Bændablaðið - 16.10.2001, Side 5
Þriðjudagur 16. október 2001
BÆNDABLAÐIÐ
5
Spáð í hross...
„ Það er svo gaman að vera með okkur". sagði ágætur bóndi í
Viðvíkursveit í Skagafirði þegar hann var spurður um af hverju slíkur
mannfjöldi kæmi í stóðréttina á Laufskálum í Hjaltadal ár hvert. Að
þessu sinni var stóðréttin í lok september. Talið er að um 2000 manns
hafi verið í réttinni - en um 800 hross! Hrossin komu úr afréttinni í
Kolbeinsdal og einnig úr beitarhólfi í sveitinni, en þau eru eign bænda í
Hjaltadal og Viðvíkursveit. Svar bóndans er alls ekki fráleitt, flestir
virðast skemmta sér vel á réttinni og miðað við aðsókn að
skemmtistöðum og ýmsum viðburðum í héraðinu þessa helgi og þeirri
stemningu sem þar var er þetta líklegast skýringin á vinsældum
Laufskálaréttar./ÖÞ
Bændablaðið/Örn
Hér eru menn að spá í hross og viðskipti í Laufskálarétt. Frá vinstri Pálmi
Rögnvaidsson útibússtjóri á Hofsósi Páll Ragnarsson tannlæknir á
Sauðákróki Eiríkur Hansen bankamaður á Sauðákróki og Haraldur Þór
Jóhannsson bóndi í Enni í Viðvíkursveit
Það skaðar ekki að hafa sæmilegt höfufat þegar farið er stóðréttir. Talið
frá vinstri Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn, Magnús Sveinsson
umboðsmaður og Símon Traustason bóndi í Ketu f Hegranesi.
FyrirhuguQ hækkun irygginar-
gjalds áuisun á launalækkun
Arið sagði að rétt væri að hafa
í huga að fá ár eru síðan land-
búnaður og sjávarútvegur máttu
þola mikla hækkun á tryggingar-
gjaldi sem þá var sögð í sam-
ræmingarskyni. "Með þessa for-
sögu í huga er enn erfiðara að una
við þá breytingu sem er í sjónmáli.
Þessi breyting, ef af verður, mun
hvetja til áframhaldandi fækkunar
starfa bæði í landbúnaði og fisk-
vinnslu og þannig veikja enn fá-
menna landsbyggð," sagði Ari og
hann gat þess að hækkun
frítekjumarka hátekjuskatts hefði
lítil sem engin áhrif á afkomu
bænda enda fáir
bændur í þeim skatt-
flokki.
Ari sagði að lækkun
tekjuskatts á félög
muni hvetja bændur til
að færa rekstur sinn í
einkahlutafélög. "Það
veltur þó á skilningi
skattstjóra á högum
bænda hvern ávinning
bændur hafa af því en
skattstjórar fá víðtækt
vald til að ákvarða laun
eigenda einkahluta-
félaga. Afnám verðbólgu-
reikningsskila mun koma sér vel
fyrir þann hóp skuldugra bænda
sem greiðir skatt en að sama skapi
íþyngja þeim bændum sem lítið
skulda. Til lengri tíma litið mun
afnám uppfærslu fymanlegra eigna
þyngja skattbyrði bænda verulega.
Lækkun eignarskatts
einstaklinga mun hins
vegar létta skattbyrði
margra bænda enda
eignir þeirra oft mun
hærra metnar en
eðlilegt getur talist,"
sagði Ari. "Ætla má að
þegar litið er á
breytingamar í heild
hafi sumir bændur hag
af þeim en aðrir út-
gjaldaauka. Eftir
stendur þó að hækkun
launaskatts er fyrir
margra hluta sakir
óæskileg breyting."
"Það er augljóst að að hækkun tryggingagjalds eykur álögur á
landbúnaðinn og voru þær þó ærnar fyrir. Þetta er í raun ávísun á
launalækkun því tæpast er unnt að velta hækkunni yfír í
matvælaverð," sagði Ari Teitsson, formaður Bændasamtakanna, um
fyrirhugaðar breytingar á skattamálum. Ari sagði að stjórn BÍ hefði
ekki fjallað um eða tekið afstöðu til breytinganna á formlegan hátt en
það yrði gert á næsta stjórnarfundi.
Umsóknir um Mög
vegna vatnsveitna
Þeir sem hafa hugsað sér að
leggja nýja vatnsveitu á býli sitt
næsta sumar þurfa að sækja
um framlag til hennar fyrir 15.
nóvember nk., ef þeir ætla að
koma til greina við greiðslu
styrkja í ársbyrjun 2003.
Umsóknareyðublöð má fá hjá
viðkomandi búnaðarsambandi eða
með -því að snúa sér til skrifstofu
Bændasamtaka íslands í Reykjavík.
Þá þurfa þeir sem sóttu um framlag
sl. vetur og fengu jákvætt svar að
hafa lokið veitunni nú í október, því
úttektarvottorð frá héraðsráðunauti
þarf að hafa borist Bænda-
samtökum Islands fyrir 15.
nóvember, ef viðkomandi veita á að
koma til greina við greiðslu
framlaga í ársbyrjun 2002.
Þeir sem sóttu um framlag í
fyrra, en hafa orðið að fresta
framkvæmdum eða tekst ekki að
ljúka veitunni í tæka tíð, þurfa að
endumýja umsókn sína ef þeir
hafa hugsað sér að fara í hana á
næsta ári.
Þeir sem unnu að vatnsveitu á
þessu ári án þess að hafa sótt um
framlag til hennar í fyrra geta sótt
um í ár eins og aðrir, en þeir geta
ekki búist við að fá framlagið fyrr
en að ári eða rösklega það, þ.e. í
ársbyrjun 2003.
Case CX100
Zetor 7341
m 3» ®
m/Trima 4,5 ámoksturstækjum
Skr. ár 1997, vinnust. 4.500
Verð kr. 2.200.000- án vsk
m/Alö 620 ámoksturstækjum
Skr. ár 1998, vinnust. 2.100
Verð kr. 1.830.000- án vsk
m/Alö 620 ámoksturstækjum
Skr. ár 1994, vinnust. 3.330
Verð kr. 1.150.000- án vsk
m/Veto FX16 ámoksturstækjum
Skr. ár 1995, vinnust. 3.070
Verð kr. 1.650.000- án vsk
m/Alö 640 ámoksturstækjum
Skr. ár 1997, vinnust. 1.600
Verð kr. 2.450.000- án vsk
Holland TS115
Zetor 6340 T
6640 SLE
VÉIAVERf
Lágmúli 7 Reykjavík Sími: 588 2600 • Akureyri Sími 461 4007 • www.velaver.is
Með frambúnaði
Skr. ár 2000, vinnust. 650
Verð kr. 3.650.000- án vsk
Skr. ár 1996, vinnust. 2.810
Verð kr. 1.100.000- án vsk
l
l
I