blaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 16
fó I MATUR
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2005 blaA'lö
Kjarval með
skiptisamning
Blaíió/Steinar Hugi
Hótel Holt var opnað árið 1965. Einn
helsti veitingamaður landsins á
síðustu öld, Þorvaldur Guðmunds-
son, átti heiðurinn af opnuninni en
hann var þekktur sem einn fremsti
og færasti gestgjafi landsins.
f átján ár rak Þorvaldur einnig
veitingastað í kjallara Þjóðleikhúss-
ins og byggði veitingastaðinn Lídó
sem vakti gríðarmikla athygli og
fékk lofsamlega umfjöllun á sínum
tíma.
Þegar Þorvaldur rak Þjóðleik-
húskjallarann var staðurinn ávallt
uppfullur af fólki sem vildi lyfta sér
upp og þá var oft mikið um áfeng-
isdrykkju. Það kom fyrir að fólk
kynni sér ekki hóf í þeim efnum og
þá brá Þorvaldur á það ráð að bera
fram snittur um miðnætti til að
draga athygli fólks frá áfenginu. Það
uppátæki vakti mikla lukku hjá gest-
um hans sem skemmtu sér oftar en
ekki betur þegar maginn hafði feng-
ið sína fylli og fjörið gat því haldið
áfram.
Frá upphafi hefur Hótel Holt lagt
mikla áherslu á list og þegar gengið
er inn í anddyri þess blasa við lista-
verk helstu listamanna þjóðarinnar.
Frægt er að enginn annar en Kjarval,
helsti listamaður okkar íslendinga,
kom iðulega á Holtið að borða og gaf
málverk í skiptum fyrir máltíðina.
Einnig er í andyrinu að finna forláta
standklukku sem hefur þjónað hlut-
verki tímavarðar í tvöhundruð ár.
Eldhúsið á Holtinu hefur löngum
verið þekkt fyrir gæði og metnað.
Frönsk áhrif svífa þar yfir vötnum
en íslenska matarmenningin fer þó
aldrei langt. Islenska lambakjötið er
í stóru hlutverki á Holtinu og aldrei
hefur verið settur saman matseðill
sem ekki skartar íslenska lambinu.
Elsti rétturinn á seðlinum hefur ver-
ið óbreyttur frá 1966, graflax sem
fellur í kramið hjá öllum sem hann
smakka. ■
Ólafur Haukur Magnússon og Hafþór Sveinsson
Láttu það eftir þér
Hádegismatseðill Holtsins er
í senn fjölbreyttur og létt-
ur. Boðið er upp á rétti sem
hafa verið á matseðlinum svo árum
skipti auk þess sem alltaf eru ein-
hverjar nýjungar að finna.
Hádegistilboðið á Holtinu er hag-
stætt og það ætti að vera á allra færi
að láta það eftir sér að skreppa í dek-
ur eina hádegisstund.
Ólafur Haukur Magnússon og
Hafþór Sveinsson eru kokkar á Holt-
inu og hafa verið síðan árið 2000.
„Það er létt stemning yfir hádegis-
matnum hjá okkur. Fólk getur þess
vegna komið i gallabuxum og peysu,
það eru engar kröfur gerðar um
formlegan klæðaburð svo það er lít-
ið mál að skreppa bara úr vinnunni,"
segir Ólafur.
Hádegishlaðborðið samanstend-
ur af þremur réttum, forrétt, aðal-
rétt og eftirrétt. Tveir réttir kosta
2200 krónur, hvort sem það er aðal-
réttur og eftirréttur eða aðalréttur
og forréttur. Að sjálfsögðu er fyrsta
flokks þjónusta innifalin en á Holt-
inu starfa aðeins fulllærðir þjónar
og þjónanemar.
„Við förum yfir matseðilinn á
tveggja vikna fresti og breytum og
bætum. Hins vegar skiptum við út
fiskréttunum á vikufresti, alltaf
á þriðjudögum þannig að það eru
alltaf nýir fiskréttir vikulega," segir
Hafþór.
Ef allir þrír réttirnir eru keyptir
er verðið 2800 og ef kaffi og konfekt
er keypt til að gæða sér á að máltíð
lokinni bætast 300 krónur við. Þann-
ig að hægt er fá fyrsta flokks þriggja
rétta máltíð ásamt kaffi og konfekt
á aðeins 3100 krónur. Þess virði að
eyða hádeginu í gamalgrónu og
sögulegu umhverfi.
Aðalréttur
Ofnbökuð bleikja með Jerúsalem æti-
þistlamauki og langtímaelduðum tómöt-
um og extra virgin ólivuoiíu.
________infiinniiii ^ ,r„, IHlMtfl
Forréttur BiaölH/SlemarHagi
Djúpsteiktir sniglar "tempura" og langtímaeldaður kalkúnn með graskersmauki og
rósmarínfroðu.