blaðið - 28.12.2005, Blaðsíða 33
blaöió MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005
ípróttir i 33
Enski boltinn í kvöld:
Borgarslagur í bítlaborginni
Nítjánda umferð ensku úrvalsdeild-
arinnar í knattspyrnu fer fram í
kvöld. Mikið álag er á leikmönnum
í ensku knattspyrnunni yfir jól og
áramót. Fjórar umferðar eru leiknar
á átta dögum. Það verður allt lagt
undir á Goodison Park heimavelli
Everton þegar nágrannarnir frá
Anfield í Liverpool koma í heimsókn.
Everton sem varð í fjórða efsta sæti
á síðustu leiktíð er núna í fimmta
neðsta sæti. Everton steinlá í síðustu
umferð fyrir Aston Villa, 4-0, og
víst er að starf David Moyes er mjög
svo í hættu þessa dagana. Everton
hefur aðeins náð að koma boltanum
fjórum sinnum í mark andstæðinga
sinna á leiktíðinni. Liverpool er við
hinn enda töflunnar, i þriðja sæti
og liðinu gengur allt í haginn þessa
dagana. Mohamed Sissoko verður
með í kvöld eftir að hafa verið í leik-
banni í síðasta leik. Liverpool hefur
ekki fengið á sig mark í deildinni í
síðustu átta leikjum og síðastir til að
skora gegn rauða hernum voru liðs-
menn Fulham 22.október þegar Ful-
ham vann 2-0. Collins John skoraði
þar fyrra mark leiksins og Luis Boa
Morte skoraði á síðustu sekúntum
leiksins. Síðan þá hefur Jose Reina
haldið hreinu. Það verður að segjast
eins og er að lið Everton getur ekki
talist líklegt til að skora í leiknum í
kvöld frekar heldur en Alan Shearer
og Michael Owen gerðu í síðasta sig-
irleik Liverpool gegn Newcastle. En
er það nú ekki oft þannig að þegar
síst vænti, þá gerast hlutirnir.
Chelsea hefur enn níu stiga for-
skot á toppi deildarinnar en þeir
bláu unnu Fulham á annan dag jóla
3-2 og þar skoraði Heiðar Helguson
seinna mark Fulham og jafnaði
metin. Eiður Smári Guðjohnsen lék
með Chelsea í seinni hálfleik og stóð
sig mjög vel. Chelsea-menn geta
þakkað Graham Poll dómara fyrir
öll þrju stigin í leiknum því hann
sleppti augljósri vítaspyrnu á John
Terry fyrirliða liðsins þegar hann
varði boltann inn i vítateignum eins
og handboltamarkvörður. Chelsea
fer tl Manchester í kvöld og mætir
þar City-piltum hans Stuart Pearce.
Michael Essien verður ekki með
Chelsea í kvöld þar sem hann er lít-
ilsháttar meiddur og hið sama má
segja um Ricardo Carvalho en lík-
legt þykir að Damien Duff og Asier
del Horno verði í leikmannahópi
Chelsea.
Manchester United sem er í öðru
sæti deildarinnar fer til Birming-
ham og mætir þar liði Steve Bruce
fyrrum leikmanns United. Muzzy
Izzet er í leikbanni í kvöld en búist
er við að fyrrum leikmaður United,
Nicky Butt, verði í byrjunarliði
Birmingham. Cristiano Ronaldo
verður í leikmannahópi rauðu djöfl-
anna en Mikael Silvestre er enn
meiddur. Birmingham hefur aðeins
unnið einn leik á heimavelli og er í
næstneðsta sæti ensku úrvalsdeild-
arinnar. Manchester United státar
aftur á móti af besta árangrinum
í deildinni á útivelli. 7 sigurleikir,
eitt jafntefli og einn tapleikur. Allt
annað en sigur United í leiknum eru
óvænt úrslit.
Tottenham sem er í fjórða sæti
ensku úrvalsdeildarinnar sækir
W.B.A. heim og Tottenham vann
skyldusigur á Birmingham fyrir
tveimur dögum og búast má við að
Jermain Defoe verði í byrjunarliði
Spurs eftir markið glæsilega gegn
Birmingham. Það er þó óvíst með
þátttöku Ledley King varnarmanns
Spurs þar sem hann er lítillega
meiddur.
Arsenal tekur á móti Porstmouth
og þar má bóka heimasigur. Robin
van Persie er ekki Ieikhæfur vegna
meiðsla en Harry Redknapp stjóri
hjá Portsmouth á í meiri erfiðleikum
en Arsene Wenger þar sem hann Lu-
arent Robert verður í banni og einir
fjórir aðrir fastamenn eru meiddir.
Aðrir leikir i kvöld eru; Bolton
- Middlesbrough, Blackburn - Sund-
erland, Fulham - Aston Villa, Newc-
astle - Charlton og nýliðarnir í West
Ham og Wigan mætast á Upton
Park í austur London. Alan Pardew
framkvæmdastjóri West Ham gæti
lent í erfiðleikum með að velja í lið
þar sem mikið er um meiðsli hjá
Hömrunum og því nokkuð liklegt
að hann verði að fara í leikmanna-
hóp unglingaliðsins til að vera með
18 manna hóp.
