blaðið - 28.12.2005, Side 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 blaöiö
Slapp úr hákarlsgini
Brimbrettakappi sem lenti í árás
hákarls undan strönd Portland í
Bandaríkjunum um helgina, slapp
lifandi úr hremmingunum eftir að
hafa barið skepnuna ótt og títt á
trýnið. Sagðist hann hafa lært þetta
bragð af því að horfa á fræðsluþætti
um hákarla í sjónvarpi. Maðurinn
sem er 36 ára, hlaut sár á ökkla og
kálfa en talið er að hann muni ná sér
að fullu. „Þetta er eins og versta mar-
tröð mannssagði brimbrettakapp-
inn, en bætti við að árásin væri um
leið „ævintýri sem gerði lífið mun
meira virði og spennandi.“
Bandarískur brimbrettakappi haföi betur
f baráttu við hákarl um helgina.
FRJÁLST
blaöiðH
Friður í augnsýn í Aceh-héraði:
Vopnaðar sveitir
leystar upp
Susilo Bambang Yudhoyono, forseti Indónesíu, ásamt héraðsstjóra í Aceh-héraði og
forseta Rauða krossins f landinu við minningarathöfn um þá sem fórust í flóðbyigjunni
miklu fyrir ári sfðan.
Uppreisnarmenn í Aceh-héraði í
Indónesíu leystu upp vopnaðar
sveitir sínar í gær. Þar með sér
fyrir endann á einum langvinnustu
átökum aðskilnaðarsinna í Asíu.
Friðarviðræður í Aceh-héraði kom-
ust á skrið eftir að mannskæð flóð-
bylgja olli gífurlegu tjóni og mann-
skaða fyrir ári. Meira en 131.000
manns fórust af völdum flóðbylgj-.
unnar í héraðinu og um hálf milljón
missti heimili sín.
Þetta var tilkynnt stuttu eftir
fund fulltrúa uppreisnarmanna og
Susilo Bambang Yudhoyono, forseta
Indónesíu, í héraðshöfuðborginni.
Sofyan Daud, fyrrverandi foringi
í her uppreisnarmanna, sagði að
herinn myndi framvegis vinna
að framgangi friðarsamkomulags-
ins. Síðan friðarsamkomulag var
undirritað í ágúst hafa hersveitir
uppreisnarmanna afvopnast að
fullu og her Indónesíu kallað nærri
20.000 hermenn heim og ráðgert er
að hundruð til viðbótar haldi heim
fyrir lok mánaðarins.
Aukin sjálfstjórn héraðsins
Nú þegar viðkvæmasta skeiði friðar-
og afvopnunarferlisins er að ljúka
mun ríkisstjórnin undirbúalagasetn-
ingu sem gefur uppreisnarmönnum
rétt til að mynda stjórnmálaflokka
og festa í sessi rétt héraðsins til auk-
innar sjálfstjórnar og ráðstöfunar
yfir náttúruauðlindum sínum.
Uppreisnarmenn tóku upp vopn
árið 1976 til að berjast fyrir sjálfstæði
héraðsins sem er auðugt af olíu- og
gaslindum. Nærri 15.000 manns
fórust í átökum hers og uppreisnar-
manna og var stór hluti hinna föllnu
óbreyttir borgarar.
Segir af sér í
kjölfar slyss
Takes Kakiuchi, forstjóri japansks
járnbrautafyrirtækis, hefur sagt
af sér og axlar þar með ábyrgð á
járnbrautaslysi í apríl sem varð
107 manns að bana. Þetta var
mannskæðasta járnbrautarslys í
landinu í áratugi. Kakiuschi sagði
af sér degi eftir annað mannskætt
járnbrautarslys en fyrirtækið hefur
ekki tjáð sig um hvort það hafi
einnig haft áhrif á ákvörðun hans.
Fimm létu lífið í slysinu og
þrjátíu slösuðust þegar sex
vagna lest fór út af sporinu í
borginni Yamagata. Rannsókn á
orsökum slyssins stendur yíir.
• •
Oryggissveitir
gerðu
engin mistök
Rússnesk yfirvöld gerðu engin
mistök við frelsun gísla í bænum
Beslan í Norður Ossetíu að mati
saksóknara sem hafa rannsakað
málið.Ættingjar þeirra sem fórust
í umsátrinu saka öryggissveitir
um vanhæfi. Telja þeir jafnframt
að lögreglumenn, sem réðust
inn í skólann, eigi að axla ábyrgð
á jafnmörgum dauðsföllum og
gíslatökumennirnir. í eldri skýrslu
sem var unnin af nefnd á vegum
héraðsþingsins voru öryggissveit-
irnar aftur á móti taldar vanhæfar.
Meira en 300 manns fórust í sept-
ember 2004 þegar sprengjur, sem
gíslatökumenn höfðu komið fyrir,
sprungu og lögregla og öryggis-
sveitir réðust inn í bygginguna.
Erum eingöngu með
tertur af öllum gerðum og
stærðum frá 1" til 2"
Tangarhöfða 1