blaðið - 28.12.2005, Side 6
6 I INWLEWÐAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 blaöíA
Forsœtisráðherra:
Kjaradómur endurskoöi ákvörðun sína
Ekki ástæða til að kalla saman þing. Kemur prófessor í lögum á óvart.
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra lýsti þvi yfir á fundi í ráðherra-
bústaðnum við Tjarnargötu í gær að
hann hafi skrifað formanni kjara-
dóms þar sem hann fór þess á leit
við hann að kjaradómur endurskoði
úrskurð sinn um laun þjóðkjörinna
fulltrúa. Á fundinum voru fulltrúar
aðila vinnumarkaðarins ásamt
Halldóri og Geir Haarde, formanni
Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráð-
herra. Margir þingmanna, úr stjórn
og stjórnarandstöðu, hafa krafist
þess að Alþingi verði kallað saman á
milli jóla og nýárs til þess að ræða úr-
skurð dómsins. Halldór sagðist ekki
sjá neina ástæðu til þess, en hins
vegar væri ástæða til þess að end-
urskoða lög um kjaradóm og kjara-
nefnd til þess að ekki komi aftur til
þess að nefndirnar vísi hvor á aðra í
úrskurðum sínum. Ósk forsætisráð-
herra nær aðeins til þjóðkjörinna
einstaklinga, enda telur ráðherra
það ótækt að framkvæmdavaldið
hlutist til um kjör dómara og ann-
ara sem dómurinn úrskurðar einnig
um. Fram kom hjá Halldóri að kjara-
dómur komi saman í dag.
Kemur á óvart
Sigurður Líndal, prófessor emeritus
við Háskóla Islands, segir ákvörðun
forsætisráðherra koma sér á óvart.
„Mér finnst þetta nú svolítið skrítið.
Mig minnir að dómurinn hafi áður
endurskoðað úrskurð sinn, en mig
minnir án þess að ég þori að full-
yrða það nú, að það hafi verið í kjöl-
far þess að reglum um kjaradóm hafi
verið breytt í millitíðinni. Þegar ég
hleyp yfir lögin um kjaradóm átta
ég mig nú ekki almennilega á því
á hverju þessi ákvörðun er byggð."
Sigurður segist ekki gera sér grein-
fyrir því hversvegna Halldór telji
ótækt að hrófla við kjörum annara
en þeirra sem þjóðkjörnir eru. „Af
hverju er í lagi að hlutast til um laun
þeirra þjóðkjörnu?,“ spyr Sigurður.
„Hið eina sem ég get sagt er að mér
kemur þessi ákvörðun á óvart og ég
verð að kanna þetta betur áður en
ég get sagt til um á hverju þetta er
byggt“
Viðbrögð
þingmanna
Össur Skarphéðinsson
, Ég tel að með þessu sé Halldór að
skipa kjaradómi fyrir verkum. Ég
gef mér það að niðurstaðan verði
sú að úrskurðurinn verði tekinn til
baka og geri ég engar athugasemdir
við það.“ Össur segist gera ráð fyrir
að ef svo fer þurfi þeir sem skipa
kjaradóm að segja af sér. „Ég get
ekki séð hvernig þeim sé sætt eftir
slíka verkun."
Einar Oddur Kristjánsson
,Ég fagna þessari ákvörðun. Ég tel að
það sé mjög slæmt ef ekki er hægt að
taka þetta til baka. Ég býst fastlega
við því að dómurinn afturkalli
þennan úrskurð sinn.“
Steingrímur J. Sigfússon
,Mér finnst þetta vera ákaflega
takmörkuð viðleitni. Ég hefði kosið
að þingið hefði verið kallað saman
til þess að fara yfir úrskurðinn
sem slíkan og forsendur hans. Þesi
úrskurður er bara birtingarform
stórvaxandi lífskjaramunar sem
stórnvöld bera ábyrgð á.“
Framsóknarflokkurinn:
Þrjú berjast um fyrsta sætið
Óskar Bergsson, húsasmiður og fyrr-
verandi varaborgarfulltrúi hefur til-
kynnt um þáttöku sína í prófkjöri
Framsóknarmanna fyrir næstkom-
andi borgarstjórnarkosningar. Það
eru því þrír frambjóðendur sem
sækjast eftir efsta sætinu en frestur
til þes að gefa kost á sér rennur út
þann 29. nk. Óskar deilir á flokks-
forystuna sem hann segir hegða sér
,,óframsóknarlega“ og segir það geta
reynst Birni Inga Hrafnssyni erfitt
sem oddvita flokksins í borginni að
þurfa að svara fyrir verk ríkisstjórn-
arinnar í komandi kosningum.
„Þetta leggst vel í mig“ segir Óskar.
„Ég hef fengið góða hvatningu og
fín viðbrögð við þessari ákvörðun
minni.“ Þegar Óskar er spurður út í
hvað hann eigi við um „óframsókn-
arlega“ hegðun svarar hann: „Ég
tók nú svona til orða vegna þess að
hefðir í flokknum og samþykktir,
eins og jafnréttisáætlun og sú regla
að oddvitar í kjördæmum sitji að ráð-
herradómi hafa verið þverbrotnar.“
Strítt gegn eðli flokksins
„Dæmi um þetta er skipun Árna
Magnússonar í stól félagsmálaráð-
herra og svo aftur þegar Halldór
sjálfur var gerður að forsætisráð-
herra,“ segir Óskar. „Síðan hef ég
nefnt hvenig gegnið var að Kristni H.
