blaðið - 28.12.2005, Qupperneq 26
26 I FLUGELDAR
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 blaAÍA
Staðsetning áramótabrenna
í huga margra eru brennur hluti
áramótanna enda er þannig
hægt að brenna burt gamla
árið og heilsa nýju. Það verða 12
brennur í Reykjavík og flestar
þeirra eru á sama stað og undan-
farin ár. Auk þess eru brennur
í Garðabæ, Hafnarfirði, Kópa-
vogi og á Seltjarnarnesi. Hér að
ofan má sjá hvar brennur eru
nákvæmlega.
Brennur í Reykjavík:
1. ViðÆgisíðu, stór brenna.
2. Skerjafjörður gegnt Skildinganesi
44 - 46, lítil brenna.
3. Við Suðurhlíðar, neðan við Foss-
vogskirkjugarð, lítil brenna.
4. Vestan Laugarásvegar móts við
Valbjarnarvöll, lítil brenna.
5. Geirsnef, stórbrenna.
6. Við Suðurfell, lítil brenna.
7. Fylkisbrennan, við Rauðavatn,
stór brenna.
8. Gufunes við gömlu öskuhaugana,
stór brenna.
9. Leirubakki v/ Breiðholtsbraut,
lítil brenna.
10. Kléberg á Kjalarnesi, lítil brenna.
11. Úlfarsfell, lítil brenna.
12. Ártúnsholt, sunnan Ártúnsskóla,
lítil brenna
Garðabær - Brenna við Arnarnesvog
Hafnarflörður - Brenna á Ásvöllum
Kópavogur - Brenna í Kópavogsdal,
gegnt Kópavogsvelli
Seltjarnarnes - Brenna við Valhúsarhæð
Kjalarnes
f -J r'j.', - 10 \ ,; Kléberg \
Reykjavíkurborg
Framkvæmdasvið
. ^.1-0
Ulfarsfell
* "O
■ /
f
.y
Fylkisbronna
Vaxandi hvaðfólk leggur íflugelda
Pað tilheyrir að kveðja árið með stœl
Litadýrðin og flugeldaæðið virðist
verða meira og meira með hverju
árinu sem líður. Útlendingar heim-
sækja ísland sérstaklega til að upp-
lifa þessa skemmtilegu stemningu
sem fylgir íslensku gamlárskvöldi
þar sem himininn er í ljósum logum
meirihluta kvölds. Jón Gunnarsson,
framkvæmdarstjóri hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg, viðurkennir
fúslega að hann sé einn af þessum
mönnum sem hafi mjög gaman af
því að skjóta upp flugeldum.
,Það var alltaf þónokkuð um flug-
elda á mínu æskuheimili og þetta
Sjáið myndirnar á
www.bilamarkadurinn.is
(* Smikjneveí 46 £ •
^ S. 567 1800
smitast alveg örugglega þannig. Al-
mennt hefur áhugi fyrir flugeldum
aukist mjög mikið. Með öruggari og
fjölbreyttari vöru, eins og er á mark-
aðnum í dag, þá er áhuginn orðinn
meiri. Það eru líka margir sem nota
99............................
Það er ákveðin yfirlýs-
ing í því að sprengja
árið í burt og ákveðin
stemning sem fylgir
því að kveðja árið
með þessum hætti.
þetta tækifæri til að styrkja starf-
semi björgunarsveitanna. Þetta er
alveg klárlega langmikilvægasta fjár-
mögnun sveitanna okkar.“
HALL
GERÐUR
■ mK! >
J&0 $
Hallgerbur er sannköllub silfurvalkyrja.
Breibir silfurhalar skjótast upp og springa í
silfurpálma. Þab verbur engin svíkinn af þessari.
Þyngd: 5,75 kg Tími: 55 sek
O's
Ti.uGELDA'MARKADtR
BJORGUNARSVEITAHNA
Samkvæmt Jóni eru fleiri í kringum hann sem hafa mjög gaman af flugeldum og stunda þetta af kappi enda segist hann telja að það sé
vaxandi hvað fólk leggur meira í flugelda á sfðustu árum.
nýjungar sem verða flottari og flott-
ari. Venjulega kaupi ég svona 2 fjöl-
skyldupakka fyrir minni börnin og
svo er ég að kaupa nokkrar stærri
tertur og nokkrar rakettur." Sam-
kvæmt Jóni eru fleiri í kringum hann
sem hafa mjög gaman af flugeldum
og stunda þetta af kappi enda segist
hann telja að það sé vaxandi hvað
fólkleggur meira í flugelda á síðustu
árum. Þó segist hann ekki telja að
þetta sé peningasóun. „Það fer allt
eftir því hvernig þú horfir á það. Það
er svo margt í lífinu sem er þannig.
En þetta er náttúrlega gaman, þetta
er viss stemmning á þessum tíma-
mótum og mjög skemmtileg hefð.
Það er þá ekki verra fyrir menn
ef þeir geta sagst í leiðinni vera að
styrkja gott málefni.“
svanhvit@bladid.net
Kökurnar öruggar
Jón segir að þar sem mikið hafi verið
skotið upp af flugeldum á hans æsku-
heimili finnist honum það fylgja
gamlárskvöldi. „Mér finnst tilheyra
að kveðja árið með sæmilegum stæl
um áramót. Það er ákveðin yfirlýs-
ing í því að sprengja árið í burt og
ákveðin stemmning sem fylgir því
að kveðja árið með þessum hætti,“
segir Jón og bætir við að honum
finnist kökurnar skemmtilegastar.
„Ég hef mest gaman af því að skjóta
upp kökunum og ég vil alltaf láta
fylgja nokkrar rakettur með. Svo er
maður náttúrlega með börnin og þá
er maður að skjóta minni rakettum.
Kökurnar eru mjög öruggur skot-
eldur og mjög skemmtilegur. Það er
líka orðið óhemju fjölbreytt úrval
af þeim. Björgunarsveitirnar eru
til dæmis með nýjar útgáfur af skot-
kökum og við vorum í öryggispróf-
unum um daginn ásamt lögreglu
sem gengu mjög vel. Þetta eru mjög
flottar og skemmtilegar nýjungar í
skotkökunum.“
Öryggisgleraugu og vinnuhanskar
Jón er þó tíðrætt um öryggi í notkun
flugelda og segir það gríðarlega mik-
ilvægt. „Það er regla hjá minni fjöl-
skyldu og gestum á gamlárskvöld
að það eru allir með gleraugu þegar
horft er á flugeldaskothríð. Þeir
sem skjóta flugeldunum eru auk
þess með vinnuhanska. Á öllum
sölustöðum björgunarsveitanna fær
fólk öryggisgleraugu og Landsbjörg
sendi 28 þúsund börnum gjafamiða
á gleraugu fyrir þessi áramót. Börn
á öllum aldri eiga að nota gleraugu
sem og allir fullorðnir.“
Ekki peningasóun
Aðspurður að því hvort hann reyni
alltaf að toppa sig á hverju ári segist
Jón nú ekki gera það. „Ég er nokkuð
hefðbundinn en maður reynir að
kaupa þessar nýjungar sem koma á
hverju ári. Það eru alltaf einhverjar