blaðið - 28.12.2005, Qupperneq 22
22 I FLUGELDAR
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 blaÖÍ6
Flugeldasala hefst í dag
Lítill verðmunur á
fj ölskyldupökkum
Margir bíða áramótanna án efa með spenningi enda er þetta jafnan skemmtilegasti tími ársins fyrir marga. Blaóió/Gúndi
Áramótin nálgast óðfluga og í dag
hefja björgunarsveitir, íþrótta-
félög og aðrir að selja flugelda.
Margir bíða áramótanna án efa
með spenningi enda er þetta
jafnan skemmtilegasti tími ársins
fyrir marga. Auk þess er þetta
mikilvægasti tími ársins fyrir
björgunarsveitir og íþróttafélög
því flugeldasala er jafnan helsta
fjármögnunarleið þeirra. Fjöldi
fólks kaupir því flugelda meira
til að styrkja gott málefni og vera
með heldur en vegna hreinnar
flugeldagleði. En þó má ekki
gleyma að fjöldi manns hefur því-
líka ánægju af hávaðanum, stemn-
ingunni og flugeldunum sjálfum
og fjárfestir því í flugeldum fyrir
tugi ef ekki hundruð þúsundir
hver áramót. Blaðið lagði í
leiðangur og bar saman verð hjá
nokkrum flugeldasölum.
Það er nokkrum erfiðleikum háð
að bera saman verð hjá flugelda-
sölunum þar sem þeir selja jafnan
ólika vöru. Leitað var því eftir að
skoða verð á stærsta fjölskyldupakk-
anum, litlu handblysi og millistærð
af stjörnuljósi. Innihald fjölskyldu-
pakkanna getur verið mismikið sem
og öðruvísi á allan hátt. Fjölskyldu-
pakkarnir virðast þó vera á svipuðu
verðbili en ekkert mat er lagt á gæði
pakkana.
Sá Qörugi, Gull og Trausti
Stærsti fjölskyldupakkinn hjá Lands-
björg og Flugbjörgunarsveitinni
heitir Trausti og hann inniheldur ra-
kettur, stjörnuljós af öllum stærðum
og gerðum, litla köku, lítið gos og
margt, margt fleira. Á báðum stöð-
unum kostar hann 7500 krónur.
Stærsti fjölskyldupakkinn hjá KR,
Gull, inniheldur tvær stórar rakettur
ásamt fleiri minni, tvær stórar
kökur, stjörnuljós, alls kyns smá-
dót ásamt fleiru. Gull kostar 7900
krónur. Stærsti fjölskyldupakkinn
hjá Val kostar 7400 krónur og ber
nafnið Sá fjörugi. í pakkanum eru
alls 54 stykki; góð terta, miðnætur-
bombur, blys, stjörnuljós, rakettur
fyrir alla fjölskylduna og ýmislegt
fleira. Flest handblysin í könnun-
inni munu vera í minni kantinum.
Handblysin eru frá 150 krónur upp
í 300 krónur. Stjörnuljós af milli-
stærð voru flest á bilinu 30-40 cm
og kostuðu allt frá 150 krónum upp
í 300 krónur.
svanhvit@bladid.net
Fjöiskyldupakki Handblys Stjörnuljós, millistærð
Landsbjörg 7.500 kr. 190 kr. 150 kr.
KR 7.900 kr. 150 kr. 300 kr.
Flugbjörgunarsveitin 7.500 kr. 190 kr. 200 kr.
Valur 7.400 kr. 300 kr. 300 kr.
mm
mvj
[golden wavT|
Utsölustaðir okkar eru: ||||p
IVlýrargata 4 Rvk Laugavegur 178 Rvk
(fyrirofan Hamborgarabiillu Tómasar) Emils. 694 4150 (Við hliðina á Hans Petersenl Cuðnis. 660 0560
Malarhöfði 2 Rvk. Reykjavíkurvegur 5 Hfj.
