Bændablaðið - 21.04.1998, Page 20

Bændablaðið - 21.04.1998, Page 20
20 Bcendablaðið Þriðjudagur 21. apríl 1998 „Nú, þegar þetta er ritað, er margt óljóst um framkvæmd sýningahalds í hrossarækt í vor og sumar, ástæðan er, eins og lesendur vita, hitapest sú er nú geisar í hrossum sunnanlands og vestan. Sýningaáætlun verður þó gerð um leið og línur skýrast og verður væntanlega birt í næsta tölublaði Bændablaðsins,“ segir Kristinn Hugason, hrossaræktarráðunautur BÍ. „Aður en hitapestin kom upp og engan grunaði annað en að í hönd færi einhver starfsamasti vetur varðandi þjálfun hrossa hingað til, hafði fagráð í hrossarækt samþykkt viðamiklar reglur varðandi framkvæmd hrossadóma og eru þær birtar hér á eftir. Að auki er minnt á að fagráð ítrekaði samþykkt sína þess efnis að það verði ófrávíkjanleg regla að allir stóðhestar sem koma til kynbótadóma skulu vera blóðflokkaðir eða DNA-greindir til staðfestingar á ætterni.“ Beðið í sumarblíðunni á Melgerðismelum í Eyjafirði eftir að dómstörf hefjist. Myndin var tekin 1995. Þessi mynd og aðrar sem fylgja greininni tók KH. 1. regla Um ajkvœmasýningar á stóðliestum Lágmörk til afkvæmaverðlauna stóðhesta lækka um 5 stig frá því sem áður var. Sjá töflu neðst á síðunni. 2. regla Um afkvœmasýningar á stóðliestum Hætt verður að veita 2. verðlaun fyrir afkvæmi hjá stóðhestum. Sjá töflu hér neðst á síðunni. Ástæðan fyrir setningu 1. og 2. reglu er fyrst og fremst sú að við notkun nýrra erfðastuðla við út- reikning kynbótamatsins varð all- nokkur þétting á þeim skala sem kynbótaeinkunnimar eru birtar á. Þama er um æskilega breytingu að ræða sem gerð var allýtarlega grein fyrir í formála fyrsta heftis Hrossa- ræktarinnar 1997. Breytingin hefur þó þær afleiðingar í för með sér að skilyrðin til að stóðhestar hljóti 1. verðlaun eða heiðursverðlaun fyrir afkvæmi herðast umtalsvert nema lágmörk séu lækkuð sem svarar 5 stigum eins og gert var. Þetta hefur þó þau áhrif, þar sem þéttingin á kúrfunni er fyrst og fremst til endanna, að lágmörk til 1. verð- launa hjá stóðhestum, sem hafa 30 eða fleiri dæmd afkvæmi lækka, nokkuð og betri helft annars verð- launa stóðhesta með afkvæmum iilýtur nú fyrstu verðlaun. Þetta í sjálfu sér er alls ekki óæskileg breyting en í ljósi hennar er íinboðið að fella í burtu önnur verð- laun með afkvæmum. Þá skal minnt á þá reglu sem Fagráð í hrossarækt samþykkti í fyrra, 1997, að öll afkvæmi sem fram koma í sýningahóp stóðhests skulu vera dæmd eigi síðar en í for- skoðun fýrir viðkomandi mót. Gildir hið sama um sýningu hryssna með afkvæmum, sjá hér á eftir. 3. regla Um afkvœma- sýningar á hryssum Hætt verður hefðbundnum af- kvæmasýningum á hryssum til 1. verðlauna en afkvæmasýningum á hryssum til heiðursverðlauna verður haldið áfram. Árlega skal birta sérstaka töflu í Hrossaræktinni I yfir þær hryssur sem ná heiðursverð- launum eða 1. verðlaunum fyrir af- kvæmi samkvæmt þeirri reglu sem kemur hér á eftir. Eigendum hryssnanna skal auk þess sent sérstakt viðurkenningarskjal í fyrsta sinn sem þær ná umræddum verð- launastigum og skulu slík skjöl send hvort sem hryssumar hafi verið sýndar með afkvæmum eða ekki. Lágmark til heiðursverðlauna er 120 stig í kynbótamati aðal einkunnar og 5 dcemd afkvcemi. Lágmark til 1. verðlauna er 115 stig í kynbótamati aðaleinkunnar og einnig 5 dœmd afkvœmi. Afkvæmasýningar hryssna hafa ekki mikið kynbótafræðilegt gildi þar sem hryssumar em hvom tveggja orðnar harðfullorðnar í nær öllum tilfellum er að sýningu kemur auk þess sem öryggi afkvæma- dómsins getur aldrei orðið mikið þar sem hann byggist aðeins á fáein- um afkvæmum. Hjá hryssum er um að ræða fimm til rúmlega tíu dæmd afkvæmi og er raunar fátítt að þau séu fleiri en u.