blaðið - 28.12.2005, Síða 30
30 I SAMSKIPTI KYNJANNA
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 blaöÍA
Uppfinning hjónabandsins
Það er ótal margt sem við setjum ekki spurningarmerki við þó að við nánari athugun virðist það
vera hálf undarlegt.
Til dæmis eru fáir sem hafa
hugsað út í hvers vegna við
höggvum niður grenitré, drögum
það inn í stofu og hrúgum á það
kúlum, ár eftir ár, eða hvers
vegna við blótum þorrann með
því að hrúga í okkur hrúts-
pungum og harðfisk þó að við
séum ekki heiðnir meðlimir
í Ásatrúarfélaginu, síst af öllu
veltum við vöngum yfir því hvers
vegna við klöppum eins og selir
þegar við upplifum eitthvað
sem okkur líkar vel og fáir hafa
pælt í því hversvegna þjóðfélagið
krefst þess, leynt eða ljóst, að við
finnum okkur lífsförunaut og
göngum í hjónaband.
Nokkrar tegundir hjónabanda
Að ganga í hjónaband er eitt af
þessum fyrirbærum sem mann-
skepnan út um allann heim lítur á
sem sjálfsagðan hlut og meira til.
Hvarvetna í heiminum eru ógiftir
menn og konur sem eru komin á
miðjan aldur, litin hornauga ef þau
eru ekki “gengin út” eins og það kall-
ast. Af einhverjum ástæðum, sem
við ætlum að skoða í þessari grein,
er ætlast til þess að við finnum
okkur maka og göngum í kjölfarið
í hiónaband.
I menningarheimi okkar vest-
urlandabúa er “monogamy”, eða
einkvæni, nánast eina fyllilega við-
urkennda sambandsformið, en það
er þegar tveir einstaklingar af gagn-
stæðu kyni fá einvörðungu að njóta
kynlífs hvert með öðru og minnstu
undantekningar frá því eru synd,
skömm og skilnaðarorsök. “Poly-
gamy” er fræðiorðið yfir fjölkvæni
(eða mann sem gengur að eiga
nokkrar konur) og “polygyni” er
orðið yfir konu sem gengur að eiga
nokkra menn (við eigum því miður
ekki hentugt orð á íslensku).
Þeir sterkustu fá'ða.
Að ganga í hjónaband er mann-
skepnunni ekki eðlilegt frekar en
að bursta tennur, fara í klippingu
eða skreyta jólatré. Það er hinsvegar
ein af fyrstu félagslegu uppfinn-
ingum okkar og tengslamyndun á
milli tveggja eða fleiri einstaklinga,
í formi hjónabands eða einhvers-
konar samkomulags, átti sér fyrst
stað þegar við vorum rétt að komast
af apastiginu.
Elstu kerfin sem við mynduðum
voru nokkurnveginn á þá leið að
ráðríkur eldri karl reyndi að kom-
ast yfir sem flestar kerlingar í einu,
til að tryggja sér að gen hans bær-
ust áfram með afkvæmunum inn í
framtíðina. Með því að hafa margar
í takinu jók hann möguleika sína
á því að einast afkvæmi þar sem f
það minnsta ein þeirra ætti að vera
í stuði fyrir kynmök þegar svo bar
undir. Á sama tíma reyndu kerling-
arnar að hafa mök við yngri, sterk-
ari og frjósamari karla til að tryggja
sér hraust og hress afkvæmi. í þessu
gamla kerfi var ekkert sem líkist
viðurkennda norminu í dag, sem er
einn karl með einni kerlingu eða ein
kerling með einum karli, né heldur
fjölkvæni. Þarna gilti gamla góða
máltækið að þeir sterkustu sigra...
eða þeir sem ná honum upp, eru
fljótir á bak og snöggir að fá það!
Alltaf tii ítuskið
Uppfinning hjónabandsins hefði
örugglega aldrei átt sér stað ef
Skráðu bílinn á
www.bilamarkadurinn.is
^SUoMtan/íeuLwUMM.
Sm4liwK+i 46 S •
ákveðnar líffræðilegar breytingar
hefðu ekki gerst í líkömum kvenna.
