blaðið - 12.04.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 12.04.2006, Blaðsíða 12
12 I DEIGLAN MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 blaðiö Barnamyndir í Skotinu Sigríður Bachmann heldur Ijósmyndasýningu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á 60 ára afmœlisdegi sínum. Ljósmyndasafn Reykjavíkur opnar í dag sýningu eftir Sigríði Bachmann. Sigríður fagnar 6o ára afmæli sínu og í tilefni af vorkomunni kaus hún að sýna myndir af börnum sem hún hefur tekið í gegnum tíðina. Mynd- irnar eru í lit en Sigríður hefur aldrei sýnt litmyndir fyrr. Sigríður hefur meistarapróf í ljósmyndun og opn- aði eigin ljósmyndastofu árið 1988. Á síðustu árum hefur hún að mestu fengist við fotogram-myndgerð sem er ljósmyndatækni þar sem hlutir eru lagðir á ljósnæman pappír og lýstir og myndast þá negatíft form hlutarins. Sýning Sigríðar verður haldin í Skotinu sem er nýr sýningarkostur hjá Ljósmyndasafninu. Harpa Björnsdóttir, verkefnisstjóri safns- ins, segir Skotið vera nýjung sem gefi tækifæri til að kynna hina mar- víslegu þætti ljósmyndunnar, hvort sem er landslagsljósmyndun, portr- ett-ljósmyndun, blaðaljósmynun eða ljósmyndun sem myndlist. „Skotið er sýningaraðstaða sem við erum að þróa og sýning Sigríðar er þriðja sýningin sem haldin er þar. Myndunum er einfaldlega varpað upp á vegg og þannig verður þetta að myndflæði,“ segir Harpa. Sýning Sigríðar stendur til 7. júní. Tíu þúsund dagar Um þessar mundir stendur einnig yfir í Ljósmyndasafninu sýningin ,10.000“ eftir ljósmyndarann Frið- rik Örn. Heiti sýningarinnar vísar til þess að 27 ár, eða um tíu þúsund dagar, eru liðnir frá því að Friðrik Örn eignaðist sina fyrstu myndavél, Ein af myndum Sigríðar Bachmann sem finna má á sýningu hennar í Skotinu. þá átta ára gamall. Friðrik Örn lærði ljósmyndun við Brooks Institute í Kaliforníu og bjó í átta ár í Banda- rikjunum en býr nú og starfar í Reykjavík. Á sýningunni má meðal annars sjá myndaseríu af íslenskum kvikmyndaleikstjórum, myndir teknar um nótt á ýmsum árstímum og fjölda polaroid-mynda frá hinum ólíkustu stöðum. Sýning Friðriks stendur til 24. maí. Halla Tómasdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs fslands, verður fundarstjóri. Fundad um horfur í efnahagsmálum Hádegisverðarfundur fer fram á Grand Hótel í dag þar sem rætt verður um horfur í íslenskum efna- hagsmálum. Samkvæmt nýlegri skýrslu Den Danske Bank eru horf- urnar á íslenska markaðinum væg- ast sagt slæmar og gefa ekki tilefni til mikillar bjartsýni. Ekki eru þó allir á eitt sáttir með niðurstöður og úrvinnslu skýrslunnar og er mark- mið fundarins að ræða um hver staðan sé í raun og veru. Höfundar skýrslunnar „Iceland: Geysir Crisis,“ frá greiningardeild Den Danske Bank, taka þátt í fundinum. Frummælendur fundarins verða Lars Christensen frá Den Danske Bank, Þórður Friðjónsson forstjóri Kauphallarinnar,og Edda Rós Karlsdóttir forstöðumaður greiningardeildar Landsbanka Islands.Til viðbótar fyrirlesurum verða á pallborði Carsten Valgreen frá Den Danske bank, Arnór Sighvatsson aðalhag- fræðingur Seðlabanka Islands og Tryggvi Þór Herbertsson prófessor og forstöðumaður Hagfræðistofn- unar Háskóla ífdands. Fundarstjóri er Halla Tómasdóttir framkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs Islands. Fundurinn fer fram á ensku og hefst klukkan 12.00 og er gert ráð fyrir að hann standi yfir í tvo tíma. Miðaverð er krónur 4.800 en félags- menn FVH greiða 3.000. alvoru orkudrykkur Rýmum fyrir nýjum vörum . Fluguhnýtingarefni - 30°/o ðfsl. Fatnaður, takmarkað magn - allt að 70®/o afsl. Kaststangarsett - allt að 60% afsl. Refahár til fluguhnýtinga á 100 kf. pokinn Önglartil fluguhnýtinga á 10 kr. Stk. Leigu-vöðlur og stangir - 60®/o afsl. Fyrirlestur í Odda „Óefnislegar _ eignir í efnahags- reikningi“ er yfirskrift erindis Einars Guðbjartssonar, dósents við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Islands, sem flutt verður í dag klukkan 12.20. Mál- stofan fer fram í Odda í stofu 101 og er öllum opin. I fréttatilkynningu segir: „Óefnislegar eignir fyrirtækja hafa vaxið hratt á síðustu árum, m.a. vegna framrásar íslenskra fyrirtækja og uppkaupa þeirra á öðrum fyrirtækjum. I árslok 2001 voru óefnislegar eignir fyr- irtækja um 10% af heildareign þeirra fyrirtækja sem skráð voru á íslenskan hlutabréfa- markað. En hver er staðan í dag? Hversu stórt er hlutfall óefnis- legra eigna af heildareignum ís- lenskra fyrirtækja í dag? Einar mun velta þessum spurningum upp í erindi sínu og varpa ljósi á hver staða mála er í dag.“ Skólinn og samkynhneigð Frœðslufundur FAS ífélagsmiðstöð Samtakanna 78 í kvöld I kvöld klukkan 20.30 stendur FAS, félag foreldra og aðstandenda sam- kynhneigðra, fyr'r fræðslufundi sem hefur yfirskriftina „Skólinn og samkynhneigð.“ Harpa Njáls, formaður FAS, segir að markmið fundarins sé að efla fræðslu og auka umræðu um samkynhneigð innan skólakerfisins. „Á aðalfundi í fyrra var ákveðið að eitt af markmiðum FAS yrði að setja á stofn starfshóp um fræðslumál og er fundurinn í tengslum við það. Þessi starfshópur hefur sent bréf til allra skólastjóra grunn- og fram- haldsskóla á höfuðborgarsvæðinu og beðið um að þeir komi erindinu á framfæri við kennara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðinga," segir Harpa. Harpa segir að fundurinn sé opinn öllum en því sé sérstaklega beint til foreldra og aðstandenda samkynhneigðra að mæta. FAS var stofnað árið 2000 og er aðskilið Samtökunum 78. Harpa segir félögin starfa náið saman enda vinni þau að sama málefninu. „Við höfum verið með fundi tvisvar í mánuði í vetur og erum alltaf með fund annan miðvikudag í mánuði í Samtökunum. Þar hittumst við og tökum fyrir ákveðið efni og ræðum. Þá höfum við einnig verið með opna fræðslufundi í fundarsal Þjóðarbók- hlöðunnar,“ segir Harpa. Fundurinn fer fram í félags- miðstöð Samtakanna 78 og heftt klukkan 20.30. Fundarstýra verður Ingibjörg S. Guðmundsdóttir, vara- formaður FAS.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.