blaðið - 12.04.2006, Side 24
24 I BÖRN
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 blaöiö
Þær Kolfinna og Nanna eru í forsvari fyrir mikil andmæli félagsmiðstöðvarinnar 101 í
Austurbæjarskóla við stóriðju hér á landi.
Félagsmiðstöðin 101 vill að horfið verðifrá stóriðjustefnunni
Unga fólkið lœtur
til sín taka í þjóð-
félagsmálunum
Það er engin tilviljun að Gerber barnamatur hefur verið mest
keypti barnamatur á íslandi um áraraðir. íslenskir foreldrar
eru aldir upp á Gerber og vita að gæðunum geta þeir treyst
OrvoU
wommi
Gerber hefur í rúm 75 ár framleitt Ijúffengan mat samkvæmt
ströngum gæðastöðlum. Hann er laus við aukaefni og efna
mengun, hollur og góður fyrir litla munna og handhægur
fyrir pabba og mömmur.
Kalfeúnakj*
meötómótum
Avextir
Epli
og bláber
CÍruimnrtt
Culnetur
99..................
Við sættum okkur
ekki við hvernig ríkis-
stjórnin hefur vaðið
yfir land og þjóð á
skítugum skónum.
Pað er greinilegt að unga fókið
lætur sig einnig varða hita-
mál samfélagsins og mörg
reyna þau að hafa áhrif á framgang
mála í þjóðfélaginu.
Krakkarnir í félagsmiðstöðinni
101 í Austurbæjarskóla hafa nú tekið
höndum saman og lýst yfir and-
stöðu sinni við stóriðjustefnu stjórn-
valda hér á landi. Þau hafa sent út
opinberar yfirlýsingar þar sem þau
segjast ekki „sætta sig við hvernig
ríkisstjórn hefur vaðið yfir land og
ijóð á skítugum skónum“, eins og
iau orða það. Þá lýsa þau einnig
áhyggjum sínum af gengishækkun
krónunnar í kjölfar aukins hag-
vaxtar vegna stóriðju sem gerir það
að verkum að íslensk útflutningsfyr-
irtæki eru fæld í burtu. Að síðustu
nefna þau sérstaklega íslenska nátt-
úru, en að þeirra mati er hún sú sem
líður mest fyrir mistök mannanna í
þessum efnum.
Þær Kolfinna Nikulásdóttir og
Nanna Elísa Jakobsdóttir eru í for-
svari fyrir þetta andsvar félagsmið-
stöðvarinnar, en þær segja mikil-
vægt að taka hér í taumana og leggja
fjármagn í annað en stóriðju.
„Að mati okkar allra er mikilvæg-
ara að huga að fjölbreyttari störfum
innanlands í stað þess að einblína
aðeins á einn möguleika. Okkur
finnst heldur ekki sanngjarnt að
ríkisstjórn kynni aðeins jákvæðar
hliðar stóriðjunnar og sleppi því að
upplýsa almenning um allar hliðar
málsins. Svo er auðvitað skrýtið að
þeir forðist þjóðaratkvæðagreiðslu
um þessi mál,“ segja þær stöllur,
sem greinilega hafa sterkar skoð-
anir hvað þetta varðar. Aðspurðar
um tilefni þessa átaks í félagsmið-
stöðinni segja þær nemendaráð
hafa sammælst um að láta heyra í
sér varðandi stóriðjuna. „Það kom
upp hugmynd hjá einum í nemenda-
ráðinu og það voru allir sem studdu
hana - þ.e. að láta andstöðuna í ljós.
Það fannst öllum þetta frábær hug-
mynd sem hefur mikinn rétt á sér
og við erum öll mjög ánægð með
þessa ákvörðun okkar. Það þarf að
finna aðrar leiðir og það er mjög
mikilvægt að almenningur sé nægi-
lega upplýstur um það sem yfirvöld
eru að gera í þessum efnum og eins
afleiðingar virkjana af þessum toga.
Auðvitað lætur fólk sig þetta varða
og við unga kynslóðin erum þar
engin undantekning - þetta skiptir
okkur líka miklu máli og við höfum
ýmislegt um þjóðfélagsmál sem
þessi að segja."
Kolfinna og Nanna segjast að
lokum vona að félagsmiðstöðin geti
haft einhver áhrif, þó ekki sé nema
bara til þess að vekja yfirvöld og al-
menning til umhugsunar.