blaðið - 28.12.2005, Side 34
34 I KVIKMYNDIR
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 2005 blaöiö
REGflBOEinn
\ 400 kr. í bíó! Glldlr á allar sýnlngar merktar með rauðu |
Hún er að fara að hitta foreldra hans
..hitta bróður hans ...og hitta jafnoka sinn
★ ★★1/2
★★★
Sýnd kl. 3 og 6 íslenskur texti
thefamilystsone
Sýnd kl. 3, 5.40,8 og 10.20 Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 3,5,7,9 og 11
Sýnd kl. 2,4,6,8 og 10 Sýnd I Lúxus kl. 2,4, 6, 8 og 10 B.i. 14 ára
SýndkJ. 2,4,6og88.l. 16ára Sýndkl. 10.10 B.1.16 ára Sýndkl. 8og 10.30B.1.16ára
Kvöldstund
með Tarantino
Kvikmyndir ársins
Að mati Rogers Eberts hjá Chicago Sun-Times var árið 2005 alls ekki
svo slæmt eins og margir vilja af láta og segir hann margar myndir
frábærar og gefi mikinn innblástur. Hann segir tíu bestu myndir árs-
ins vera:
Dagskráin á Kvöldstund með Tar-
antino er nú komin í ljós. Á dag-
skránni verða meðal annars þrjár
klassískar Kung-Fu myndir. Eins og
kunnugt er býður Quentin Tarant-
ino Islendingum í bíópartý 30. des-
ember og sýnir þrjár kvikmyndir úr
sínu einkasafni, auk þess að fjalla
um þær og spjalla við gesti. Kvöld-
stund með Tarantino seldist upp á
aðeins 9 mínútum fyrir jól og ljóst
að miklu færri komast að en vilja í
Háskólabíói næsta föstudag. Greini-
legt er að gríðarleg eftirvænting
ríkir hérlendis í kringum þennan
atburð, enda á hann sér varla neina
hliðstæðu.
Ekki síst ríkir spenna í kringum
það hvaða þrjár myndir Tarantino
hefur valið úr filmusafni sínu í Los
Angeles til að sýna íslendingum
næsta föstudag. Um er að ræða þrjár
klassískar Kung-Fu myndir frá 1978
og 79 og titlarnir eru eftirfarandi:
Snake in Monkey's Shadow
(aka „Snakefist vs. The Dragon”)
(Hou hsing kou shou, 1979). Leik-
stjóri myndarinnar er Sum Cheung
og hefur hún verið kölluð „hin full-
komna Kung-Fu kvikmynd.”
Jade Claw (Ji zhao, 1979). Leik-
stjóri: I-Jung Hua. Ein allra stærsta
stjarna kung fu geirans, Billy Chong,
þreytir hér frumraun sína á hvíta
tjaldinu og sýnir strax hvers hann er
megnugur. Af mörgum talin besta
mynd Chong, sem var poppstjarna
í Indónesíu áður en hann varð Kung
Fu stjarna í Hong Kong. Bráðfyndin
mynd, sem inniheldur ógleyman-
legar bardagasenur.
Snakefest in Eagle's Shadow
(Se ying diu sau, 1978). Leikstjóri:
Woo-ping Yuen. Hinn eini sanni
Jackie Chan á ferð hér með aðalhlut-
verkið í mynd sem sameinar í fyrsta
sinn hæfileika hans og leikstjórans
Yuen Woo Ping, sem hér þreytti
frumraun sína, en er í dag talinn
einn merkasti leikstjóri Hong Kong.
Þykir þessi dagskrá væntanlega
vera miklar gleðifréttir fyrir þá tæp-
lega 1000 heppnu einstaklinga sem
náðu að tryggja sér miða á atburð-
inn áður en uppselt varð. Hérna
eru á ferðinni tímamóta Kung-Fu
myndir, sem eru illfáanlegar og goð-
sagnakenndar, en verða nú sýndar
á 35mm filmum í hæstu mögulegu
hljóð- og myndgæðum. Myndirnar
eru meðal allra mestu upphálds-
mynda Tarantino og hafa markað
djúp spor í allri hans kvikmynda-
gerð og mótað hann sem leikstjóra.
