blaðið - 28.12.2005, Page 32
32 I MENNING
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 blaðið
Bók um sambönd
Hvað ertu að segja með þessari
sögu?
,Ég var einmitt að lesa bókina um
jólin og reyna að átta mig á því. Ég
komst svo sem ekki að niðurstöðu en
mér finnst þetta góð saga. Stundum
er maður hundóánægður með bæk-
urnar sínar þegar maður les þær en
við næsta lestur er maður ánægður.
I þessari bók er ég að skrifa um sam-
bönd. Það er mjög sérstakt samband
milli þessara tveggja persóna og
óvæntur endir á bókinni. Konan er
að gera upp húsið sitt og húsið getur
verið sálarbústaður hennar.“
Elísabet gefur bókina út sjálf.
,Mér fannst það minnsta vesenið”,
segir hún. „Ég bað reyndar Pál
Valsson, útgáfustjóra Máls og menn-
ingar, um að gefa hana út en hann
sagði þetta vera efni í útvarpsleik-
rit. Ég fór heim og reyndi
að breyta verkinu í
útvarpsleikrit
Elísabet Jökulsdóttir. „Þótt það sé gaman að selja bækurnar sínar er maður um leið ber-
skjaldaður en ég er að læra á sölumennskuna."
en það þýddi ekki neitt. Þetta
er þriðja bókin sem ég gef
út í röð um jólin og sel í
Melabúðinni og Nóatúni.
Maður veit að maður á
sína kaupendur þar og
þarf ekkert að vera
að hugsa um gagn-
rýnendur og annað
stress. Ég man
hvernig þetta var
þegar ég gaf út
hjá forlögum.
Þá var maður
í stressi að velta því fyrir sér hve-
nær kæmi dómur og hvenær maður
fengi viðtal. Ég hugsaði með mér að
það væri gaman að gefa út sjálf en ég
held samt að næsta bók muni koma
út hjá forlagi. Það hefur bæði kosti
og galla að gefa út sjálfur, alveg eins
og það hefur sína kosti að gefa út hjá
forlögum. Stundum týnast bækur
hjá útgefandanum og það fer í taug-
arnar á manni en kosturinn er að
maður þarf ekki að selja bækurnar
sínar sjálfur. Þótt það sé gaman að
selja bækurnar sínar er maður um
leið berskjaldaður en ég er að læra á
sölumennskuna.“
Gerum okkur glaðan dag og meðan birgðir endast
gefum við 20“ Toshiba LCD flatskjái með Invita eldhúsinnréttingum.
Á www.invita.com sérðu enn fleiri innréttingalausnir.
- pernónulega eldhúsiö
Eldaskálinn I Brautarholti 3 I 105 Reykjavík
sími: 562 1420 I eldaskalinn@eldaskalinn.is I www.invita.com
Rétt fyrir jól mátti sjá Elísabetu Jök-
ulsdóttur skáldkonu í Melabúðinni
þar sem hún var að selja nýjustu
skáldsögu sína. Skáldsagan ber hið
langa nafn Síðan þessi kona varð
trúuð hefur hún verið til vandrceða
í húsinu. Bókin fjallar um konu sem
er að gera upp húsið sitt samkvæmt
fyrirmælum frá Guði. Hún leggur oft
leið sina út í byggingarvöruverslun
þar sem hún nær sérstöku sambandi
við einn afgreiðslumanninn og það
er hann sem segir söguna.
Áramótaskaupið á eldhúsflatskjánum
flatskjársjónvarp
Þetta er Invita
25 ára afmælistilboð
LCD
Saga leikara
í Bretlandi er komin út ævisaga
leikarans Sir Henry Irving en í
ár eru hundrað ár liðin frá dauða
hans. Irving var dáðasti sviðsleikari
síns tíma og fyrsti leikarinn sem
var aðlaður. Þegar hann lést, árið
1905, varð þjóðarsorg á Englandi.
Konungsfjölskyldan sendi samúðar-
kveðjur og þingmenn héldu ræður í
þinginu í minningu hans. Hann var
grafinn í Westminster Abbey.
Ævisagan heitir Sir Henry Irving:
A Victorian Actor and His World og
er 508 blaðsíður. Höfundurinn er
Jeffrey Richards sem er sagnfræð-
ingur við háskólann í Lancaster. í
bókinni fjallar hann ekki einungis
um ævi leikarans heldur einnig þjóð-
félagsbreytingar sem urðu á þessum
tíma.
