Bændablaðið - 21.04.1998, Side 14

Bændablaðið - 21.04.1998, Side 14
14 Bœndablaðið Þriðjudagur 21. apríl 1998 Hefur þú íhugað kosti Iffrænnar matvælaframleiðslu? Gæðaþjónusta á góðum kjörum Lífrænar afurðir njóta sívaxandi vinsælda um allan heim, einnig á íslandi. Bændur og fyrirtæki, hafið samband við TÚN sem veitir aðstoð og upplýsingar um framleiðslu lífrænna afurða. Vottun lífrænna afurða TÚN hefur gefið út handbók sem fjallar um úttekt og vottun í öllum greinum landbúnaðar og matvælavinnslu. Fagmennska í fyrirrúmi TUN er meölimur í IFOAM Alþjóðasamtökum lífrænna landbúnaöarhreyftnga VOTTUNARSTOFAN TUN Sími og fax: 487 1389 Hrossaræktarsamtök Austurlands Blðmleg hrossarækt á Austurlandi Hrossaræktarsamtök Austur- lands hefur nú starfað í rúmt ár. Að sögn Jósefs Valgarðs Þorvaldssonar á Víðivöllum fremri er hrossaræktin á Austurlandi í góðum farvegi eins og kom í Ijós ,á kynbóta- sýningum í fyrra. Á aðalfundi samtakanna sem haldinn var 4. apríl voru veitt verðlaun fyrir hæst dæmdu austfirsku hrossin á árinu 1997. Hæst dæmdu stóðhestar og hryssur fengu viðurkenningu fyrir byggingu, hæfileika og aðalein- kunn. Einnig voru veittar viður- kenningar fyrir háar einkunnir fyrir einstaka eiginleika. Stóðhestar, hœstu aðaleinkunnir. 1. Stefnir frá Ketilsstöðum, eink. 8,17. Eig. Jón Bergsson, Ketils- stöðum. 2. Hrókur frá Glúmsstöðum II, eink. 8,16. Eig. Hallgrímur Kjartansson, Glúmsstöðum II. 3. Gauti frá Gautavík, eink. 8,14 Eig. Erlingur Gunnarsson, Gautavík. Hryssur, hœstu aðaleinkunnir. 1. Sonnetta frá Sveinatungu, eink. 8,10 2. Orða frá Víðivöllum fremri, eink. 8,01 3. Duld frá Viðivöllum fremri, eink. 7,99 Eigendur þessara hryssa eru Jósef Valgarð Þorvaldsson, Víði- völlum fremri og Þorvaldur Jósefsson, Borgamesi. Heiðursverðlaun fyrir afkvæmi fékk Maddóna frá Sveinatungu, 124 stig í kynbótamati. Eig. Jósef Valgarð Þorvaldsson, Víðivöllum fremri og Þorvaldur Jósefsson, Borgamesi. Viðurkenningu fyrir hœstu einkunnir í einstökum eiginleikum fengu: Stefnir frá Ketilsstöðum, 10,0 fyrir hófa. Eig. Jón Bergsson, Ketils- stöðum. Orða frá Víðvöllum-Fremri, 9,5 fyrir hófa og stökk. Eig. Jósef Valgarð, Víði- völlum fremri og Þorvaldur Jósefsson, Borgamesi. Hljómur frá Ketilsstöðum, 9,5 fyrir vilja. Eig. Bergur Jónsson, Ketils- stöðum. Hallgrímur Kjartansson með bikara sem hann fékk fyrir best byggða stóðhestinn, Hrók frá Glúmsstöðum. T.h. er Jón Bergsson sem fékk viðurkenningu fyrir besta stóðhestinn, Stefni frá Ketilsstöðum. T.v. eru þau Jósef Valgarð Þorvaldsson og Ragnheiður Samúelsdóttir. Bjarni Guðmundsson og Guðmundur Hallgrfmsson, Hvanneyri. Nú er leitast við að lengja sláturtíma sauðfjár. Leið til þess er m.a. að fóðra sláturdilka fram eftir hausti þegar högum sleppir. Þá er spurt hvort framfarir þeirra nái að borga kostnaðinn sem fóðruninni fylgir. I heyverkunartilraun, sem gerð var á Hvanneyri á liðnu hausti, féllu til gögn sem leyfa lauslega athugun á þessu. Tilraun- in var gerð með há sem tekin var í rúllur á tvenns konar þurrkstigi. Háin var verkuð með og án íblöndunar hjálparefnis en sá þáttur tilraunarinnar verður Iátinn liggja á milli hluta að sinni. Þurrkstig háarinnar réð heyáti Daglegt heyát lambanna var mælt og lömbin vegin vikulega; 3. tafla sýnir meðalniðurstöðumar: 3. tafla. Heyát og vöxtur dilkanna Hey Heyát Vöxtur Nýting háarinnar kg þe./dag g/dag kg þe./kg vaxtar A 0,78 37 21,1 B 0,98 85 11,5 Glöggur munur var á heyáti og vexti (þungabreytingum) dilk- anna, þurra hánni í vil. Hefur það áður komið fram í Hvanneyrar- tilraunum. Þótt þurrkunin gengi ekki áfallalaust bætti hún nýtingu háarinnar til mikilla muna eins og tölumar í aftasta dálki töflunnar sýna. Fallþungi dilkanna kemur A-hópur 54 kg B-hópur 68 kg Er þá reiknað með 10% álagi vegna moðs og affalla á heyi. Þetta hey, auk vinnu og nokkurrar húsaleigu, þurfti hver dilkur að greiða með viðbótarafurðum sín- um; í