blaðið - 28.12.2005, Qupperneq 28
28 I FLUGELDAR
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 blaðið
'Ario skotið út og inn
með púðursprengjum
og haglabyssum"
Á íslandi er rík hefðfyrir notkun hœttulegra sprengiefna á
gamlárskvöld
Rík hefð er fyrir því hér á landi, sem
annarsstaðar í heiminum, að fagna
liðnu ári og bjóða nýtt velkomið
með því að kveikja bál og brennur
- og þau oft þá kennd við álfa og aðra
óvætti. Samkvæmt hinu merka riti
Sögu Daganna eftir þjóðháttafræð-
inginn Arna Björnsson breiddist
siðurinn um landið uppúr miðri ní-
tjándu öld og á aldamótunum sem
fylgja má segja að hann hafi þegar
fest sig rækilega í sessi þeim er hann
heldur enn þann dag í dag. Ekki er
að finna jafn miklar heimildir um
sögu flugeldanotkunar hér á landi,
en í riti Árna er þess þó getið að á
áðurnefndum nýársbrennum hafi
margir reynt að “[...] framkalla há-
vaða við brennuna og skjóta árið
út og inn með púðursprengjum og
haglabyssum.” Líklega hefur einhver
framtakssamur aðili veitt þessu eftir-
tekt og í kjölfarið hafið innflutning
á neytendavænum sprengiefnum,
þó það séu tómar getgátur.
Förgun neyðarblysa
mikið gleðiefni
Ýmsum heimildum ber saman um
að löng hefð sé fyrir flugeldanotkun
hér á landi, þó slík hafi breytt mikið
um svip frá því sem áður var þegar
svokallaðir “knallarar” og skipara-
kettur voru helsti sprengimaturinn.
Munar þá líklega helst um aðkomu
hjálparsveita landsins að kynningu,
dreifingu og markaðssetningu á
flugeldunum, en hana hófu þeir við
lok sjöunda áratugar síðustu aldar.
Snorri Hermannsson, húsasmiður
á Isafirði, átti þátt í því að koma
flugeldasölunni á í sínum heimabæ.
“Við vorum að leita okkur að ein-
hverri fjáröflunarleið og kom þetta
svona til hugar. Áður en við áttum
aðkomu að þessu fengust flugeldar í
fimm eða sex verslunum á Isafirði,
en þær tóku okkur vel þegar við
leituðumst eftir því að taka við söl-
unni og sögðust láta okkur hana í té
myndum við kaupa upp lagerinn hjá
þeim. Sem við og gerðum. Skömmu
síðar mynduðu hjálparsveitirnar
með sér landsamband og hófu flug-
eldainflutning og dreifingu, þannig
hófst þetta og nú erum við stærstir
ídag.
Annars hafa alltaf verið einhverjar
sprengingar á þessum tíma frá því
ég man eftir mér. Sjálfsagt hefur það
eitthvað tengst því að í kringum ára-
mót tíðkaðist að endurnýja neyðar-
blys og rakettur í togaraflotanum og
þeim gömlu var fargað með því að
skjóta þeim upp. Það voru geysiöfl-
ugar rakettur, enda þeim ætlað
að vera öryggistæki á hafi úti. Þær
standast samanburð við margar af
öflugustu sprengjum dagsins í dag”
segir Snorri.
Eitt, tvö blys og raketta látin duga
Tryggvi Páll Friðriksson, listmuna-
sali hjá Gallerí Fold í Reykjavík var
framkvæmdastjóri Landssambands
Skáta þegar flugeldasalan á þess
vegum hófst fyrir alvöru og átti því
nokkurn þátt í mótun þeirrar hefðar
sem hefur skapast í kjölfarið. “Áður
en við byrjuðum á sölunni voru flug-
eldar og blys seld í Ellingsen og á
ýmsum litlum útsölustöðum. Það
var frekar smátt í sniðum allt og
stórar rakettur fáum aðgengilegar
nema skipstjórnarmönnum. Okkur
vantaði fjáröflunarleið og datt flug-
eldarnir í hug, eins og ég segi tíðkað-
ist notkun þeirra áður en við blönd-
uðum okkur í málið, en aukningin
var gífurleg í kjöflar aðkomu okkar,”
segir Tryggvi.