Irving gerðist atvinnuleikari árið
1856 og kallaði með því yfir sig reiði
strangtrúaðrar móður sinnar, sem
taldi leikhús og allt sem því viðkom
vera óguðlegt og syndsamlegt. Hún
afneitaði syni sínum sem varð þekkt-
asti og dáðisti leikari Breta. Leik-
listin varð einnig til þess að leggja
hjónaband Irvings í rúst. Hjónin
höfðu verið gift í tvö ár þegar þau
voru að keyra heim eftir frumsýn-
ingu á The Bells eftir Leopold Le-
wis þar sem Irving vann mikinn
leiksigur. Eiginkona hans, Florence,
sneri sér að honum og sagði: „Ætl-
arðu að halda áfram að gera þig að
fífli á þennan hátt allt þitt líf?“ Ir-
ving brást hinn versti við, enda höfðu
móttökur frumsýningargesta verið
frábærar. Hann lét stoppa vagninn,
fór út og talaði aldrei við konu sína
framar og hitti hana ekki eftir þetta.
Þegar atburðurinn gerðist bar Flor-
ence annan son þeirra hjóna undir
belti en Irving neitaði að mæta við
Sir Henry Irving. Út er komin ævisaga
eins þekktasta sviðsleikara Breta fyrr og
síðar.
skírn drengsins. Hann sá þó fyrir
henni og sonum þeirra tveimur það
sem hann átti eftir ólifað og sendi
Florence miða á frumsýningar hans
og þangað kom hún reglulega.
Mál manna var að hápunktinum á
ferli sínum hefði Irving náð i túlkun
sinni á Mathias í The Bells, leikrit-
inu sem leiddi til hjónaskilnaðar
hans. Dauðasena hans í því leikriti
var svo áhrifamikil að ekki einungis
leikhúsgestum var brugðið heldur
urðu samleikarar Irvings skelkaðir
vegna innlifunar hans.
I ritdómi um bókina í Sunday
Times segir gagnrýnandinn Paul
Bailey að verkið sé stórkostlegt og
ekki sé hægt að segja meira um Ir-
ving en þar sé sagt.
Agöthu- verkefnið
Ráðgátan á bak við velgengni bóka
Agöthu Christie hefur nú verið
ráðin. Þrír háskólar á Bretlandi
lögðu saman og hófu rannsókn á
rúmlega 80 glæpasögum höfund-
arins. Bækur Christie hafa selst
í um tveimur billjónum eintaka
en stundum hefur verið gert lítið
úr stíl hennar og persónusköpun.
Rannsóknir háskólanna þriggja
sýna hins vegar að í bókum Christie
er að finna gríðarlega mikið af já-
kvæðum orðum sem fullyrt er að
auki framleiðslu þeirra efna í heil-
anum sem skapa ánægju hjá fólki.
Meðal þessara orða eru: hún, já,
stúlka, brosti og skyndilega.
Rannsóknin, sem hefur hlotið
nafnið Agöthu-verkefnið, fólst í
því að setja texta Christie í tölvu
og greina orð, orðasambönd og
setningar. Ein niðurstaðan er sú að
Christie notaðist við takmarkaðan
og einfaldan orðaforða. Þetta gerir
að verkum að lesendur halda athygli
og einbeita sér að vísbendingum og
sögurþræði.
Agatha Christie. (bókum hennar er að
finna orð sem auka framleiðslu efna sem
skapa ánægju.
Barnabarn Agöthu Christie, Matt-
hew, er tortryggin á niðurstöðuna.
„Þetta er engin ráðgáta. Hún var ein-
faldlega höfundur sem kunni að búa
til frábæran söguþráð," segir hann.
New York Times velur
bestu skáldverkin
Murakami. Á eina af bestu bókum ársins
að mati New YorkTimes.
New York Times hefur valið
fimm bestu skáldverk ársins
2005. Þau eru að mati blaðsins:
Kafka on the Shore eftir Haruki Murakami
On Beauty eftir Zadie Smith
Peep eftir Curtis Sittenfeld
Saturday eftir lan lan McEwan
Veronica eftir Mary Gaitskill