blaðið - 12.04.2006, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 blaAÍÖ
Leiötogi mafíunnar á
Sikiley handtekinn
Áflótta undan réttvísinni í meira en 40 ár.
Bernardo Provenz-
ano. Myndin mun
vera um 40 ára
gömul.
Bernardo
Provenzano,
sem talinn er
leiðtogi siki-
leysku mafí-
unnar, hefur
verið handtek-
inn eftir að
hafa verið á
flótta í meira
en 40 ár.
Að sögn
talsmanns
ítölsku lögreglunnar var Provenz-
ano handtekinn á Sikiley. Hann
hefur lengi verið efstur á lista lög-
reglunnar yfir þá sem eftirlýstir
eru á Ítalíu. Hann er sakaður um
mörg morð og rán.
Yfirvöld telja að Provenzano
hafi tekið við stjórn mafíunnar
þegar Salavtore „Toto“ Riina var
handtekinn árið 1993 í Palermo,
höfuðborg Sikileyjar.
Provenzano, sem er 73 ára gam-
all, hefur varið rúmum helmingi
ævi sinnar á flótta undan vörðum
laganna.
Að sögn talsmanns lögreglu var
Provenzano handtekinn nærri
bænum Corleone þar sem eigin-
kona hans og dóttir búa. Hann
neitaði að ræða við lögreglu þegar
hann var handtekinn.
Provenzano hefur löngum verið
annálaður fyrir mikla dirfsku og
hann þykir búa yfir einstökum
hæfileikum þegar dulargervi eru
annars vegar. Hann náði með
hugvitsamlegum hætti jafnan að
komast undan lögreglu og hafði
aldrei samband við vini sína og
samstarfsmenn öðruvísi en að fela
mönnum sem hann treysti algjör-
lega að færa þeim skrifleg boð. Oft
skýrði lögregla frá því að senn yrði
hann handtekinn en honum tókst
jafnan að komast undan á síðustu
stundu.
Handtakan þykir því nokkur
sigur fyrir ítölsku lögregluna því
ýmsir höfðu haldið því fram að
þetta verkefni myndi hún aldrei
ná að leysa.
Heimilisvænir og
gómsætir fiskimánar
Fulleldaðir og tilbúnir matfÍSkur
á pönnuna eða í ofninn
' M A T Ml T. I F H F - M O t FFI I t R 4
íranir auðga umtals-
vert magn af úrani
Stjórnvöld í Teheran lýstu því yfir i
gær að íranir hefðu stigið mikilvægt
skref í átt til þess að komast í hóp
kjarnorkuvelda heimsins. Hashemi
Rafsanjani, fyrrum forseti lands-
ins, sagði í fjölmiðlum að íranskir
vísindamenn hefðu í fyrsta skipti
náð að auðga úran í umtalsverðu
magni og þar með komist nær því
markmiði að nota kjarnorkutækni
til orkuframleiðslu. 1 siðustu viku
hafði Mahmoud Ahmnadinejad, for-
seti landsins, lýst því yfir að tíðinda
væri að vænta af kjarnorkuáætlun
stjórnvalda.
Tíðindin berast á sama tíma og
orðrómur er um að Bandaríkjamenn
íhugi alvarlega að gera árás á kjarn-
orkustöðvar Irana fallist þeir ekki á
kröfur öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna um að láta af tilraunum til
auðgunar úrans. Samkvæmt síðustu
ályktun öryggisráðsins hafa stjórn-
völd í Teheran frest fram til loka
april að láta af tilraunum sínum.
Mohammed ElBaradei, yfirmaður
Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar, er á leið til írans til viðræðna
við stjórnvöld um kjarnorkuáætlun
þeirra. Þykir tímasetning yfirlýs-
ingar stjórnvalda ekki gefa ástæðu
til bjartsýni um að lausn á deilunni
sé í sjónmáli.
AP-fréttastofan hefur eftir emb-
ættismönnum Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar í Vín að engin
ástæða sé til að efast um réttmæti yf-
irlýsinga Irana um að þeim hafi tekist
að auðga úran i umtalsverðu magni.
Sama fréttastofa hefur eftir embætt-
ismanni bresku utanríkisþjónust-
unnar að yfirlýsing frana geri lítið
til þess að hjálpa við lausn deilunnar
og að krafa öryggisráðsins um að fr-
anir hætti öllum tilraunum til auðg-
unar úrans standi sem áður. íranir
hafna þeirri kröfu með öllu og segja
það rétt sinn sem fullvalda þjóð að
nota kjarnorku í friðsamlegum til-
gangi, en stjórnvöld ítreka að kjarn-
orkuáætlun þeirra miðist eingöngu
við framleiðslu á raforku. Rússar
hafa boðist til þess að auðga úran
fyrir írani en stjórnvöld hafa neitað
því boði. Þykir sú neitun til marks
um að íranir vilji halda flestum
möguleikum opnum varðandi fram-
tíð kjarnorkuáætiunarinnar.
Láti franir ekki af auðgun úrans
fyrir næstu mánaðamót er búist við
að harðari ályktun verði samþykkt
á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna í framhaldinu en ólíklegt
er að gripið verði til beinna við-
skiptaþvingana á þeim tímapunkti.
Þráist íranir við veltur framhaldið
að miklu leyti á hvort að samstaða
náist innan ráðsins um aðgerðir
gagnvart stjórnvöldum í Teheran,
en Rússar og Kínverjar, sem hafa
neitunarvald innan ráðsins, eru ólík-
legir til þess að samþykkja viðskipta-
þvinganir. Talið er að undir þeim
kringumstæðum myndu Banda-
ríkjamenn íhuga alvarlega einhiiða
aðgerðir gagnvart írönum.
Aðalfundur VR
verður haldinn á Nordica hótel mánudaginn
24. apríl nk. og hefst kl. 19:30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Laga- og reglugerðabreytingar
Nýtt nafn
• Stofnun Varasjóðs
Sameining við Verslunarmannafélag
Hafnarfjarðar
Virðing
Réttlæti
VR
Opnunartími yfir páskana: - Skírdagur: 10-21 - Föstudagurinn iangi: lokað - Laugardagur fyrir páska: 10-21 - Páskadagur: lokað - Annar í páskum: 10-21
M1
garðheimar
heimur heillandi hluta
og hugmynda!
Minipáskaliljur
>tmML
Stekkjarbakka 6 - 540 3300
www.gardheimar.is