Gunnarssyni en það hefur aldrei tíðk-
ast í Framsókn-
arflokknum
að mönnum sé
refsaðfyrirskoð-
anir sínar. Þessi
mál stríða gegn
eðli flokksins,
sem er flokkur
málamiðlana
og sátta.“ Óskar
vill ekki ganga svo langt að segja
Björn Inga sendan út af örkinni fyrir
hönd flokksforystunnar á landsvísu.
„Hann er bara ungur og efnilegur
stjórnmálamaður sem er í framboði,
þannig lít ég á það, en ég held að það
gæti reynst honum erfitt ef hann
yrði oddviti hér í Reykjavík að þurfa
alltaf að vera að svara fyrir verk ríki-
stjórnarinnar í kosningabaráttunni."
Óskar segist búast við því að fram-
boð hans hleypi lífi í baráttuna, en
hann segist munu leggja áherslu á
skipulags- og byggingamál, að ein-
setning grunnskólans verði kláruð
og að gert verði átak í því að öldr-
uðum verði gefinn kostur á að búa
í einbýli á stofnunum í stað þess að
tveir og þrír þurfi að vera saman í
herbergi.
Eykur stemninguna í flokknum
Björn Ingi Hrafnsson segist fagna
því að sem flestir taki þátt í prófkjör-
inu. „Prófkjör hafa tvennan tilgang,
annars vegar að
velja fólk á lista
og hins vegar að
auka stemning-
una í flokknum,
þannig að þetta
erhiðbestamál.“
Björnlngisegist
ekki átta sig á
ummælum Ösk-
ars þess efnis að hann muni þurfa að
svara fyrir störf þingflokksins. „Ég
veit ekki hvernig þetta tengist borg-
armálunum. Ég mun einbeita mér
að því að sinna minni baráttu og
kynna mínar hugmyndir og stefnu-
mál. Ég held að það sé affærasælla
í póiltík að halda sig við það sem
menn ætla að gera. Lýðræðislegt
prófkjör eins og við ætlum að halda
hlýtur að leiða það í ljós hvort þessar
kenningar Óskars eigi við rök að
styðjast. Ég finn fyrir miklum stuðn-
ingi í öllum flokknum, ekki bara
hjá forystunni og reyndar talsvert
út fyrir flokkinn eins og kom fram
í könnun um daginn,“ segir Björn
Ingi. Hann segir að þó ýmislegt
beri á milli málefnalega séð á milli
þeirra þriggja séð það þó þannig í
prófkjörum að fólk sé að velja á milli
fólks um hver sé líklegastur til að
njóta mestra vinsælda í kosningum.
„En það er ágætt að vekja athygli á því
að fyrir síðustu kosningar var lokað
forval innan
flokksins og þá
sagði Óskar að
úrslitin hefðu
verið ákveðin
fyrirfram. Nú
er opið prófkjör
og hann segir
aftur að vitlaust
sé gefið og úr-
slitin hafi verið ákveðin fyrirfram,
þannig að það er vandlifað."
Snýst um að velja leiðtoga
„Ég fagna öllum nýjum framboðum,"
segir Anna Kristinsdóttir.borgarfull-
trúi. „Það mjög mikilvægt að sem
flestir gefi kost á sér í svona prófkjör.
Þetta verður gaman að takast á við.“
Anna segir þá óskar og Björn fara
fram á ólíkum forsendum. „Ég fer
hins vegar fram á þeim verkum sem
ég unnið síðastliðin fjögur ár og ætla
mér ekki fram á kostnað neins ann-
ars. Mér finnst baráttan snúast um
hver sé hæfastur til að leiða flokk-
inn hér i borginni. Ef eitthvað má
betur fara innan flokkins þá taka
menn þann slag á öðrum vettvangi.
Það gerum við ekki í þessu prófkjöri,
heldur á næstaþingi," segir Anna
sem býst við spennandi baráttu.
Komdu á óvart um áramótin
Mikið úrval af ómótstæðilegum
eftirréttum í áramótaboðið
DANCO
HEILDVERSLUN
Sími: 575 0200 - Melabraut 19 - Hafnarfirði - www.danco.is
Líkfundur við Hverfisgötu
Tvennt fannst látið
í húsi við Hverfis-
götu í Reykjavík í
gærdag. Rannsókn
er á frumstigi og vill
lögregla ekki tjá sig
um dánarorsökina
fyrr en að undangeng-
inni rannsókn og
krufningu. Lögregiu
barst tilkynning um
líkfund í húsinu og
var um 36 ára konu
og 45 ára karl að ræða.
Þau hafaáttviðfíkn
að'etja og ergrunur
um að þau hafi látist
afvöidum ofstórs
skammts af contalgíni,
sem er morfínefni.
Engin merki voru um
átöká vettvangi, en
lögreglan kveðst
ekkert vilja útiloka á
þessu stigi málsins.
Ekki missa af endurgreiðslu!
Fjölskyldan
Með því aö skrá fjölskylduna fyrir áramót gætiröu tryggt þér og þínum endurgreiðslu þessa árs!
Fjölskyldan hjá SPRON er sérstök þjónustuleið ætluð fjölskyldum af öllum stærðum og gerðum, jafnt sem einstaklingum.
Fjölskylduþjónustan er án endurgjalds og stuðlar að fjárhagslegum ávinningi fjölskyldunnar sem heildar, bæði í formi
endurgreiðslu og fríðinda. Þeir sem eru skráðir í fjölskylduþjónustu SPRON geta bætt kjör sín enn frekar.
Skráning í síma 550 1200, hjá þjónustuveri í síma 550 1400, á www.spron.is eða í næsta útibúi SPRON.
%pro#?
™ — f\/r/r allt cc
- fyrir allt sem jbú ert