blaðið - 28.12.2005, Page 16
16 I FYRlff KONUR
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005
blaðiö
Glamúr á gamlárskvöld
Mesta glamúrkvöld ársins er framundan og konur
væntanlega farnar að huga að fatnaði og förðun fyrir
kvöldið. Punkturinn yfir i-ið er góð förðun sem getur
gert konuna að mestu þokkagyðju. Konur sem hyggja
á samkvæmi á gamlárs- eða nýjárskvöld ættu að taka
daginn snemma og dekra við sig. Byrja á því að fara í
heitt bað, jafnvel með andlitsmaska, fjarlægja óæskileg
líkamshár og bera síðan húðkrem á sig til að mýkja húö-
ina. Fyrir þær sem eru að prófa nýjar snyrtivörur getur
verið gott ráö að prófa vörurnar daginn áður til að sjá
hvernig þær koma út. Hárið má ekki gleymast og fyrir
þær sem eru með sítt hár og vilja prófa eitthvað nýtt
getur verið gott aó prófa útfærslurnar fyrirfram því ekk-
ert er jafn pirrandi og hár sem ekki tollir eins og maður
vill hafa það. Gott kampavínsglas á meðan endahnútur-
inn er bundin á snyrtinguna er síðan tilvalið til að kom-
ast í hátíðarskapið.
Leitinni
er lokið!
Loksins er kominn varalitur sem helst
á og er líka fallegur. Þessir snilldar-
legu Rouge Hyperfix varalitir límast
á varirnar líkt og málning, svo það
er enginn hætta á að þeir makist á
elskhugann, koddann eða glasið.
Þeir eru ekki einungis endingar-
góðir heldur eru þeir líka fallegir.
Veislu
og fundarbakkar
iznosSuB
Fullkomin fegurð
Þegar maskarinn er kominn á augun vantar stundum eitthvað aðeins
meira tilað toppahið glæsilega útlit. Þessi litli sæti Pailleté Chromé maskari
er silfraður og bætir silfri á annars flotta augnmálningu. Setjið smá silfur á
augnhárin eftir að maskarinn er settur á og fegurðin er fullkomnuð.
Pantanir: 577 5775
Góð ráð fyrir
áramóta-
hárgreiðsluna
„Það er mikið um stóra liði núna
og er bæði hægt að liða hárið með
krullujárni og sléttu járni segir
Nanna Björnsdóttir hársnyrtir á
Rauðhettu og Úlfinum sem gefur
góð ráð fyrir áramótagreiðsluna.
„Þá er líka mikið um að toppurinn
sé greiddur aftur. Hárið á að vera
frjálslegt en á ekki að líta út eins
og það sé í stífri greiðslu, konur
ættu því að spara túberingarnar.
Núna er mikið um hárskraut
eins og spennur og hárspangir
en þær má fá í öllum gerðum og
gefa góðri greiðslu aukið vægi.“
Góðráð:
• Þvoið hárið og blásið það alveg
þurrt
• Setjið franskar rúllur í hárið,
viðeigandi blástursvökva og
hársprey yfir.
• Látið rúllurnar bíða í hárinu í
u.þ.b. hálftíma og er þá tilvalið
að nota tímann til að mála sig
• Ef konur vilja fá loft í hárið er
best að setja nokkrar rúllur
ofan á höfuðið en ekki á
hliðarnar.
• Skreytið hárið með spennum
eða hárspöngum að eigin
smekk.
HÖFUM OPNAÐ NÝJA OG GLÆSILEGA
VERSLUN AÐ HLÍÐARSMÁRA 13 í KÓPAVOGI
ALLAR VHS MYNDIR Á KR. 1250.- (hvergi ódýrari)
ÓTRÚLEGT TILBOÐ Á TITRURUM KR. 500.-
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST www.tantra.is
HLÍDARSMÁRI 13 S. 587 6969 Opið virka daga 12-20
FÁKAFENI 11 S. 588 6969 Laugardaga 12-18
AHUÐAREND
Silfurkúlur sem aö skjotast upp meb silfrubum
hala og springa meb miklum hvellum, braki
og glitrandi stjörnum, mögnub terta.
Þyngd: 5,75 kg Timi: 42 sek
FulGELDAMARKABIR
EíoA&unAASVEItAUNA
Húðvörur úr ólifuolíu
Heilbrigðari húð
,Nýju Olivia húðvörurnar, sem inni-
halda ólífuolíu hafa rokið út“, segir
Ragna Rut Magnúsdóttir innflytj-
andi Olivia húðvaranna.
Vörurnar virka mjög vel fyrir fólk
með viðkvæma húð og exem. {lín-
unni er einnig sápa sem hægt er að
nota í hár en hún virkar mjög vel á
flösu. Vörurnar
eru líka góðar
fyrir fólk sem
er ekki með húð-
vandamál en vill
hugsa vel um húð
og hár. 1 línunni
er líka baðolía,
húðkrem og
handáburður og
vörurnar skilja
eftir silkimjúka
húð. Sápurnar
eru lyktarlausar
en freyðibaðið er
með ferskri lykt.
„Það er búið
að markaðssetja ólífu-
olíu mjög vel hérlendis og
ég veit um fólk sem hefur
verið að nota ólífuolíu í
hárið með góðum árangri.
Mágkona mín vinnur á spít-
ala og veit að húð þeirra
sem hafa átt við veikindi
að stríða getur orðið þurr.
Ólífuolían gerir húðina heilbrigðari
eftir veikindi.”
Olivia húðvörurnar koma frá
Grikklandi og eru unnar úr hreinni
ólífuolíu, en þær hafa verið fram-
leiddar siðan 1870.
Ragna kynntist vör-
unum á Grikklandi
q\\vva
og ákvað að flytja þær til Islands.
Sem stendur eru Olivia vörurnar að-
eins seldar í Hagkaupum Smáralind
en Ragna á von á því að fjölga útsölu-
stöðum eftir áramót.
hugrun@bladid. net
tKuJKkwk 1
Oiívía