blaðið - 28.12.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 blaöið
blaði
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
m
\
Sem betur fer er von á betra veðri um ára-
mótin en var á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Áramótaveðrið:
Útlit fyrir
gott veður
Veðrið á höfuðborgarsvæðinu í gær
minnti menn á hve veðurguðirnir
geta haft mikil áhrif á stemninguna
á gamlárskvöld. Rok, rigning og
rakettur fara ekki vel saman en sam-
kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu
íslands þurfa menn ekki að örvænta
því údit er fyrir hið ágætasta veður,
að minnsta kosti vestanlands. Ihedór
Freyr Hervarsson veðurfræðingur
er bjartsýnn á áramótaveðrið. „Þetta
lítur bara alveg ágætlega út,“ segir
Theodór. „Það verður lftdega hæg
austan átt á gamlársdag. Einna helst
er úrkomu að vænta Austanlands
en hún verður ekki í miklum mæh.
Hér vestan til gæti bara orðið bjart
yfir eins og staðan er f dag.“ Það eru
því Utlar líkur á því að veðrið um
áramótin verði eitthvað í líkingu við
vatnsviðrið sem var á höfuðborgar-
svæðmu í gær. „Hins vegar Utur ekki
eins vel út fyrir þá sem vilja fagna á
Nýársdag, en þá fer að færast fjör í
leikinn. En það er ennþá dáUtið langt
fram í tímann og ekki gott að spá
um það á þessari stundu." Skotglaðir
íslendingar ættu því að kætast þessi
áramótin og taka á móti nýju ári með
tilheyrandi sprengjugný og ljósadýrð.
MFS-einingu lokað á Landsspítala
„Framþróun frekar en skref afturábak," segir sviðsstjóri hjúkrunar á Kvennadeild.
Hinni svokölluðu MFS-einingu,
sem hefur veitt samfellda þjónustu
fyrir konur á höfuðborgarsvæðinu
á meðan að meðgöngu stendur,
verður lokað innan skamms. MFS,
sem stendur fyrir meðganga-fæð-
ing-sængurlega, hefur veitt verð-
andi foreldrum samfellda þjónustu
sömu ljósmóður f gegnum alla með-
gönguna, á meðan að á fæðingunni
stendur og eftir að barnið er komið í
heiminn. Markmið MFS hefur verið
að stuðla að persónulegri þjónustu
og fræðslu þar sem leitast er við að
mæta þörfum hvers og eins.
Samkvæmt yfirvofandi breyting-
artillögum á að fela heilsugæslum al-
farið umsjón með þessari samfelldu
þjónustu. Margrét I. Hallgrímsson,
sviðstjóri hjúkrunar á Kvennadeild
Landsspítalans Háskólasjúkrahúss
og yfirljósmóðir, segist þó ekki
kjósa að tala um eiginlega niður-
fellingu á starfsemi MFS heldur sé
um ákveðna framþróun að ræða.
„Nú eru allar heilsugæslur komnar
með ljósmæður og heilsugæslu-
stöðvarnar leggja mikinn metnað í
samfellda þjónustu. Þannig að það
mætti eiginlega segja að þetta sam-
fellda þjónustuform sem er í MFS sé
búið að dreifa sér út á heilsugæsluna.
Ég kýs nú ekki að kaUa þetta niður-
lagningu á þessari starfsemi heldur
erum við að þróa þetta aðeins áfram
og breyta,“ segir Margrét.
Skref afturábak segir
Ijósmæðrafélag íslands
Margrét segir að það sem muni
gerast með yfirvofandi breytingu sé
það að heilsugæslunni verði alfarið
falið að sinna þessari samfelldu þjón-
ustu við verðandi foreldra. „Það
sem við erum í raun að gera er að
opna Hreiðrið meira fyrir öllum
eðlilegum fæðingum, þannig að
við erum eiginlega bara að svara
eftirspurninni. Við ætlum að búa
til fæðingareiningu fyrir allar eðli-
legar konur, það er að segja konur
sem eru ekki í neinni áhættu og ætla
sér að fæða eðlilega án mænurótar-
deyfingar. Ég tel þetta frekar verða
framþróun en eitthvað skref aftur-
ábak. Þessi ákvörðun er nú bara að
ganga í gegn en auðvitað eru alltaf
einhverjar óánægjuraddir. En ef ég
ætti að dæma þær raddir sem ég hef
heyrt þá myndi ég frekar segja að
MFS-einingunni, sem þjónustar konur f gegnum fæðingarferlið, verður bráðlega lögð
niður og þjónustan færð til heilsugæslustöðvanna.
ég hafi heyrt raddir um að þetta sé
réttara skref heldur en að viðhalda
einhverju bara til þess að viðhalda
því. MFS er bara búið að skila
sínu hlutverki og mér finnst það
frábært í rauninni því að sá hópur
sem stendur að MFS er virkilega
grunnurinn að því að veita samfellt
þjónustuform að mínyu mati,“ segir
Margrét.
