blaðið - 03.08.2005, Síða 30
30 I ÍPRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR 3. ÁGUST 2005 Maöiö
West Ham reynir
aðnáíAdebayor
Alan Pardew framkvæmdastjóri
enska úrvalsdeildarliðsins West
Ham United gerir miklar vonir
um að fá hinn 2i.árs gamla
ffamherja Mónakó, Emmanuel
Adebayor, til liðs við Hamrana.
Adebayor og forráðamenn Mó-
nakó eru ekki samstíga þessa
dagana eftir að leikmaðurinn
lenti uppá kant við þjálfara
félagsins. Adebayor sem er
landsliðsmaður Togo er sagður
vera verðlagður á 685 milljónir
íslenskra króna en forráðamenn
West Ham voru í Mónakó um
síðustu helgi. Þeir gera sér mikl-
ar vonir um að ná í Adebayor
þar sem áhugi Mónakó á Louis
Saha leikmanni Manchester
United er mikill og ef Adebayor
fer til West Ham er talið nánast
öruggt að Mónakó bjóði í Saha.
Ballack til rauðu djöflanna?
Breska blaðið The Guardian
skýrði fr á því í gær að þýski
landsliðsmaðurinn Michael Ball-
ack sem leikur með þýsku meist-
urunum í Bayern Munchen, sé
á förum ff á Bayern eft ir lok
næstu leiktíðar. The Guardian
telur sig vera með mjög traustar
heimildir fyrir því að Baliack
og Manchester United hafi
náð samkomulagi um að hann
komi til félagsins eftir næstu
leiktið. Samningur leikmanns-
ins við Bayern Munchen rennur
út næsta sumar en Michael
Ballack er einn aðalleikmaður-
inn í hði Bayern Munchen og
þýska landsliðsins. Það yrði
vissulega mikið áfall fyrir þýsku
meistarana að missa Ballack til
Manchester United en orðrómur
um það hefur verið í gangi að
undanfömu. Michael Ballack
er heimilt að skrifa undir hjá
United í janúar næstkomandi.
HvertferOwen?
Miklar vangaveltur em í Bret-
landi um hvert fótboltastjarnan
Michael Owen fari fyrir næstu
leiktíð. Owen sem er samnings-
bundinn spænska stórhðinu Real
Madrid fer nánast örugglega ffá
félaginu þar sem Real Madrid
keypti nýverið undradrenginn
Robinho sem er ffá Brasilíu og
þá var Julio Babtista einnig keypt-
ur til Real. Það er alveg klárt að
Vanderlei Luxemburgo þjálfari
Real Madrid komi til með að
nota Robinho, Ronaldo og Raul
ffekar en Michael Owen á næstu
leiktíð. Owen verður að hugsa
um ff amtíð sína og þá má ekki
gleyma þeirri staðreynd að úr-
shtakeppni Heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu er næsta
sumar. Mörg hð hafa verið nefhd
að undanförnu sem hugsanlegir
kaupendur á leikmanninum og
nægir í því sambandi að nefna,
Liverpool, Manchester United,
Arsenal, Chelsea og nú síðast
Newcastle United. Rafael Benitez
ffamkvæmdastjóri Liverpool og
Arsene Wenger ff amkvæmdstjóri
Arsenal sögðu fyrir helgi að þeir
ætluðu sér ekki að bjóða í Owen
og Chelsea virðist einnig vera
hrokkið úr skaft inu. Keppnin
virðist því vera orðin á milli
Manchester United og Newcastle
United en Graeme Souness stjóri
hjá Newcastle hefúr löngum
verið mikill aðdáandi þessa 25
ára gamla sóknarleikmanns.
Spurningin virðist því vera
hvort Owen verði í svart-hvítu
í vetur eða í rauðu og hvítu.
ísland mætir Kolumbíu á Laugardalsvelli i7.ágúst
UEFA Super Cup • Mónakó • 26. ágúst 2005
LiverpaoJ FC
CSKA Mosl
Skréðu þig í FótboiUiklúbb MdstorCard á
www.kreditkort.is, notaðu MasterCard* kortiö þitt til
11. ágúst og þú gætir vcrið á lciðinni é stórlcik í
Mónakó: UEFA Champions League meistararnir I
Liverpool mæta UEFA Cup meisturunum í CSKA
Moskvu.
Meira i www.krcditkort.is
A-landslið íslands og Kolumbíu mæt-
ast á Laugardalsvellinum íyágúst
næstkomandi í vináttulandsleik í
knattspyrnu. Landslið Venezúela
átti að koma hingað en þeir afboð-
uðu komu sína og því urðu forráða-
menn KSÍ að bregðast skjótt við ef
við ætluðum að fá landsleik á þess-
um degi.
