blaðið - 12.04.2006, Side 20
20 I BÖRN
4
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 blaðiö
Aíleiðingar eineltis
JÓN PÁLL
HALLGRÍMSSON
RÁÐGJAFl HJÁ
REGNBOGABÖRNUM
Mánast hvert einasta foreldri
sem leitað hefur til mín sem
ráðgjafa Regnbogabarna
kvartar undan aðgerðarleysi skól-
anna. í flestum tilfellum eru for-
eldrar búnir að berjast fyrir barni
sínu í langan tíma og verið í nánu
sambandi við skólann áður en þeir
leita til Regnbogabarna.
Oft biðja foreldrar um að haft verði
samband við viðkomandi skóla til að
finna lausn á vandanum og í þeim til-
fellum sem það er gert hefur komið í
ljós að skólinn er búinn að reyna að
gera allt sem í þeirra valdi stendur til
að leysa vandann.
Þess vegna hefur menntamála-
ráðuneytið að undanförnu verið að
innleiða eineltiskerfi Dan Olweusar,
sem er gott og traust kerfi fyrir skóla
og foreldra að byggja á þegar upp
koma eineltismál. Þetta kerfi hefur
gefið góða raun í Noregi og miklar
vonir eru bundnar við það hérna
heima. Hins vegar hættir eineltið
ekki endilega þegar skólanum lýkur
og þess vegna er eftirfylgnin út í sam-
félaginu mikilvægust þegar upp er
staðið og þar koma Regnbogabörn til
sögunnar.
Við hjá Regnbogabörnum veltum
þessu mikið fyrir okkur og viljum
leggja okkar af mörkum til að hjálpa
til við að uppræta vandann. Þau til-
felli sem hér um er að ræða eru eins
misjöfn og þau eru mörg og engin
ein leið til að leysa vandann. Því
þurfa allir þeir sem að hverju tilfelli
koma, að leggjast á eitt svo að einstak-
lingurinn hljóti ekki varanlegann
skaða af völdum eineltis. Nær allir
þeir foreldrar sem leita til okkar hafa
vitneskju um hverjir gerandendur
eru og segjast vera búnir að reyna að
tala við foreldra þeirra með litlum ár-
angri. Þarna verða foreldrar gerenda
að taka á sig rögg því einelti er ekki
einkamál þess sem fyrir því verður.
Sú aðferð sem dugar síst, er að líta svo
á að verið sé að ásaka foreldra gerand-
ans. Oft er það svo, að sá sem leggur
í einelti, gerir það af einhverri óút-
skýrðri og ómeðhöndlaðri vanlíðan
sem enginn hefur hugmynd um.
Til þess að leysa þessi mál, sem
geta gengið svo langt að einstak-
lingarnir, þ.e. bæði gerandinn og
þolandinn, getur hlotið af því alvar-
legan skaða, er nauðsynlegt að skapa
umræðugrundvöll.
Þegar foreldrar geranda eru ekki til
samstarfs getur skólinn lítið sem ekk-
ert aðhafst í málinu nema efla gæslu
eða á einhvern annann hátt brugðist
við vandanum á skólalóðinni. En þar
sem skólalóðin er ekki nema nokkrir
fermetrar af lífi barnanna, má segja
að það sé búið að gefa út veiðileyfi á
þolandann.
Ég tek sterkt til orða þegar ég tala
um alvarlegar afleiðingar sem eru
m.a. að þolandinn lokar sig af, þorir
ekki út og eignast ekki vini. Ríkjandi
í fari þolanda er léleg sjálfsvirðing og
sjálfsmat, hann er kvíðinn, hræddur
og upp geta komið þunglyndisein-
kenni á borð við svefntruflanir, dep-
urð og framkvæmdarleysi.
Ég verð ekki var við það að þol-
endur óttist það að deyja eða slas-
ast, heldur fremur að þeir óttist álit
annarra og það að gera mistök sem
geta orðið þeim að athlægi eða verði
til þess að þeim verði hafnað. Þetta
verður til þess að þolendur eiga erfitt
með að tengjast og taka þátt í eðlilegu
félagsstarfi jafnt í og utan skóla.
Við hjá Regnbogabörnum rætt við
marga einstaklinga á aldrinum 16 til
24 ára sem orðið hafa fyrir einelti í
grunnskóla og eru jafnvel búnir að
reyna í þrígang að byrja í framhalds-
skóla. þannig að þau börn sem verða
fyrir einelti í grunnskóla missa hæfni
til að takast á við þau verkefni sem
framundan eru hvort sem þau fara út
á vinnumarkaðinn eða halda áfram
í námi.
Af ofantöldum ástæðum, meðal
annarra, er afar mikilvægt að gera
sér grein fyrir að þetta er ekki bara
spurning um mitt barn, heldur öll
börn og við erum sameiginlega ábyrg
fyrir velferð barna í þessu samfélagi
sem við búum í.
Bjóðum einnig upp á skíðagöngu
SKIÐAPASKAR Á SIGLUFIRÐI
Þriðjudagur 11. apríl
Lyftur: Opið 14-20
Sundlaugin: Opið frá kl. 6:30 -10 og 14 - 21
Miðvikudagur 12. apríl
Lyftur: Opið frá 14 - 20
Sundlaugin: Opið frá kl. 6:30 -10 og 14 -
21
Allinn Sportbar: Trúbadorinn Teítur - nýr og
ferskur - Frítt inn!