Tíðahringur flestra kven-spendýra
er þannig að hún er aðeins tilbúin til
að hafa mök þegar hún er “breima”,
sem takmarkar getnaðarmögu-
leika karldýranna niður við þetta
ákveðna tímabil og þar sem þeir
eru alltaf í stuði, verða þeir að hafa
sig alla við til að komast yfir skvís-
una. Við sjáum þetta meðal annars á
meðal katta. Þegar læðan er breima
gefur hún frá sér ægileg vein og gól
(reyndar gera fressin það líka) og öll
fressin i hverfinu, sem vettlingi geta
valdið, mæta á svæðið til að sjá hvort
þeim veitist sá heiður að fá að fara
upp á hana. Hún spígsporar um og
velur sér þann sem henni líst best á
(oftast fer hún eftir því hver er með
flottasta feldinn) og í kjölfarið fær
sigurvegarinn að fara “upp á hana”,
(þó er einnig algengt að nokkrir sig-
urvegarar fái að máta það fer eftir
því hverslags kattardýr á í hlut). Það
sem aðgreinir okkur mannskepn-
urnar frá þessu kynferðislega hegð-
unarmunstri annara spendýra er
einna helst það að við erum “breima”
í tæplega einn mánuð, eða allann
tímann fyrir utan tímabilið þegar
við förum á blæðingar. Þegar konur
eru með egglos verða þær reyndar
aðeins meira breima og skemmti-
legar kannanir hafa sýnt fram á
)að að konur eru oftar en ekki létt-
dæddar og reyna að láta skína í bert
segar þær eru með egglos. Svíar
gerðu könnun inni á vinsælum
skemmtistað í Stokkhólmi sem fór
fram á þá leið að ungar konur voru
ljósmyndaðar og síðan spurðar hvar
í tíðahringnum þær væru staddar.
Það kom á daginn að þær sem voru
í rúllukragabolum, með síðar ermar
og í víðum buxum voru yfirleitt á túr
eða alveg að fara að byrja, á meðan
skvísur í berbaksbolum og mini-
pilsum voru staddar á hápunkti
egglossins.
Engar skuldbindingar
Karldýr eru mun líklegri til þess
að vera sátt og sæl þegar þau eru
með kvendýri sem getur haft við þá
mök nánast hvenær sem er í mánuð-
inum og þannig eru mannskepnur
af kvenkyni einmitt gerðar. Einu
apategundirnar sem hafa tíðir mán-
aðarlega eru gibbonar, en þeir eru
einmitt einu aparnir “fyrir utan
okkur”, sem stunda það sem kemst
næst einkvæni.
Flest mennigarsamfélög líta á
einkvæni sem eina af sterkustu und-
irstöðum farsæls þjóðfélags og um
leið gera þau mikinn greinarmun
á ást og ástríðum annars vegar og
hjónabandi hins vegar. Eina und-
antekningin frá þessu var Nayar
samfélagið sem hélt til á Malabar
ströndum Indlands. Þar til í upphafi
nítjándu aldar þurftu ungar stúlkur
af Nayar þjóðflokki að ganga undir
helgiathöfn um leið og þær höfðu
fyrst á klæðum. Helgiathöfnin var
á þá leið að ungir karlmenn höfðu
við þær samfarir og seinna urðu
þeir hugsanlega elskhugar stúlkn-
anna. Ef stúlkurnar áttu með þeim
börn voru þær, ásamt börnunum,
skuldbundar til að syrgja manninn
ef hann lét lífið, en fyrir utan þetta
voru engar skuldbindingar hvorki af
hans hendi gagnvart stúlkunni, né
öfugt.
Algjör andstæða Naya fólksins
var Nyinbar ættbálkurinn í Nepal.
Þar voru iðkuð margskonar hjóna-
bönd; fjölkvæni þar sem einn karl
átti margar konur, einkvæni og svo
polyandri, eða ein kona sem gengur
að eiga nokkra karla, oftast bræður,
og í sumum tilfellum gátu þeir tekið
sér auka konu. En polyandri var þó
algengasta fyrirkomulagið hjá Nyin-
bar fólki og um leið aðal stolt þeirra
og sérkenni sem ættbálks.
Grin gert að karlmönnum á lausu
Hjónaband leysir ýmis vandamál
sem eru einstæð hjá okkur mann-
fólki. Til dæmis eru mannabörn
miklu lengur að komast á legg en
afkæmi langflestra spendýra og það
ferli gengur betur fyrir sig ef maður
og kona eru samtaka um uppeldið
og fæðuöflun i þau ár sem það tekur
krílið að verða sjálfbjarga. Þegar
við vorum enn í veiðisamfélögum
þurftu konan og maðurinn oft að
standast langan aðskilnað sem gat
oft staðið mánuðum saman, en samt
sem áður voru allir hvattir til að
ganga í hjónaband og stundum gat
hvatningin gengið fram úr hófi. Til
dæmis voru ungir menn á eyjunni
Spörtu dregnir f kringum altarið
og hafðir að alhlægi í hópi ungra
ógiftra kvenna, eða þá að þeir voru
píndir til að hlaupa naktir um skóga
og stræti um hávetur, syngjandi
lög sem gerðu gys að einhleypings
ástandi þeirra.