„Venezúela gat ekki komið og afboð-
aði komu sína á síðustu stundu og
við urðum því að hafa snar handtök
í að verða okkur úti um annan leik.
Það tókst sem betur fer og við erum
mjög ánægðir með að fá Kolumbíu
hingað til lands. Þetta er feykilega
sterkt lið og nægir í því sambandi
að nefna að þeir eru í 25.sæti á styrk-
leikalista alþjóða knattspyrnusam-
bandsins", sagði Geir Þorsteins
son framkvæmdastjóri KSÍ
í samtali við Blaðið í gær.
Þetta er í fyrsta sinn
sem landslið þessara
þjóða mætast á knatt
spyrnuvellinum og
frá Kolumbíu hafa
nokkrir þekktir
leikmenn komið
og nægir í því
sambandi að nefna hinn hárprúða
Carlos Valderama og Freddie Rin-
con. Kolumbía hefur fjórum sinnum
komist f úrslitakeppni Heimsmeist-
aramótsins, 1962,1990,1994 og 1998.
Þeirra besti árangur í úrslitakeppn-
inni er í 16-liða úrslit. Kolumbía er
nú sem stendur í 5.sæti suður-amer-
íkuriðils undankeppni HM. Liðið er
með 20 stig þegar þrjár umferðir eru
eftir en fjögur efstu liðin komast í úr-
slitakeppni HM. Liðin sem Kolumb-
ía er að keppa hvað harðast við að
komast til Þýskalands eru Paraguay
sem hefur 22 stig og Ekvador sem er
með 23 stig en Kolumbía á eftir að
mæta báðum þessum liðum áður
en undankeppninni lýkur. Frægasti
leikmaður hjá Kolumbíu í dag er án
efa framherjinn Juan Pablo Angel
sem leikur með enska úrvalsdeild-
arliðinu Aston Villa. Það verður
sannarlega gaman að fylgjast með
þessum snjalla leikmanni á Laugar-
dalsvellinum þann i7.ágúst.
Ásgeir og Logi völdu 1
nýliða í hópinn
Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigur-
vinsson og Logi Ólafsson völdu í gær
landsliðshópinn gegn Kolumbíu
og 1 nýliði er í hópnum. Valsmaður-
inn Bjarni Ólafur Eiríksson er í leik-
mannahópi íslands en Bjarni Ólafur
hefur leikið feikivel með Valsmönn-
um í sumar og er verðlaunaður með
sæti í A-landsliðshópi Ásgeirs og
Loga.
Hópurinn er annars skipaður
eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir:
Árni Gautur Arason
Kristján Finnbogason
Aðrir leikmenn:
Heiðar Helguson
Auðun Helgason
Ólafur Örn Bjarnason
Kristján Örn Sigurðsson
Indriði Sigurðsson
Gylfi Einarsson
Veigar Páll Gunnarsson
Stefán Gíslason
Grétar Rafn Steinsson
Kári Árnason
Válerenga
KR
Fram
Hermann Hreiðarsson
Charlton
Brynjar Björn Gunnarsson
Reading
Arnar Þór Viðarsson
Lokeren
Eiður Smári Guðjohnsen
Chelsea
Tryggvi Guðmundsson
FH
Fulham
FH
Brann
Brann
Genk
Leeds United
Stabœk
Lyn
YoungBoys
Djurgárdens
Hannes Þ. Sigurðsson
Viking Stavanger
Helgi Valur Daníelsson
Fylkir
Haraldur Freyr Guðmundsson
Aalesund
Jóhannes Þ. Harðarson
Start
Bjarni Ólafur Eiríkssq^
Valur
ÍÞRÓTTIR
Valtýr Björn
Island steinlá fyrir Dönum
bikarnum í kvöld
íslenska drengja-
landsliðið í knatt-
spyrnu átti ekki
mikla möguleika
gegn jafnöldrum
sínum frá Dan-
mörku í gær þegar
Norðurlandamótið
hófst hér á landi. ís-
land og Danmörk eru
í A-riðli og íslensku
piltarnir lentu snemma
0-1 undir. Danir bættu síðan
þremur mörkum við áður en
flautað var til leiksloka og strák-
arnir hans Lúka Kostic lentu eigin-
lega á vegg í fyrsta leiknum.
Byrjunarlið (slands í gær
var þannig skipað:
Haraldur Björnsson var í markinu.