(ilnisnæöi bill.is) Hlynurs. 823 0303 (fyrirneðan Hellisgerði) Cuðnis. 660 0560
Bæjarlind 4 Kóp Smiðjuvegur 6 rauð gata KÓp
(hjá Players) Jóhannes 617 6029 (ci mótiBílkó) Hrafnhitdur s. 662 2046
Kökur eru fjölbreyttari og miklu skemmtilegri en stök raketta enda heil flugeldasýning
í nokkrar mfnútur.
Kökur eru sífellt vinsœlli
Heil flugelda
sýning 1 einni köku
Skotgleði Islendinga virðist eiga sér
engin takmörk og jafnvel aukast
ár frá ári. Það eru ekki einungis
rakettur og stjörnuljós sem seljast
grimmt þessa síðustu daga fyrir
áramót heldur er sífellt meiri sala
á svokölluðum kökum og tertum.
Þessar litlu hringlaga sprengjur sem,
hver og ein, er á við heila flugelda-
sýningu. Sumir leika sér með kök-
urnar og skjóta jafnvel einhverjum
rakettum með og á það að koma ansi
vel út. Kökurnar endast mislengi,
allt frá innan við minútu og lengur.
Þær allra lífseigustu geta víst dugað
í allt að 6 mínútur.
ansi margar tegundur af skotkökum
og að sama skapi er verðið misjafnt.
Þær kosta allt frá fimmtíu krónum
upp í 25 þúsund krónur og gæðin
eflaust eftir því. Áhuginn á kök-
unum er mikill enda fara mörg
skot upp í einu og kökurnar eru því
heldur mikilfenglegri en ein stök
raketta. Það eru mismunandi mörg
skot í kökunum og þær eru allt upp í
150 skota. Einn viðmælandi Blaðsins
talaði til að mynda um að fólk væri
að fá miklu meira fyrir peninginn
með því að kaupa köku en rakettu.
Kökurnar væru fjölbreyttari og
miklu skemmtilegri enda heil flug-
eldasýning í einhverjar mínútur.
Mikilfenglegar kökur .................................
Samkvæmt upplýsingum frá svanhvit@bladid.net
nokkrum söluaðilum flugelda eru til
Hvað varð um
sólirnar?
Þeir sem muna eftir áramótum
liðinna áratuga muna eftir þeim
fjölda sóla sem skotið var upp
rétt fyrir miðnætti á gamlárs-
kvöld. Sólir eru í raun neyðar-
blys sem notuð eru i báta og í
sjárvarplássum var alltaf mikið
um að sólum væri skotið á Ioft á
gamláskvöld. Þar var auðvelt að
komast í neyðarblys og margir
bátaeigendur sem endurnýjuðu
birgðirnar um áramót.
.Sólirnar eru að detta út hjá okkur,“
segir Jónas Guðmundsson hjá Flug-
björgunarsveitinni. „Við seldum
þær í fyrra en þetta virðist vera ein
af þeim vörum sem eru að detta út.“
Ellingsen er ein þeirra fáu versl-
ana sem selja sólir til almennings
um áramót. „Það er alltaf einn og
einn sem kaupir sólir fyrir gaml-
árskvöld en fyrst og fremst er þetta
selt sem neyðarblys í báta“, segir
Kristján Baldursson hjá Ellingsen.
,,Það er sekt við því að skjóta neyð-
arblysum upp í annan tíma en um
áramót nema um neyðartilfelli á sjó
sé að ræða.“ Sólir í Ellingsen kosta
2.159 kr.stykkið. Kristján segir að á
meðan Ellingsen var með flugelda-
sölu hafi verið meira að gera í sölu á
sólum um áramót en svo virðist sem
fólk sé latara að gera sér sérferð eftir
sólum. Ellingsen hefur líka til sölu
handblys með rauðum loga sem loga
lengi en verð þeirra er 822 krónur.