blaðið - 03.08.2005, Blaðsíða 32
32 I MEWWIWG
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 blaöið
Höfundur Péturs Pan
I Bretlandi er komin út ævisaga JM
Barrie eftir Lisu Chaney. Barrie er
höfundur leikritsins og sögunnar
sígildu um Pétur Pan en um tilurð
þess verks var gerð myndin Finding
Neverland sem hlaut mikið lof gagn-
rýnenda en þar fór Johnny Depp
með hlutverk höfundarins.
Nokkrar ævisögur hafa verið
skrifaðar um ævi Barries, enda var
hann áhugaverður maður um margt.
Hann lifði alla tið í ævintýraheimi
og kunni lítil skil á raunveruleikan-
um, nokkuð sem hlýtur að gera ævi-
sagnahöfundum erfitt fyrir.
f draumaheimi
Þegar Barrie var barn lést bróðir
hans David sem hafði verið eftir-
læti móðurinnar. Sorg hennar varð
svo gríðarleg að Barrie leit svo á að
hún væri að hafna honum. Hann
kvæntist leikkonu en hjónabandið
var óhamingjusamt frá upphafi. Eig-
inkona hans sagðist vera hrifnari af
hundum en karlmönnum og Barrie
var greinilega hrifnari af ungum
drengjum en eiginkonu sinni. Ekki
er furða þótt hjónabandinu hafi lok-
ið með skilnaði.
Samband Barrie við fimm syni
vinkonu hans Sylviu Llewlyn Davies,
hefur vakið miklar vangaveltur ævi-
sagnaritara hans sem sumir vilja
halda því fram að höfundurinn hafi
haft óeðlilegar hneigðir til ungra
drengja. Slikt lýsir þó hugsanlega
skorti ævisagnaritaranna á ímynd-
unarafli því Barrie lifði í drauma-
heimi og tilbað barnslegt sakleysi.
Samband Barrie við drengina varð
uppsprettan að Pétri Pan, drengn-
um sem neitaði að verða fullorðinn.
Dapurleg örlög
Sylvia og Arthur, eiginmaður henn-
ar, létust um aldur fram og Barrie
gekk drengjunum í móður og föður
Finding Neverland fjallaði um Barrie og samband hans við Sylviu Llewlyn Davies og syni hennar. Johnny Depp og Kate Winslet fóru
með aðalhlutverkin.
JM Barrie. Ný ævisaga er komin út um höfund Péturs Pan.
stað. Hann hafði greinilega mikla
ást á þeim en sá kærleikur var stund-
um kæfandi því Barrie sogaði orku
úr þeim sem hann umgekkst mest.
Örlög drengjanna urðu dapurleg.
Einn þeirra féll í fyrri heimsstyrj-
öldinni, annar fyrirfór sér og sá
þriðji kastaði sér fyrir lest mörgum
árum síðar. Einungis yngsti sonur-
inn, Nico, varð gamall maður. Hann
harðneitaði því alla tíð að eitthvað
ósæmilegt hefði gerst í samskiptum
Barries við þá bræðurna.
Þessi merkilega og dapurlega saga
er meginþemað í nýju ævisögunni
sem nefnist Hide and Seek with Ang-
els: A Life of JM Barrie. _
Ævisaaa
kveikir vísur
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
vinnur nú að þriðja og síðasta bindi
verks um Halldór Kiljan Laxness sem
kemur út um næstu jól. Kallast það
Laxness og er um árin 1948-1998 í ævi
skáldsins. Hannes hefur verið ötull
við að lcynna fyrri bindi sín og þegar
hann var að lesa upp úr verki sínu um
Halldór Kiljan Laxness hjá eldri borg-
urum í Gullsmára í Kópavogi, fékk
hann góðar undirtektir, og köstuðu
tveir eldri borgaranna fram vísum.
Önnur var á þessa leið:
Hannes Hólmstein hérna finnum,
hans vér ætíð fögnum kynnum.
Um hann hefur áður gustað,
á hann vil ég geta hlustað.
Hin vísan hljóðaði svo:
Hannes á vitið og viljann,
þótt vont þyki ýmsum að skilj’ann.
Hann tók saman bók,
sem taugarnar skók,
og tefldi fram Halldóri Kiljan.
Marlon Brando. Skáldsaga eftir þennan fræga leikara kemur út í næsta mánuði.
Skáldsaga eftir Brando
í næsta mánuði gefur Knopf bóka-
útgáfan út skáldsögu eftir Marlon
Brando. Brando skrifaðibókina, Fan-
Tan, á áttunda áratugnum ásamt
félaga sínum, Donald Cammell. Þeir
félagar lokuðu sig af í átta mánuði á
eyju Brandos, Tetiaroa, og sátu við
skriftir og fengu fjölskyldumeðlimi
til að semja samtöl í bókina.
Verkið gerist á þriðja áratugnum
og segir sögu ævintýramanns. Kven-
sjóræningi tælir hann til að stela
silfri úr bresku skipi og í kjölfarið
fylgja bardagar og fleiri rán. Kvik-
myndafræðingurinn David Thom-
son ritstýrir bókinni, skipti henni
í kafla, tók út endurtekningar og
skrifaði lokakaflann og eftirmála.
Einn af ritstjórum Knopf útgáf-
unnar segir greinilegt að Brando
sjálfur sé fyrirmyndin að aðalper-
sónunni sem er karlmaður sem heit-
ir Annie Doultry. Hann er feitur og
laðast að asískum konum, alveg eins
og Brando. Nokkra athygli vekur að
karlmaðurinn ber kvenmannsnafn
en kvikmyndafræðingurinn Thom-
son segir að það hafi verið alveg eftir
Brando að fara slíka leið og minnir
á að í eitt af síðustu skiptunum sem
Brando kom fram opinberlega hafi
hann svarað spurningum nemenda
klæddur í kvenmannsföt.
Bæði Brando og Cammell áttu
sér samkynhneigða hlið og vinátta
þeirra var mjög ástríðufull þótt eng-
ar sannanir sé um að þeir hafi átt í
ástarsambandi. Cammell framdi
sjálfsmorð árið 1996 og Brando lést
á síðasta ári.