blaðið - 28.12.2005, Page 8
8 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 Ma6i6
Gríðarlegar hækkanir á hlutafé í
FL Group vekja undrun á markaði
Hlutabréfí FL Group hafa hcekkað um tæp 30% á einum mánuði, en opinberar upplýsingar gefa ekki tilefni til slíkrar hækkunar. Kauphallarsérfræð-
ingar vita ekki hvaðan á sigstendur veðrið en telja að í höndfari miklar eignatilfæringar hjáfélaginu.
Miklar hækkanir á hlutafé í FL Group
að undanförnu hafa vakið talsverða
undrun þeirra, sem grennst fylgjast
með Kauphöllinni, en á yfirborðinu
hafa engin þau tíðindi orðið, sem út-
skýrt gætu hækkanirnar. Skömmu
fyrir hádegi í gær fór mikið verð-
skrið í bréfum FL Group af stað og
nam hækkunin 7,11% þegar mest var.
I lok dags hafði hún þó gengið tals-
vert til baka, en nam samt 2,55%.
Undanfarinn mánuð hafa bréf í
FL Group hækkað um 28,85%, sem
er vitaskuld fremur fátítt um svo
stórt og virkt félag á markaði. I síð-
ustu viku einni hækkaði verðið um
15,51%. Á þessum tíma hafa engin tíð-
indi borist af rekstri félagsins, sem
gætu hafa ýtt undir slíka hækkun,
en rétt er að minna á að ekki eru
nema um sex vikur síðan útboð
átti sér stað hjá félaginu og af opin-
berum upplýsingum er ekki hægt að
ráða að neitt hafi breyst síðan, sem
máli skiptir.
Sérfræðingar í hlutabréfavið-
skiptum, sem Blaðið ræddi við, voru
á einu máli um skilningsleysi sitt á
þessum hækkun. „Það er auðvitað
rétt að hafa í huga að FL Group efur
breyst mikið, það er nú fjárfestingafé-
lag þó það sé með mikið undir í flug-
tengdum rekstri, þannig að það lýtur
aðeins öðrum lögmálum en áður. En
það fer bara um mann þegar maður
sér hækkanir eins og við horfðum
upp á um hálftólfleytið.“
Átökin um (slandsbanka rótin?
Ýmsar kenningar eru um það hver
rótin að verðhækkunum sé. Einn
nefndi að hugsanlega væru FL-menn
að ýta upp verðinu eins og hægt væri
til þess að styrkja stöðu sína vegna
hugsanlegra viðskipta við Straum
með hlutabréf í íslandsbanka, en
þreifingar um þau hafa staðið svo
mánuðum skiptir, án þess að nein
ákveðin tilboð séu á borðinu.
Þá er nefnt að FL Group hyggist
selja bréf sín í Easyjet, sem hafa
hækkað talsvert að undanförnu, og
Hannes Smárason
innleysa þannig verulegan hagnað.
Önnur kenning er að FL Group hygg-
ist selja eignir til Samskipa og að
menn séu að búa í haginn fyrir það.
Enn aðrir telja að Sparisjóður Hafn-
arfjarðar sé að kaupa að áeggjan
Sigurðar Bollasonar og Magnúsar
Ármanns, sem sjálfir eiga um 15% í
FL Group. Rétt er að ítreka að hér er
aðeins um vangaveltur að ræða, en
allir, sem Blaðið ræddi við voru á
einu máli um að það hlyti að skýrast
á næstu dögum eða vikum hvað að
baki byggi.
Jólabókaflóðið:
Arnaldur á toppnum
Viöburóarríkt ár framundan
samkvæmt völvunni
Eftirtektarverðra breytinga að vœnta í stjórnmálum landsins
Nú þegar jólabókaflóðið er í rénum
fara menn að spá í hvaða bækur
hafi notið mestra vinsælda fyrir
þessi jólin. Þegar bóksalar eru
spurðir að því hvaða bók hafi selst
best stendur ekki á svari. Arnaldur
Indriðason er augljóslega vinsælasti
rithöfiindur þjóðarinnar nú um
stundir og hefur bók hans „Vetrar-
borgin" selst betur en nokkur önnur
bók. „Arnaldur hefiir verið að seljast
best hjá okkur og er eiginlega í
sérflokki," segir Þórunn Inga Sigurð-
ardóttir, verslunarstjóri í Pennanum
Eymundsson, Austurstræti. „Þar á
eftir kemur„Sólskinshestar“ eftir
Steinunni Sigurðardóttur og svo
,Með lífið að láni“ eftir Jóhann Inga
og Sæmund Hafsteinsson. Þetta eru
þær þrjár hæstu hjá okkur síðustu
vikuna. Þórunn segir að Islandsatla-
sinn hafi komið á óvart með góðri
sölu. „Það kom á óvart hve vel hún
seldist enda um dýra bók að ræða.
Síðustu vikuna seldum við bara
gjafabréf fýrir hana því hún kemur
ekki affur fyrr en í febrúar." Þórunn
segir bókina hafa selst mjög vel
almennt fýrir þessi jóL Hún segir
uppgang í barna- og unglingabók-
unum. „Eragon“ seldist vel og „Fía
Sól“ sem er íslensk bók sem er
skemmtilegt og sfðan er það Harry
Potter, en vinsældir hans hafa orðið
til þess að auka sölu í spennubókum
fyrir unglinga, sem er frábært."
Mikið af sölulegum titlum í boði
í Bónus var sömu sögu að segja, en
þar trónir Arnaldur á toppnum að
sögn Estherar hjá Bónus. I næstu
sætum voru svo Harry Potter og
,Thorsararnir“. „Þetta eru svona þær
vinsælustu en Auður Eir fylgir fast
á hæla þeirra ásamt Roklandi og
Eragon. Þetta er mjög svipað og í
fyrra sýnist mér, en þó má segja
að barnabækurnar seljist betur í ár.