þ.b. sjö. Til saman- burðar skal það haft í huga að af- kvæmafjöldi stóðhesta sem fá af- kvæmadóm er að lágmarki 15 og iðulegast eiga þeir fleiri tugi ef ekki hundmð dæmdra afkvæma. Af- kvæmasýningar á hryssum em hins vegar hvatning og auglýsing fyrir einstaka ræktendur og því jákvæðar sem slíkar. Eigi að síður er eðlilegt að draga úr þætti afkvæmasýninga á hryssum og með því er lagt lóð á vogarskálamar til að draga saman dagskrá stórmóta en það er sam- dóma áht manna að full þörf sé á því. Það er engum til framdráttar að ofbjóða áhorfendum með óhóflega langri dagskrá. 4. regla Um fótabúnað í kynbótasýningum Sami fótabúnaður skal vera á hrossum í einni og sömu sýning- unni. Þannig er óheimilt að breyta hh'fabúnaði meðan á sýningu fyrir dómi stendur. Nú á síðustu ámm hefur það þrásinnis hent í kynbótadómi að hlífar séu hafðar á þegar riðinn er klárgangur en teknar af áður en lagt er til skeiðs. Þama má segja að hlífanotkunin hafi snúist upp í and- hverfu sína þar eð hlífunum er ætlað að vama ágripum sem helst henda á yfuferð, einkum á vekurð. Það er því ófært við dóma á kynbótahross- um að látið sé viðgangast að hross séu ekki sýnd á öllum gangtegund- um með sama fótabúnað. Þá ber þess að minnast að það veldur tíma- töf og truflun að knapar stígi af baki í miðri sýningu ýmist til að setja á eða taka af hlífar. 5. regla Varðandi skyldurknapa og umráðamanna hrossa Sami knapi sýni hrossið í einni og sömu sýningunni. Knapar séu allsgáðir og sýni prúðmannlega reiðmennsku og þeir ásamt umráða- mönnum hrossins sýni einnig prúð- mannlega framkomu. Að öðmm kosti komi til áminningar (gult spjald) eða brottvísunar frá sýningu á einu móti (rautt spjald). Slík atvik skulu skráð með rökstuðningi dómara og undirskrift þeirra. Þeir aðilar sem fá brottvísun frá sýningu hafa skriflegan málsskotsrétt til fag- ráðs. Jafnframt hafa sýnendur og umráðamenn kynbótahrossa rétt til að senda fagráði skriflegar athuga- semdir er varða önnur atriði sem snerta faglega framkvæmd kyn- bótadóma og sýninga. Á undanfömum ámm hafa nokkur tilvik komið upp þar sem aðalknapi við sýningu hross hefur kallað til annan knapa sem sýnt hef- ur stöku gangtegundir. Engar reglur hafa bannað slíkt en allir sjá hvers konar aðstæður mynduðust ef knap- ar fæm í stómm stíl að skipta með sér sýningu hrossa og hver riði þá gangtegund sem hann kynni best með að fara. Nauðsynlegt er því að setja reglur um að sami knapi n'ði sýninguna út í gegn. Hér er þó ekki átt við að óheimilt sé að nýr knapi ríði hrossinu á yfirlitssýningu. Að knapar sýni prúðmannlega reiðmennsku og einnig það að þeir séu allsgáðir og sýni ásamt um- ráðamönnum hrossa prúðmannlega framkomu em hlutir sem óþarfi ætti að vera að setja í reglur, ekki hvað síst í ljósi þess að ástandið hefur batnað mikið. Eigi að síður er þörf á að grípa til aðgerða svo þeir hnökrar sem enn era til staðar verði lag- færðir. Sérstaklega er það hið síðastnefnda, gróf framkoma, sem kallar