að tala um einhver hundruð þúsunda sem þau spara eftir gerð þessa samnings - að því gefnu að eigendumir taki upp viðskipti við Búnaðarbankann." Pálmi sagði það stefnu fyrirtækisins að helga sig ekki eingöngu því hlutverki að selja afurðir bænda. „Við höfum reynt að lækka þóknun félagsins á óbeinan hátt. SFG tók að sér flutninginn án þess að leggja álögur á félagsmenn og þannig tókst að lækka dreifingarkostnað framleiðenda." Nœst eru það iðgjöld tryggingafélaga Pálmi sagði hann hefði fengið aðgang að ársreikningum nokkurra búa og valið fimm stærstu útgjaldaliðina. „í framhaldi af því settum við flutningadeild á fót sem hef- ur sparað framleiðendum tugi prósenta. Næsta skref var að lækka umbúðakostnað- inn og nú er það fjármagnskostnaðurinn. „Fyrir áramót vænti ég að við höfum getað tekið á tryggingamálunum og knúið fram lækkun á iðgjöldum vegna trygginga. Eng- inn kostnaðarliður er heilagur enda er lækk- un kostnaðar eina leiðin fyrir innlenda framleiðendur til þess að lifa af,“ sagði Pálmi. „Það er markmið félagsins áfram að vinna að hagsmunamálum þeirra framleið- enda sem leggja inn í þetta félag. Við teljum að þetta verði að gera með viðskipta- hagsmuni að leiðarljósi en ekki með fé- lagslegum hlutum eins og áður tíðkaðist."

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.