Guðlaug Einarsdóttir, formaður
Ljósmæðrafélags Islands, hafði
ekki heyrt um þessar yfirvofandi
breytingar þegar Blaðið hafði sam-
band við hana en sagðist sjá lokun
MFS-einingarinnar frekar sem aft-
urför heldur en hitt. Hún ítrekaði
þó að hvorki henni né félaginu hefði
borist neinar tilkynningar um hvað
fælist í breytingunum nákvæmlega
né hvað ætti að taka við.
Heilbrigöisráðherra segir
gagnrýni ekki sannfærandi
Telur gagnrýna doktorsritgerð algerlega oftúlka mögulegar hœttur.
Gagnrýni sú er fram kemur í dokt-
orsritgerð Sigurbjargar Sigurgeirs-
dóttur, doktors í stjórnsýslufræðum,
lýtur meðal annars að fyrirhugaðri
byggingu hátæknisjúkrahúss. I
henni segir að hætt sé við því að
„fjárlaganefnd finni til aflsmunar
frammi fyrir „háþekkingunni" og
að erfitt geti verið fyrir nefndina
að standa hátæknisérfræðingunum
á sporði þegar kemur að ákvörðun
fjárveitinga." Sigurbjörg heldur því
einnig fram að hætt sé við því að
þeim sem ekki teljist rannsóknar-
lega áhugaverðir né hátæknikrefj-
andi, líkt og til dæmis eldri borgarar
eða öryrkjar af ýmsum toga, verði
úthýst úr heilbrigðiskerfinu að ein-
hverju leyti.
Jón Kristjánsson, heilbrigðisráð-
herra, segist ekki vera sammála
þessum ályktunum Sigurbjargar.
„Mér finnst þetta alger oftúlkun. Það
sem við erum að gera er að byggja
yfir bráðadeildirnar og sameina þær.
I því á að felast mikil hagkvæmni
bæði fýrir sjúklinga og starfsfólk.
Síðan ætlum við að byggja yfir rann-
sóknarstarfsemina og bæta aðstöðu
hennar. Það fé sem ráðstafast í þetta
verkefni er ekki tekið úr þeim potti
sem heilbrigðiskerfið fær árlega
heldur úr sölu eigna, nánar tiltekið
Símasölunni, en þverpólitísk sam-
staða ríkir um þá ákvörðun."
Á að þjóna öldruðum
og geðfötluðum
Jón segir það ekki rétt að
sjúklingum sem þjóni ekki rann-
sóknarlegum tilgangi verði úthýst.
„Hins vegar er ljóst að það þarf að
auka flæðið í gegnum sjúkrahúsin.
Það á að þjóna öldruðum eins og
öðrum en hins vegar er fráflæð-
isvandi þar, vegna þess að okkur
Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra,
segir doktorsritgerð Sigurbjargar Sigur-
geirsdóttur, sem gagnrýnir byggingu
nýs hátæknisjúkrahús harðlega, virðast
frekar stóryrta og ekki sannfærandi.
vantar hjúkrunarrými. En það er
náttúrulega alveg ljóst að sjúkra-
húsið á að þjóna öldruðum, geðfötl-
uðum og þeim sem þurfa virkilega
á mikilli og sérhæfðri þjónustu að
halda,“ segir Jón og bætir við að há-
tæknisjúkrahúsið verði síður en svo
fjötar á heilbrigðiskerfinu um ára-
tugaskeið líkt og Sigurbjörg hefur
haldið fram. „Það sem hún er líka
að tala um er verkaskipting milli
einkageirans og sjúkrahússins. Það
er nauðsynlegt að skýra verkaskipt-
ingu þar á milli. Við erum með
vinnu í gangi í því máli og ég vona
að sú nefnd fari bráðlega að skila
mér áliti. En ég get ekki séð hvernig
ný og bætt aðstaða á spítalanum
hneppi heilbrigðiskerfið í fjötra. En
hún hefur skrifað um þetta mjög
ítarlega doktorsritgerð og auðvitað
blæs ég ekkert á það sem hún segir.
Ég er eigi að síður ekki sammála
þessum fullyrðingum í fyrsta kasti.
Það þyrfti að sannfæra mig betur
um það. Ég ber fulla virðingu fyrir
hennar rannsóknum og ritgerðum
og við munum auðvitað fara yfir
þetta. En í fyrsta kasti þá finnst mér
þetta vera nokkuð stór orð,“ segir Jón
Kristjánsson heilbrigðisráðherra.
k'qpænmeti
sérmerkt þér!
(0 Heiðskírt 0 Léttskýjað
Skýjað A Alskýjað ✓ / Rigning, lítllsháttar /'// Rigning } 9 Súld Snjókoma v^7 Slydda Snjóél r~j Skúr
’ * V V V
Amsterdam -01
Barcelona 06
Berlín -03
Chicago -01
Frankfurt -02
Hamborg -02
Helsinki -06
Kaupmannahöfn 0
London 01
Madrid 06
Mallorka 11
Montreal -08
New York 0
Orlando 05
Osló -06
París -01
Stokkhólmur -02
Þórshöfn 05
Vín -02
Algarve 14
Dublin 03
Glasgow 03
***
o
t5°
6°
/
b 1
/ /
/ /
/ /
1° ✓ /
é
/ /
/ /
**
d*
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
4
,0
«0
5 w >jc 6
A morgun
0
0
5°