Bændablaðið - 16.10.2001, Síða 15
Þriðjudagur 16. október 2001
BÆNDABLAÐIÐ
15
Fundur í Borgarfirði um framtíð
ylræktunar á grænmeti
Bændur fö aðeins 43% af
laarkaðsvirði afarða siana
Á dögunum hélt Garðyrkju-
bændafélag Borgarfjarðar opinn
félagsfund um stöðu ylræktunar á
grænmeti á íslandi. "Frá því að
Samkeppnistofnun kvað upp
úrskurð sinn í vor hafa margir
garðyrkjubændur verið í óvissu
um framtíðina." sagði Ása
Erlingsdóttir á Laufskálum,
formaður Garðyrkjubændafélags
Borgarfjarðar. Ásta fékk á fundinn
nokkra þeirra sem hafa unninð að
málum garðyrkjumanna - nánar til-
tekið þá Kjartan Ólafsson formann
Sambands Garðyrkjumanna og
þingmann Suðurlands, Sigurgeir
Þorgeirsson framkvæmdastjóra
Bændasamtaka Islands og Georg
Ottósson stjórnarformann Sölu-
félags Garðyrkjumanna. Kjartan
skýrði frá vinnu Grænmetisnefnd-
ar en ekki er enn komin niðurstaða
úr henni þó vonir standi til þau mál
verði farin að skýrast þegar haust-
fundur SG verður haldinn, en það
verður vonandi bráðlega. Sigurgeir
svaraði þeim spurningum bænd-
anna sem sneru að BI og tók þátt í
almennum umræðum sem
spunnust út frá stöðu okkar í dag
og hver framtíðin gæti orðið. Að
lokum tók Georg Ottósson til máls
og fjallaði einna helst um hvemig
dreifíngu yrði háttað á næsta ári
því eftir úrskurð Samkeppnisstofn-
unar var ljóst að einungis væri
leyfilegt að halda óbreyttu ástandi
fram að næstu áramótum. Ása
sagði að margt hefði komið fram í
máli framsögumanna, sem og
einnig bændanna sjálfra, um
hvemig framtíðin liti út. "En það
kom mest á óvart að samkvæmt
upplýsingum SG fá bændur að
meðaltali einungis um 43% af
markaðsvirði afurða sinna. Það er
alveg ljóst að sumar greinar
ylræktar eiga undir högg að sækja
á markaði í dag þrátt fyrir eindreg-
inn vilja manna til að framleiða
gæðavörur," sagði Ása.
Garðyrkjubœndafélag Borgarfjarðar
Saga félagsins hófst á haustmánuðum 1949 þegar garoyrkjumenn í
Borgarfirði tóku höndum saman og stofnuðu félagið í þeim tilgangi að
semja sameiginlega um flutninga á afurðum sínum á markaði í Reykj-
avík. Síðan þá hefur félagið starfað að ýmsum hagsmunamálum fyrir
félagsmenn. En fyrir nokkrum árum voru stofnuð ný hagsmunafélög sem
starfa á landsvísu innan hverrar greinar garðyrkjunnar fyrir sig og litlu
garðyrkjubændafélögin voru ligð niður. Ekki er Ijóst hvort þau voru öll
Iögð niður en þar sem fjölgun var í borgfirska félaginu var ákveðið að
halda starfinu áfram þó það felist einna helst í starfi innan félagsins. Ása
sagði að félagsmenn hefðu nýlega haldið upp á 50 ára afmæli þess og að
þeir vonuðust til að starfið ætti enn eftir að tryggja félagsleg tengsl á
milli bænda í Borgarfirði. "Og við vonum svo sannarlega að okkur verði
kleift að halda áfram okkar starfi til að tryggja þjóðinni ferskt íslenskt
grænmeti," sagði Ása.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Garðyrkjuskóli ríkisins:
Samvinna um nðm i umhverlisskipulagi
Nám í umhverfisskipulagi er
nýtt námsframboð við Landbúnað-
arháskólann á Hvanneyri (LBH).
Með því er boðið upp á fyrri hluta
náms (Bsc) í landslagsarkitektúr /
skipulagsfræðum. Markmiðið með
náminu er að veita nemendum
innsýn í íslenskar aðstæður varð-
andi skipulagsmál í dreifbýli og
þéttbýli. Námið skiptist í skipu-
íags- og náttúrufræðitengd fög.
Samvinnan um námið er milli
LBH og Garðyrkjuskóla ríkisins
að Reykjum í Ölfusi, en námið
hófst á fjögurra vikna verknámi í
september og fyrstu vikuna í
október. Haustið 2001 hófu 8
nemendur nám við brautina, þar af
2 konur. Með þessari nýju braut
eykst námsframboð Landbúnaðar-
háskólans í takt við breytta tíma og
aðstæður í nýtingu lands þar sem
hefðbundinn landbúnaður er að
breytast og nýjar áherslur og iðkun, efnistöku, vegagerð og
greinar bætast við. Ennfremur eru annarri meðferð og mótun lands að
áherslur tengdar útivist, frístunda- breytast./MHH
Nemendur umhverfisskipulagsins sem tóku fjögurra vikna verknám í
Garðyrkjuskólanum. Hér eru þeir staddir ásamt forsvarsmönnum
skólanna beggja, Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Garöyrkju-
skólans.
A DeLaval
Harmony TopFlow
MJALTAKROSSINN
...toppurinn í mjaltatækni
Lágmúla 7,108
Reykjavík,
sími 588 2600
Dalsbraut 1, 603
.—~—y Akureyri, sími 461
VEIAVERf 4007
*Meðan birgðir endast
www.bondi.is
S:530-1700 Fax:530-1717
Eigum á lager allar stærðir og gerðir af
vatnsrörum. REYKIALUNDUR
Síðan 1956
Tengi og lokar í miklu úrvali