Fríkum út á valkostunum
í dag sækir um það bil helmingur
þeirra sem ganga í hjónaband um
skilnað innan fimm ára. Flestum
þykir ákaflega erfitt að sættast við
þá tilhugsun að mega aðeins hafa
mök við einn einstakling það sem
eftir er ævinnar og á þetta við um
bæði karla og konur. Kannski er
það vegna þess að í dag er stöðugt
áreiti á okkur um alla valkostina
sem okkur bjóðast, hvort sem það á
við um að fara til Spánar eða Grikk-
lands, verða flugfreyja eða lögfræð-
ingur, nota B eða C skálar eða fara
á þessa eða hina bíómyndina. Það
er alltaf eitthvað spennandi að ger-
ast hinum megin við girðinguna og
þar er erfitt að mega ekki smakka,
sérstaklega þegar það er kominn
þreyta í sambandið og róman-tíkin
farin að spangóla af leiðindum. Ein-
staka samfélög hafa komið sér upp
‘normi” sem er almennt viðurkennt
án þess að það sé talað um það í blöð-
unum. Frakkar eru á meðal þeirra,
en í Frakklandi er sjaldan gert
mikið veður út af þvi að kona eða
karl taki sér elskhuga eftir margra
ára hjónaband. Krakkarnir eru þá
flestir orðnir nógu gamlir til að sjá
um sig sjálfir og fýrirtækið; hjóna-
bandið, rekur sig að mestu leiti sjálft.
Dæmi um þetta viðurkennda athæfi
er frönsk bílaauglýsing sem sýnir
miðaldra eiginkonu og eiginmann
mætast á rauðu ljósi. Við sjáum kon-
una leggja farþegasætið niður og
fela með því ungann og vöðvastælt-
ann mann sem situr við hlið hennar.
Þegar bíllinn hennar rennur upp að
bíl eiginmannsins tala þau eitthvað
um skyrtu sem á að fara í hreinsun
og halda svo sína leið. Myndavélin
fer að bíl eiginmannsins sem grípur
i farþegasætið á sínum bíl og upp
kemur elskhuginn, sem er líka,
ungur, fallegur karlmaður...
Kynferðisleg siðaskipti,
allir halda framhjá
Það fer ekki framhjá neinum að það
hafa átt sér stað kynferðisleg siða-
skipti á seinni hluta þessarar aldar.
Kynferðisleg siðaskipti eru ekki ný
af nálinni, m.a. urðu mikil siðaskipti
í Englandi þegar Viktoría drottning
réði ríkjum. Kerlingin sú var ægileg
þurrkunta og tepra sem bannaði
allt á milli himins og jarðar. Bönn
hennar gengu svo langt að konur
máttu ekki hvorki láta sjást í ökkla
né bringu og þuftu því að vera dúð-
aðar frá toppi til táar í múnderingar
sem gátu ekki á nokkurn hátt vakið
kynlöngun. Siðaskiptin á síðustu
öld hófust á áberandi hátt, snemma
á fimmta áratugnum og þróunin
hefur verið á alla kanta síðan, okkur
til bæði ánægju og ama. Það er alltaf
að koma betur og betur í ljós að ekki
nema helmingur mannfólksins virð-
ist vera þannig gerður að hann sætti
sig við aðeins einn bólfélaga alla ævi,
eða með öðrum orðum, einkvæni...
þrátt fyrir að konur séu “breima” í
tæpan mánuð í senn og geti með
reglubundnu kynlífi verið óléttar ár
eftir ár ef því er að skipta. Leigubíla-
stýra í Reykjavík sagði greinarhöf-
undi frá því að henni hefði komið
ótrúlega á óvart hversu duglegir
Reykvíkingar, bæði konur og karlar,
væru í að halda framhjá. Hún sagði
að um hverja einustu helgi kæmu
í bílinn til hennar ekki bara einn
eða tveir einstaklingar sem væru
að taka hliðarspor, heldur væri það
stundum helmingur farþeganna.
Hver er lausnin? Er það að skilja?
Ganga í swingera klúbb? Lögleiða
fjölkvæni á báða bóga? Fara í með-
ferð sem tekur á losta og löngunum
eða reyna að koma upp svipuðum
kerfum og Frakkar eða Nyinbar ætt-
bálkurinn? Hver veit?
margret@vbl.is