Eru áhrifin augljós, ekki síst í nýj-
ustu og vinsælustu myndum Tar-
antino, þrekvirkjunum Kill Bill 1 &
2, sem voru að mörgu leyti óður til
nákvæmlega þessara mynda sem
eru á boðstólum í Háskólabióí á
föstudaginn.
Tarantino hefur ekki ennþá látið í
ljós í hvaða röð hann vill sýna mynd-
irnar, en mun gera það við komuna
til landsins á næstu dögum. Röðin
skiptir hann miklu máli og er hann
þekktur fyrir að leggja mikinn
metnað og pælingar í að púsla saman
slíkum atburðum. Allar myndirnar
eru „döbbaðar” frá Bandaríkjunum,
s.s. með ensku tali.
1. Crash.
Mörg vandamál heimsins hafa orðið
til af völdum trúar og kynþátta.
Mynd Paul Haggis, sem skrifuð er
af Robert Moresco, segir okkur að
við erum öll á sama báti. Ebert segir
að það séu ekki margar myndir sem
hafi þau áhrif á áhorfendur að gera
þá að betra fólki en það er líklegt að
fólk fái samkennd með þeim sem
eru ekki eins og það er sjálft.
2. Syriana
Sagan fjallar um olíu, peninga og
stjórnmál í Ameríku, Mið Austur-
löndum og í Kína. Myndin fjallar
um hvernig til skamms tíma þurfi
allar þjóðir að berjast fyrir olíunni
en í framtíðinni verði hún uppurin.
3. Munich
Ebert segir mynd Steven Spielbergs
vera hugrökkustu mynd ársins og
vera að mörgu leyti sambland af
atburðum myndarinnar Crash og
Syriana. Þar koma fram þjóðernis
og trúarlegar erjur og barátta yfir
olíu. Myndin hefst á morðunum á
ellefu ísraelskum íþróttamönnum
sem myrtir voru af PLO á Ólympíu-
leikunum í Munchen árið 1972.
4. Junebug
Loks kemur mynd um venjulegt fólk
og Ebert segir hana vera bestu mynd-
ina sem fjalli ekki um kynþáttaerjur
eða stjórnmál á árinu. Myndin er
sönn saga, og fjallar um hversu
flókið fjölskyldulíf fólks er.
5. Brokeback Mountain
Mynd í leikstjórn Ang Lee sem fjallar
um tvo kúreka sem uppgötva að
þeir elska hvorn annan. Þegar þeir
svo sofa saman þá kemur það þeim
í opna skjöldu og þeir segja hvor
öðrum að þeir séu ekki hommar. Ást
þeirra endist þó að eilífu þrátt fyrir
að þeir vilji ekki viðurkenna það.
6. Me and You and
Everyone We Know
Gamanmynd sem fjallar um það að
verða ástfanginn af einhverjum sem
ermjögtilfinninganæmur. Miranda
July skrifaði handritið, leikstýrir og
leikur í fyrstu mynd sinni.
7. Nine Lives
Mynd Rodrigo Garcia inniheldur
níu sögur sem eru sagðar í jafn
mörgum þáttum. Ebert telur sög-
unaafRobin Wright og Jason Isaacs
besta, en þau eru fyrrverandi elsk-
endur og gift aftur. Hún er ólétt en
þau hittast fyrir tilviljun í matvöru-
búð og spjalla saman og uppgötva
að þau hafi gert mistök með því að
giftast ekki hvort öðru.
8. King Kong
Myndin er leikstýrð af Peter Jackson
og er eftirgerð af myndinni sem gerð
var árið 1933. Myndin er klassískt
ævintýri þar sem ástin blómstrar
milli górillu og kvenhetju.
9. Yes
Saga um írsk-ameríska konu sem
býr með ríkum breskum stjórnmála-
manni en fellur fyrir þjóni. Það er
ekki aftur snúið og þau stunda ákaft
kynlífog hlæja afþví. Djörf, ástríðu-
full og ólík flestum myndum.
10. Millions
Besta fjölskyldumynd ársins að sögn
Ebert sem er leikstýrð af Danny
Boyle. Myndin fjallar um níu ára
strák og yngri bróðir hans sem
finna poka sem hefur fallið af lest og
þeir koma fyrir undir rúminu sínu.
Myndin er meinhæðin enda er leik-
stjórinn ekki frægur fyrir annað.