fallþunga og ull, en þeir vora allir rúnar á þriðja degi inni- stöðu. Aætlað var að dilkamir hefðu aðeins skilað 11,6-11,8 kg falli hefði þeim verið slátrað um það leyti sem tilraunin hófst. Fall- aukinn, sem fékkst, nam því 1,0 kg í A-hópi en 2,4 kg í B-hópi. Reiknuð fóðumotkun á kg fall- auka nam 37 fóðureiningum í A- hópi en aðeins 19 í B-hópi. Munurinn sýnir mikilvægi lystug- leika heysins. Verðmæti afurða dilkanna skiptist þannig: 4. tafla. Verðmæti afurðauka dilkanna vegna innifóðrunarinnar Hey Fyrir kjöt Fyrir ull Samtals kr. kr. kr. A 285 576 861 B 684 598 1282 Hver dilkur gaf því 900 til 1300 kr. uppí fyrirhöfnina allt eftir gæðum háarinnar. Líka má deila tekjunum á heymagnið sem notað var. Fást þá tölumar 15,95 krTkg þe. fyrir A-hóp en 18,85 kr./kg þe. fýrir B-hóp. Líta má á þessar Hráefnið - góð há Háin var slegin 22. ágúst 1997. Hún var óáborin; að mestu vallarsveifgras af gömlu mýrar- túni. Hluti hennar (A) var bund- inn í rúllur samdægurs (með 35% þe.) en hluti (B) þurrkaður betur. Reyndist það seinlegt því vætu gerði í tvo daga ríflega (samtals nær 7 mm). Að kvöldi þriðja dags á velli náðist háin í rúllur; þá með 63% þe. Lítið sá á henni eftir hrakninginn enda svalt í veðri. Rúllur vom hjúpaðar 6-földu plasti og geymdar utandyra. Við hirðingu var efnamagn heysins eins og 1. tafla sýnir. 1. tafla Efnamagn háarfnnar vlö hlrölngu Hey Þurrefni Prótein Orka % % af þe. FEm/kg þe. A 34,9 18,5 0,86 B 62,6 18,4 0,87 Verkun háarinnar Háin verkaðist vel. Vott af myglu mátti þó finna í fáeinum rúlluböggum; heldur meira í B en A. Lýsa má gerjun heysins með tölunum í 2. töflu: 2. tafla. Verkun háarlnnar ■ ■ árangur gerjunar Hey Sýrustig Þurrefni Sykrur Mjólkursýra Ammoníak pH % % af þe. % af þe. NH3-N, % A 5,36 36,7 13,3 1,09 6,1 B 5,93 64,6 11,3 0,01 1,8 í þurra hánni (B) hafði sáralítil gerjun orðið en í þeirri votu (A) öllu meiri - þar virtist mjólkur- sýmgerjunin hafa verið ráðandi en þó var ammoníak-myndun í efri mörkum. Mældur orkustyrkur háarinnar (FEm/kg þe.) breyttist ekki frá hirðingu til gjafa. Hér var því um fyrsta flokks rúlluhey að ræða bæði að fóðurgildi og verkun. Fóðrun dilkanna Valin vom 10 haustlömb (gimbrar) til fóðmnar á hvorum heyflokki (A og B). Valin vom smá lömb og rýr enda ætlunin að bata þau svo þau yrðu markaðshæf vara. Meðalþungi lambanna í upphafi tilraunar var 29,0 kg í báðum hópum. Lömbin voru tekin á hús 14. október. Fyrstu vikuna voru þau öll á sama heyfóðri en síðan tók við 8 vikna fóðrunar- skeið sem lauk með slátrun lamb- anna 17. desember. Lömbin fengu rúlluheyið að vild sinni en annað fóður ekki. Gefið var tvímælt. Lömbin höfðu aðgang að saltsteini og vatni. fram á 1. mynd sem er neðst á síðunni. B-dilkamir skiluðu 1,4 kg þyngra falli að meðaltali en A- dilkamir. Með forþurrkuninni náðist að bæta heyátið að því marki að fallþungi dilkanna nálgaðist vel ásættanleg mörk. Öll flokkuðust föllin í DIA; tvö úr A- hópi þóíDIA*. Borguðu dilkarnir fóðrið og vinnuna? Athugunum þessum verður haldið áfram en velta má vöngum yfir niðurstöðunum. Á fóðranar- skeiðinu var heynotkunin þessi: tölur sem lágmark því ábatinn er ekki aðeins bundinn þungaaukn- ingu dilkanna heldur einnig verð- mætisaukningu í kjölfar betri flokkunar fallanna ofl.. Nú verður hver að reikna sinn kostnað við heyöflun, vinnu við haustfóðmnina, svo og húsaleigu dilkanna. Því verður ekki dæmt um hagkvæmni aðferðarinnar. Miðað við möguleika til heyöflun- ar og verðlag á heyi um þessar mundir sýnist þetta vera athugandi kostur. Það er hins vegar ljóst að eigi dilkar að sýna viðunandi framfarir við haustfóðrunina verður heyið að uppfylla ítmstu kröfur um gæði - bæði hvað snertir hráefni og verkun. Síðast en ekki síst verður það að vera ódýrt í framleiðslu. Þá er komið að verði annarra fóður- tegunda sem til greina koma en það er önnur saga.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.