Aðrir leikmenn voru, Guðmundur
Kristjánsson, Jósef Kristinn Jósefs-
son, Björn Orri Hermannsson sem
var fyrirliði, Fannar Þór Arnarsson,
Jón Kári ívarsson, Aron Einar Gunn-
arsson, Oddur Ingi Guðmundsson,
Viktor Unnar Illugason, Steinn
Gunnarsson og Guðmundur Reynir
Gunnarsson.
írland og Noregur mættust einnig
í gær í A-riðli mótsins og þar unnu
írar 3-2.1 B-riðli gerðu Færeyjar og
Svíþjóð 1-1 jafntefli og England vann
Finnland 3-2.
Island mætir írum í dag í Kefla-
vík klukkan 14.30. ■
Fyrri leikur undanúrslita VISA-bik-
arkeppni KSÍ í karlaflokki fer fram
í kvöld. Þá mætast á Laugardalsvelli
Fram og FH. Leikur liðanna hefst
klukkan 19.40 og eins og flestir vita
verður leikið til þrautar. Ekkert
jafntefli er í gildi í kvöld.
Það verður að segjast eins og er að
hefðin er svo sannarlega með Fram
en ekki FH ef árangur í bikarkeppn-
inni er skoðaður. Fram hefur leikið
alls 14 sinnum til úrslita og unnið 7
bikartitla en FH hefur þrisvar sinn-
um leikið til úrslita í bikarkeppn-
inni en aldrei unnið. Síðast lék FH
til úrslita í bikarnum fyrir þremur
árum gegn ÍA þar sem skagamenn
urðu bikarmeistarar. Framarar léku
síðast til úrslita fyrir tveimur árum
þegar Fylkir vann Fram 3-1 í úrslit-
um. Fram varð síðast bikarmeistari
árið 1989 þegar þeir unnu KR 3-1 í
úrslitum.
FH verður án tveggja
sterkra leikmanna
FH-ingar verða án tveggja sterkra
lykilmanna í kvöld. Tommy Niels-
en er enn meiddur og Davíð Þór
Viðarsson tekur út leikbann. Heim-
ir Guðjónsson fyrirliði hefur verið
meiddur í baki en hann er leikfær í
kvöld. „Ég er alveg klár í slaginn í
kvöld. FH hefur náttúrulega aldrei
unnið bikarinn og það er kominn
tími til að breyta því. Verkefnið í
kvöld er krefjandi og við ætlum að
standa okkur í kvöld. Okkur hefur
oft ekki gengið neitt sérstaklega vel
með Fram en vonandi verður breyt-
ing á því í kvöld. Við ætlum okkur í
stærsta leik sumarsins sem er bikar-
úrslitaleikurinn. Fram er með góða
leikmenn og ég sá þá á móti Þrótti og
þeir eru með fljóta leikmenn í fram-
línunni sem við verðum að vera vel
vakandi varnarlega séð. Staða Fram-
ara í deildinni segir ekki til um rétta
mynd að mínu mati með getu liðsins,
þannig að þetta verður hörkuleikur“,
sagði Heimir Guðjónsson fyrirliði
FH um leikinn gegn Fram í kvöld í
samtali við Blaðið í gær.
Framarar verða án írans Ross
McClynn sem er meiddur og Kim
Norhölt leikur ekki meira með í sum-
ar þar sem hann er með slitna hásin.
Eggert Stefánsson sem hefur verið
meiddur verður í leikmannahópi
Fram í kvöld. Þá er Hans Mathiesen
einnig tilbúinn í slaginn en hann
var meiddur og þá verður Sviinn Jo-
han Karlefjárd í hópnum hjá Fram
í kvöld.
Ríkharður Daðason fyrirliði Fram
er bjartsýnn fyrir leikinn gegn FH í
kvöld. „Ég er fullur tilhlökkunar.
Það er úrslitaleikur í boði og ef það
er ekki nóg fyrir mann að hlakka til
þá veit ég ekki hvað það á að vera.
Við erum á uppleið að mér finnst og
síðustu tveir leikir hafa verið ágætir.
Mér fannst við hafa spilað vel gegn
FH þegar við mættum þeim í deild-
inni fyrr í sumar en núna er það bik-
arinn. Þeir eru búnir að vera mjög
góðir í sumar en það styttist í að
FH tapi leik. Það er engin pressa á
okkur. Það reikna allir með sigri FH
í þessum leik en við ættum að geta
mætt afslappaðir í leikinn í kvöld“,
sagði Ríkharður Daðason fyrirliði
Fram í samtali við Blaðið í gær
Leikinn í kvöld dæmir Egill Már
Markússon og honum til aðstoðar
verða Einar K.Guðmundsson og
Einar Sigurðsson. Varadómari í
leiknum í kvöld verður svo Ólafur
Ragnarsson. ■