blaðið - 20.10.2005, Síða 37
blaöið FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2005
DAGSKRÁ I 37
Stallone
samþykkir
enn aðra Rockyá
Sylvester Stallone hefur staðfest að hann muni koma fram í sjöttu
bíómyndinni sem gerð verður um Rocky Balboa. Hann mun skrifa
og leikstýra myndinni ásamt því að leika hetjuna. Hnefaleikakapp-
inn Antonio Tarver er í samningaviðræðum um að leika andstæð-
ing Rocky í hringnum. Stallone sagði í viðtali: „Við munum reyna
að ná frumkrafti fyrstu tveggja myndanna.“
EITTHVAÐ FYRIR.
..húmorista
Skjár 1, Silvía Nótt kl. 22:00
Frægasta frekjudós landsins snýr aft-
ur í haust og heldur áfram að stuða
áhorfendur með sínum óútreiknan-
legu uppátækjum og dekurstælum.
Egóið hefur aldrei verið stærra enda
sló þessi margumtalaða pabbastelpa
rækilega í gegn á nýliðnu sumri og
þátturinn hennar var einn af vinsæl-
ustu þáttum sumarsins og án efa sá
umdeildasti.
..œvintýragjarna
Sirkus, Ástarfleyið(i:n),kl.22.oo
Sirkus er farin af stað með stærsta
verkefnið sitt i haust, veruleikaþátt-
inn Ástarfleyið. 14 heppnir umsækj-
endur, sjö af hvoru kyni, fá tækifæri
til að kynnast nýju fólki, nýju landi
og sjálfum sér upp á nýtt um borð
í ævintýraskútunni Ástarfleyinu.
Flogið verður til Tyrklands þar sem
Ástarfleyið siglir úr höfn frá gulln-
um og seiðandi ströndum hinnar
dularfullu Marmaris.
Lana Kolbrún Eddudóttir er með þáttinn Litla flugan sem er á dagskrá Rásar 1 á fimmtu-
dagsmorgnum og jazzþáttinn 5/4 sem er á dagskrá Rásar 1 síðdegis á föstudögum.
Hvernig hefurðu það í dag?
Ég hef það bara ansi gott í dag.Veðrið
er gott og ég er búin að drekka fullt af
Cappuccino.
H venær byrjaðirðu fyrst að vinna í
útvarpi?
Ætli við verðum ekki bara að segja í Ríkis-
útvarpinu 1991. Var meðeinhverja þætti
á útvarpi Rót, en í fyrsta sinn sem ég var í
fullu starfi í útvarpi var hjá RÚV.
Er vinnan í fjölmiðlum öðruvísi en þú
hafðir ímyndað þér?
Ég veit ekki. Þetta líkist eiginlega engri
annarri vinnu sem ég hef unnið. Mér
finnst gott að vinna við tónlist. Mér leiöist
aldrei á meðan. Maður getur þá alltaf
sett eitthvað á fóninn sem gleður manns
hjarta. Ég myndi segja að það væru svolít-
il forréttindi, og meiri forréttindi en maður
gerir sér grein fyrir. í fjórtán ár er maður
búinn að vera með þennan „heddfón" á
hausnum, og maður væri ábyggilega
dáinn ef það kæmi ekki stundum eitthvað
gott úrhonum.
Ætlaðirðu að verða útvarpskona þegar
þú varst lítil?
Nei. Mig langaði að verða flugmaður.
Þetta er löng saga og full af einhverjum
tilviljunum, bara. Afa fannst ég alltaf tala
voða mikið samt. Hann hefur kannski
skynjað svona hvert stefndi, nema gamli
maðurinn hélt að ég myndi enda á þingi.
En þetta er nú svipað.
Gætirðu lýst dæmigerðum degi í lífi
Lönu Kolbrúnar?
Ég vakna seint, yfirleitt seinna en ég
ætlaði mér. Helli upp á mikið Cappuccino
þegar ég er komin í vinnuna. Hlusta svo
þar til eyrun eru orðin full. Mestum tíma
eyði ég í að hlusta og drekka kaffi, og
lesa og skrifa. Hleyp líka svona 70
ferðir niður í safn að finna plötur.
Maður heldur sér í formi með því
að hlaupa stigana.
Hvað er skemmtilegasti tími
dagsins, þinn uppáhalds tími?
Það er þegar ég fer út á morgn-
ana og veðrið er gott. Veður
og frískt loft. Svo er líka voða
gaman að strjúka kettinum. Á
morgnana er hann voða kelisjúk-
ur og þá eigum við smá stund,
ég og hann.
Hver er síðasti draumur sem þú
manst eftir að hafa dreymt?
Bara martröðin sem ég fékk í nótt. Ég
man ekkert hvernig hún var, bara að ég
vaknaði upp frá henni, og ég er með
hálsríg ennþá.
9hi
Hefur einhvern tíma eitthvað neyðar-
legt komið fyrir þig í útvarpinu?
Það er tæknimaður hérna sem hefur
laman að þvl að hrekkja fólk. Einu sinni
irekkti hann mig mjög snemma morguns,
þegar ég var í morgunþættinum, og ég
var að lesa andlátsfregn. Eðli málsins sam-
kvæmt var þetta frekar dramatískt. Svo lít
ég upp og á hann og þá hafði hann sett
upp kafaragleraugu, og ég fór að hlægja.
Ég var svolítið reið við hann.
Ef þú værir dýr, hvaða dýr værirðu og
af hverju?
Ég væri köttur því ég er í eðli mfnu frekar
löt.
Hver myndir þú vilja að væri lokaspurn-
ingin í þessu stutta spjalli?
Ég myndi vilja að hún væri: „Hver er uppá-
halds tónlistin þín?" og þá myndi ég svara
„Jazz, og get ekki gert upp á milli Charles
Mingus og Miles Davis".
^jóMsvEir,^
UÍTAHA^Í
...to cm frá dansgóffinu! VÍta.mln.ÍS
iiií sSBÍísSí; d ét &i' K & SSÍ 9
Hvert er uppáhalds sjónvarpsefnið þitt?
Ágúst Arnar Ágústsson
Grínefni
Óðinn Ómarsson
Simpsons
Leifur Grétarsson
Gamanþættir
Tómas Óttar Eiríksson
Ekki raunveruleikaþættir en
uppáhalds þættir myndi ég
segja að væru Lost á Rúv en
égerspennufíkill
Eðvar Ingi Björgvins-
son
CSI og aðrir þættir á
Skjál
Cellie McDonald
O.C og Survivor
, Nýtt upplgg
komið í búðir!
Gamla gó&a Kaupmannahöfn er nauSsynlegur
og bráSskemmtilegur ferSafélagi í Köben,
full af litmyndum og fróSleik um götur,
fólk og byggingar.
Salka Ármúla 20 • simi 552 1122 • www.salkaforiag.is