BfóSalur: FÍLAPENSLAR 15 ára og ball á eft-
ir með Mðaldarmönnum.
Fimmtudagur 13. april
Skírdagur.
Lyftun Opið 10-17
Leikjabraut og brettabraut
Sundlaugin: Opin frá kl. 13 -19
Bíó Salur: FlLAPENSLAR
Föstudagur 14. apríl
Föstudagurinn langi
Lyftur: Opið 10-22
Leikjabraut og brettabraut
Tyrolagleði kl. 18
Garpamót ki. 18
Sundlaugin: Opin frá kl. 13 -19
Allinn Sportbar: Stórdansleikur með
hljómsveltinni V0N
Bió Salur: Ball með Terlín frá miðnætti.
Laugardagur 15. apríl
Lyftun Opið f rá 10 — 17
Leikjabraut og brettabraut
Andlitsmálun og páskaeggjamót fyrir 12 ára
og yngri kl. 14.
Sundlaugln: Opin frá kl. 10 -19.
Allinn Sportban Sönskemmtunin allt frá óp-
eru til Idol og dansleikur með Stúlla og Sæv-
ari á eftir.
Bió Salur: Ball með Spútnikk frá kl. 23.
Bátahúsið: Söngskemmtun karlakórsins kl.
20:30.
Sunnudagur 16. apríl.
Páskadagur
Lyftun Opið frá 10 - 17
Leikjabraut og brettabraut
Bretta- og freestylekeppni
samhliðasvig kl. 14
Sundlaugln: Opin frá kl. 15 -19
Allinn Sportbar: Trúbadorinn
Teitur - Fritt inn !
Bíó Barinn: Llfandi tónlist frá kl. 23
Mánudagur17. apríl
Annar í páskum
Lyftur: Opiðfrá 10-17
Leikjabraut og brettabraut
Sundlaugln: Lokað.
W
_
561 5620 FRA KL13-17
Ballettskóli
(§>ddu (Schevb
Safnaðarheimili Háteigskirkju
WWW.BALLEH.IS
4v
>
Tilfinningaleg tengsl viðforeldra mikilvœg
Sýndu ungbarninu um-
tyggju, ást og athygli
Á aldrinum sex til 12 mánaða eru
börn miklar félagsverur, þrátt fyrir
ungan aldur, og þau hafa mikla
þörf fýrir ást, umhyggju og athygli.
Á þessum aldri eru börnin að upp-
götva heiminn með öllum þeirra
skynfærum og margir hlutir líta
dagsins ljós í fyrsta skipti, sem er
auðvitað liður í þroska barnanna
og þeim nauðsynlegt til þess að
læra inn á tilveruna. Hins vegar
getur þessi tími verið börnunum
erfiður og mörg þeirra upplifa
hluti og aðstæður sem eru þeim
framandi og furðuleg án þess þó
að foreldrar geri sér grein fyrir því.
Þess vegna er mikilvægt að sam-
neyti við foreldra sé innihaldsríkt
og að börnin finni fyrir viðveru
foreldra sinna og öryggi við hinar
ýmsu aðstæður.
Vertu til staðar
Það skiptir miklu máli að vera til
staðar fyrir barnið og móttækilegur
fyrir þeirri athygli sem það þarf.
Augnsamband við börnin skiptir
hérna miklu máli og auk alls sem
gerir það að verkum að þau upplifa
sig sérstök, sjálfstæð og örugg.
Haltu utan um barnið
Við erfiðar aðstæður er besta meða-
lið án efa að einhver taki utan um
mann. Við höfum öll þörf fyrir
faðmlög og börnin eru þar engin
undantekning. Með því að temja
okkur að halda oft utan um barnið
þróum við með þeim aukið öryggi,
aukna tilfinningagreind og mjúkt
viðmót.
Leiktu við barnið
Börn læra og þroskast á vitrænan
sem og líkamlegan hátt í gegnum
leik. Ef foreldrar taka þátt í
leikjum barnanna, hversu smá-
vægilegir sem þeir geta verið, geta
þau upplifað ýmsar hliðar saman
og börnin verða öruggari fyrir
vikið. Leikir sem þessir geta verið í
tengslum við ímyndunina, tónlist,
liti og fleira sem barnið vill gera.
Snertingin er mikilvæg
Fyrstu mánuðina hafa börn mikla
þörf fyrir snertingu foreldra.
Þannig finna þau frekar fyrir for-
eldrunum og upplifa aukið öryggi
dag frá degi. Snerting þarf ekki að
vera mikil hverju sinni - oft er nóg
að halda í hendi barnsins, strjúka
hár þess, bak eða annað.
OPNUNARTÍMAR UM PÁSKANA
SKAUTA
HOLUN
REYKJAVÍK-LAUGARDALUR
Sunnudagur 9. apríl kl. 13:00-18:00
Mánudagur 10. apríl kl. 12:00 -15:00
Þriðjudagur H.apríl kl. 12:00-15:00
Miðvikudagur 12.apríl kl. 12:00 - 15:00 & 17:00-19:30
Skírdagur 13. apríl kl. 13:00-18:00
Föstud.langi 14. apríl kl. 13:00-18:00
Laugardagur 15. apríl kl. 13:00 -18:00
Páskadagur 16. apríl kl. 13:00-18:00
Annar í pásk 17. apríl kl. 13.00 -18:00
Nánari upplýsingar í SkautahölIinni síma
588 9705 eða í skautaholl@skautaholl.is