“Við breyttum Skátabúðinni í alls-
herjar flugeldamarkað og fengum
síðar lánaðar fleiri verslanir undir
söluna, m.a. hjáGunnariÁsgeirssyni
á Suðurlandsbraut. Nú, svo hófum
við að auglýsa þetta, það skipti
miklum sköpum og varð til þess að
salan margfaldaðist í höndunum á
okkur á fáeinum árum. Þegar ég var
strákur tíðkaðist að fara í Ellingsen
um áramót, kaupa eitt, tvö blys og
rakettu, það var látið duga. Fjöl-
skyldupakkarnir sem við komum
með á markaðinn breyttu ýmsu um
þessi mál og þar að auki gátum við
lækkað verðið talsvert - þannig varð
þetta sjálfsagðara. Hjálparsveitirnar
gátu lagt til mannskap í að pakka
flugeldunum, merkja þá og koma á
markað; hagnaðurinn var ágætur og
það var það sem skipti mestu máli
fyrir okkur. Strax í kjölfar þess að
við fórum að auglýsa og markaðs-
setja flugelda jókst salan mikið, þó
hún hafi auðvitað ekki verið í neinni
líkingu við það allsherjarflipp sem
tíðkast núna.”
haukur@bladid.net
Flugeldaslys
íátiðari uú
Engu að síður að mörgu að huga
Fátt er fegurra á köldu vetrar-
kvöldi en bjarmi sá er slær á
himininn þegar góður flugeldur
springur í loft upp. Tívolíbombur,
fallhlífar, fjölþættar skrúðtertur
og venjulegar rakettur mála
skammdegið skærum litum og
angan brennisteins leggur yfir
mannabyggðir þegar gamla árið
er kvatt og nýtt hefur innreið
sína. Líklega vildu fæstir sleppa
þeirri nautn er hlýst af árlegu
flugeldafylleríi landsmanna, en
engu að síður eru flugeldar í
grunninn ekkert nema sprengjur
og því hættulegar sem slíkar.
Því er að mörgu að huga þegar
himininn er málaður með hinni
ævafornu aðferð sem ættuð er frá
austurlöndum fjær.
Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur
lengi haft flugeldasölu sem eina af
sínum aðalfjáröflunarleiðum og því
eðlilega mikil reynsla og þekking á
flugeldanotkun á þeim bænum. Jón
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Landsbjargar, segir að með auknu
framboði á skoteldum síðustu ár
hafi orðið mikil þróun og breyting
á varningnum. Samfara aukinni
notkun og sölu hafi því hefðin orðið
ríkari og flugeldarnir með árunum
öruggari og traustari. “Það hefur
sem betur fer orðið mikil lækkun í
flugeldatengdri slysatíðni síðustu ár
og flugeldaslys eru nú frekar fátíð.
Þegar þau á annað borð verða er því
oftast um að kenna að fólk hundsar
settar leiðbeiningar eða þegar ung-
lingsstrákar eru að taka í sundur
mismunandi skotelda og fikta með
púður og slíkt innanúr þeim. Slík
iðja er vitaskuld stórhættuleg,” segir
Jón. “Skotkökurnar hafa jafnt og þétt
aukið vinsældir sínar og er það vel,
því þær eru það lang öruggasta sem
fólk er að skjóta upp. Við höfum líka
lagt ríka áherslu á að koma flugelda-
tengdum öryggismálum í lag og í því
skyni dreift öryggisgleraugum og
leggjum áherslu á að öll fjölskyldan
noti slík. Vitaskuld dreifum við líka
bæklingum um flugeldaöryggi á sölu-
stöðum okkar og svo framleiddum
við myndband um flugeldaöryggi
sem við sendum á alla grunnskóla
landsins og hvöttum skólastjóra til
þess að sýna elstu bekkjunum.”
Jón segir að í umgengni við skotelda
sé mikilvægast að fara í öllu eftir
settum leiðbeiningum, en einnig
hvetur hann fólk til þes að nota ör-
yggisgleraugu, létta vinnuvettlinga
og helst höfuðfat þegar verið er að
skjóta. “Þetta eru ýmis fyrirbyggj-
andi atriði sem sjálfsagt er að fylgja
þetta eina kvöld á ári sem flugeldum
er skotið upp og og við eigum einnig
að leitast við að sýna gott fordæmi
og ala þetta upp í börnunum okkar,”
segir Jón.
Meðal þess sem hafa ber í huga
• Geymið flugelda á öruggum stað þar sem börn komast
ekki í þá.
• Lesið vel leiðbeiningar sem fylgja flugeldum og farið eftir
þeim í öllu.
• Hallið ykkur aldrei yfir flugelda.
• Víkið frá um leið og logi er kominn í kveikiþráðinn. Hallið
ykkur aldrei yfir flugelda, þó slökkt sé á þeim.
• Aldrei má kveikja í flugeldum meðan haldið er á þeim.
Þetta ætti nú að segja sig sjálft.
• Nauðsynlegt er að hafa trausta undirstöðu undir flugelda
áður en þeim er skotið á loft.
• Þó svo flugeldar séu bráðskemmtilegir ætti aldrei að rugla
þeim við leikföng, heldur koma fram við þá af tilhlýðilegri
virðingu. Oft verða slæm slys af völdum flugeldatengdrar
gáleysi eða gamansemi.
• Hugið vel að dýrunum vinum okkar. Hundar, kettir og
hestar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir flugeldaspreng-
ingum og því ætti að halda þeim innandyra, þar sem þau
verða þeirra minnst vör.