Fólk virðist lesa miklu meira og það
er bara mjög gott mál,“ segir Esther.
Metsölulistinn hjá Hagkaupi lítur
aðeins öðruvísi út en hjá öðrum sölu-
aðilum. „Mest selda bókin hjá okkur
var Með lífið að láni,“ segir Sigríður,
innkaupastjóri hjá Hagkaupi. „1
öðru sæti voru það svo „Landsliðs-
réttir Hagkaups“ og Arnaldur er í
þriðja sæti.“ Sigríður segir bækur
hafa selst betur fyrir þessi jól en i
fyrra. „Það virðist hafa verið mjög
mikið af sölulegum titilum í boði
þetta árið.“
Söfnunarsjóður
I ífeyrisrétti nda
Sjóðfélagafundur
Sjóðfélagafundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda
verður haldinn að Skúlagötu 17, Reykjavík
á 2. hæð, 28. desember 2005 og hefst kl. 16.00
Dagskrá fundarins er
■ Nýjar samþykktir sjóðsins
• Önnur mál
Allir sjóöfélagar, jafnt greiöandi sem lifeyrisþegar,
eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Reykjavík 21. nóvember 2005
Stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda
Hin forsjála völva tímaritsins Vik-
unnar spáir miklu róti á komandi
ári. Hér innanlands mun það helst
telja til tíðinda samkvæmt henni
að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson mun
verða næsti borgarstjóri Reykvik-
inga, Kristinn H. Gunnarsson mun
jafnvel yfirgefa Framsóknarflokk-
inn og þeir Dagur B. Eggertsson og
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
séu jafnvel á leið út úr stjórnmál-
unum. Þá munu geisa miklar deilur
i kringum Valgerði Sverrisdóttur
og völvan segir hana verða að tala
hreint út til að skiljist hvert hún sé
að fara. Ástandið í efnahagsmálum
verður að sögn völvunnar sveiflu-
kennt, sumir verða ríkari en hin gíf-
urlega efnahagslega velgengni skilar
sér ekki til allra. Það verður einhver
lægð á verðbréfamarkaðinum sem
mun valda því að „verðbréfagutt-
arnir verða á nálurn," en hún mun
þó verða tímabundið og markaður-
inn jafnar sig fyrir rest.
Aron Pálmi kemur heim
Jónínu Benediktsdóttur er spáð sigri
2ii kr.
Lækjargata 8
Suðurlandsbraut 32
Ýmislegt krassandi birtist í kristalkúlu
völvunnar aö þessu sinni.
í dómsmáli sínu gegn Fréttablaðinu
og Baugsmenn vinna sitt mál sem
þeir munu höfða gegn íslenska
ríkinu. Þá er breytinga að vænta á
ritsjórn Morgunblaðsins á nýju ári
og DV er spáð blússandi velgengni.
Hún sér fram á erfiðleika í rekstri
FL Group og tiltekur þar að fjárfest-
ingar sem félagið fór út í muni ekki
skila tilætluðum árangri auk þess
sem að stórtæk kaup á öðrum flugfé-
lögum munu reynast mistök. Engar
stórkostlegar náttúruhamfarir eru
væntanlegar á árinu og sumarið
verður veðurfarslega misgott. Þá
er von á frekari niðurskurði í heil-
brigðiskerfinu og hægt að búast við
bæði bókum og leikritum frá Davíði
Oddssyni seðlabankastjóra, enda
telur völvan seðlabankann helst til
Fljótlegt að koma við og taka með sér rétti
Græna línan, Bæjarhrauni 4, S:565-2075
of rólegan stað fyrir Davíð. Fasteign-
armarkaðurinn mun standa í mest-
megnis í stað þó að dýrari eignir
sem hlaupa á tugum milljóna króna
muni lækka eitthvað samkvæmt
spánni. Þá munu fyrrum forstjórar
olíufélaganna sleppa við fangelsis-
dóma vegna þeirra þátttöku í olíu-
samráðinu. Og loksins er von á Ar-
oni Pálma heim.
Að einhverju leyti
sannspá á síðasta ári
Af erlendum vettvangi ber það hæst
að völvan spáir að minnsta kosti
tveimur hryðjuverkaárásum í Evr-
ópu á næsta ári og að Vilhjálmur
bretaprins muni tilkynna um trú-
lofun sína. Andstaðan við stríðs-
reksturinn í frak á eftir að aukast
samhliða því að fleiri vafasöm mál
munu koma upp á yfirborðið. Af
stjörnunum í Hollywood er það helst
að frétta að Jennifer Aniston verður
víst afar lukkuleg á árinu en völvan
hefur ekki mikla trú á að samband
Tom Cruise og Katie Holmes mundi
endast árið.
Völvan reyndist að einhverju leyti
sannspá í spá sinni fyrir árið sem er
senn á enda. Hún spáði þar meðal
annars fyrir um endalok R-listans.
Þá spáði hún því að fuglaflensan
myndi breiðast til Evrópu og að Arn-
aldur Indriðason myndi áfram selja
bækur sínar vel. Hún var ekki jafn
glögg á öðrum sviðum en hún hafði
meðal annars spáð fyrir um leið-
togaskipti hjá Sjálfstæðismönnum í
Reykjavík og eldgos á stöðum sem
aldrei hefðu gosið áður, en hvorugt
gekk eftir.
ókeypis til
heimila og fyrirtækja
alla virka daga
FRJÁLST