Á sjónvarpsstöðinni Enski Bolt-
inn verða fimm leikir sýndir í kvöld.
Leikirnir eru:
Manchester City - Chelsea, Birm-
ingham - Manchester United, Ar-
senal - Portsmouth og Newcastle
- Charlton sem hefja leik klukkan
19.45 en klukkan 20 hefst svo leikur
Everton og Liverpool.
Henry segist ekki
vera á förum til Barca
um framlengingu á samningnum.
„Ég er snortinn af áhuga fólks
hvað mig varðar en í augnablikinu
er ekkert um að vera í þessum
málum. Við verðum að einbeita
okkur að Meistaradeildinni áður
en við spáum í framhaldið” sagði
Henry í viðtalinu.
Hann sagði að brotthvarf Patrick
Vieira til Juventus í sumar hafi
reynst Arsenal erfitt en það væru
bjartir tímar framundan hjá liðinu
með leikmann eins og Robin
van Persie. Ronaldinho besti
knattspyrnumaður heims sem
leikur með Barcelona, lét hafa eftir
sér skömmu fyrir jól að hann fylgdist
gjarnan mjög með frakkanum
Thierry Henry og vonaðist til að þeir
ættu eftir að leika í sama liði.
Þessi skilaboð frá Spáni sem
hafa farið í gegnum fjölmiðla, hafa
eðlilega farið mjög illa í Arsene
Wenger og hann sagði í viðtali við
BBC 5 útvarpsrásina að ef þeir hjá
Barcekma vildu svona mikið fá
Henry til sín þá ættu þeir að hafa
samband við Arsenal en ekki gera
þetta svona þar sem Henry ætti enn
eftir 18 mánuði af samningi sínum
við Arsenal.
Thierry Henry, fyrirliði enska
úrvalsdeildarliðsins Arsenal, segist
ekki vera á förum til spænska
stórliðsins Barcelona. Þetta kom
fram í viðtali við Henry í franska
blaðinu L’Equipe í gær. Henry sem er
28 ára hefur að undanförnu ítrekað
verið orðaður við Barca og Joan
Laporta forseti spænska liðsins lét
hafa eftir sér fyrir nokkrm dögum
að þeir ætluðu sér að gera allt sem
í þeirra valdi stendur til að krækja
í Thierry Henry. Samningur Henry
við Arsenal rennur út sumarið 2007
en hann hefur ekki enn viljað setjast
að samningaborðinu hjá Arsenal
Markahæstu leikmenn
ensku úrvalsdeildarinnar.
Ruud van Nistelrooy Mancheseter United i4mörk
Frank Lampard Chelsea i2mörk
Aiyegbeni Yakubu Middlesbrough io mörk
Darren Bent Charlton 9 mörk
Wayne Rooney Manchester United 9 mörk
Andy Cole Manchester City 8 mörk
Marlon Harewood West Ham 8mörk
Thierry Henry Arsenal 8 mörk
Henri Camara Wigan 7 mörk
Michael Owen Newcastle 7mörk
Ahmed Mido Tottenham 7mörk
Brian McBride Fulham 6 mörk
Robbie Keane Tottenham 6 mörk
Didier Drogba Chelsea 6 mörk
Joey Barton Manchester City 5 mörk
Hver verður
íþróttamaður ársins
Eftir sex daga eða næstkomandi
þriðjudagskvöld verður kunngert á
Grand Hótel hver er íþróttamaður
ársins á íslandi fýrir árið 2005.
Eiður Smári Guðjohnsen var valinn
sá besti fyrir árið 2004 og að vanda
eru það samtök íþróttafréttamanna
sem standa að kjörinu. Listi þeirra
10 bestu að mati íþróttafréttamanna
fyrir árið 2005 hefur verið
gefinn út og þar er að finna þrjár
konur og tvær þeirra eru systur.
Ásthildur Helgadóttir sem hefur
mörg undanfarin ár verið besta
knattspyrnukona landans og Þóra
Helgadóttir sem einnig er í fótbolta
en hún spilar i stöðu markvarðar og
hefur borið afþar.
Á listanum eru fimm
knattspyrnumenn og konur, tveir
koma úr handbolta, einn úr sundi,
einn kemur úr körfubolta og
kylfingurinn Ólöf María Jónsdóttir
er á listanum.
Annars er topp 10 listinn
yfir bestu íþróttamenn
ársins 2005 eftirfarandi:
1. Ásthildur Helgadóttir, Knattspyrna
2. Eiður Smári Guðjohnsen, Knattspyrna
3. Guðjón Valur Sigurðsson, Handknattleikur
4. Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Knattspyrna
5. Hermann Hreiðarsson, Knattspyrna
6. Jakob Jóhann Sveinsson, Sund
7. Jón Arnór Stefánsson, Körfuknattleikur
8. Ólöf María Jónsdóttir, Golf
9. Snorri Steinn Guðjónsson, Handknattleikur
10. Þóra Helgadóttir, Knattspyrna