á reglur og viðurlög svo fúllur vinnufríður við dómsstörf náist. Leiðin er sú að dómnefnd ásamt með sýningarstjóm hafi rétt til að beita áminningum (gult spjald) og brottvísun (rautt spjald) sem að sjálfsögðu verði einungis beitt í ýtrastu neyð. Nú í vor verður sú ný- breytni tekin upp að formaður dóm- nefndar mun sjá um færslu í bók á eins konar verklagsskýrslu á hverri sýningu. Til bókar verður t.d. færð notkun spjalda, komi slíkt til, ásamt rökstuðningi og undirskrift dómara og ýmiss önnur atriði, jákvæð eða neikvæð, er einkenna framgang hverrar sýningar. Til að forða misskilningi um við hvað er átt með að knapar séu alls- gáðir skal tekið fram að það er ein- faldlega óheimilt að knapar séu undir áhrifum áfengis og er þar gengið út frá hinum almenna skilningi fólks á hvað era vínáhrif og einkenni þeirra. Leiðbeiningaþjónustan í hrossa- ræktinni hefur um langt skeið beitt sér fyrir framföram í reiðmennsku og hafnað grófri reiðmennsku en lagt áherslu á að kynbótasýningar væra riðnar af knáleik. I þessu sambandi vitna ég til eftirfarandi leiðbeininga sem birtar hafa verið nú síðustu árin í mótsskrám stór- móta í Hrossaræktinni og víðar: Fágaðar og skipulega uppbyggðar sýningar þar sem þjálni og mýkt ásamt miklum afköstum hrossa á gangi er í hávegum höfð eru þcer sýningar sem skila bestum árangri bœði í einkunnum og öðm tilliti. Á aðalfundi Félags tamninga- manna 13. desember sl. var að auki samþykkt áskoran til fagráðs í hrossarækt þess efnis að tekið verði strangt á grófri reiðmennsku og slæmri meðferð hrossa. Þetta er þakkarverð samþykkt frá Félagi tamningamanna og mun hún hvetja okkur kynbótadómara til frekari dáða á þessum vettvangi. í lokin varðandi umijöllun mína um 5. reglu vil ég benda lesendum á að fagráð gætir jafnræðisreglu varð- andi meðferð mála. Okkur dómuram er gert að færa skriflegan rökstuðning viðvíkjandi notkun spjalda og greinargerð um fram- kvæmd sýninga til bókar á sama hátt hafa sýnendur og umráðamenn kynbótahrossa skriflegan málskots- rétt til fagráðs viðvíkjandi sömu málum. 6. regla Um dóma á brokki Hætt verður að dæma brokk í taumi, þ.e. allar gangtegundir skulu dæmdar undir manni. Nútíma þjálfunartækni miðast við það að reiðhross geti sýnt allar gangtegundir sem það býr yfir undir manninum, öndvert við það sem var um tíma þegar t.d. brokk var iðulega h'tt þjálfað í reið. Því er ekki lengur ástæða til að veita undanþágu frá sýningu brokksins. Auk þess sem það getur stuðlað að ræktun óæskilegrar hestgerðar (spenna og einhæfni). 7. regla Um dýralœknisvottorð Hætt verður að taka við dýra- læknisvottorðum sem mæla með af- brigðilegri jámingu. Þau hross sem þurfa slík vottorð komi ekki til sýningar eða komi þegar þau era orðin heilbrigð. Það er samdóma álit kynbóta- dómara að of mikið hafi verið um það í gegnum árin að dýralæknis- vottorð hafi verið misnotuð til að koma hrossum í gegnum kynbóta- dóm með afbrigðilega jámingu (þyngingar). Þeirri misnotkun verð- ur að linna. Virkasta aðferðin er að hætta að heimila það að lögð séu Tafla yfir lágmörk til afkvæmaverðlauna stóðhesta Kynbótamat Fjöldi afkv. í Fjöldi afkv. í Verðlaunastig BLUP BLUP-reikn. sýningu Heiöursverölaun 120 eða hærra 50 eða fleiri 12 1. verðlaun 120 eða hærra 15 til 49 6 115 til 119 30 eða fleiri 6

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.