blaðið - 12.04.2006, Page 26
26 I MATUR
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 blaöið
Kjúklingabollur með chili
Matargerð úr hökkuðu kjúklingakjöti er ekki algeng hérlendis, en þessar chili bollur eru
fyrirtaks uppskrift til að byrja á.
Við íslendingar höfum undanfarin
ár byrjað að neyta kjúklingakjöts í
mun ríkara mæli en áður. Kjúkling-
ur er skemmtilegt hráefni þar sem
hann hentar í mjög fjölbreytta mat-
argerð. Hugmyndirnar eru nánast
óendanlegar og margt annað hægt
að gera en að grilla eða... grilla? Til
dæmis er það algengt í Austurlönd-
um að hakka kjúklingakjöt og gera
úr því bollur sem eru svo borðaðar
sem aðalréttur eða settar í súpu.
Hitaeiningar: 196
Prótein: 26gr
Kolvetni: 15gr
Fyrir Ijóra
Hráefni:
450 gr magurt, hakkað kjúklingakjöt
4 vorlaukar, saxaðir fínt og örlítið geymt
til að skreyta í lokin
1 lítið rautt chili
2.5 cm fínsöxuð engiferrót
100 gr mafsbaunir (sykur- og saltlausar)
Salt og hvítur pipar
Jasmin hrisgrjón sem meðlæti
Sósa
150 ml kjúkiingakraftur
100 gr ananasbitar úr dós en geymið 4
msk af safanum
1 meðalstór gulrót, skorin í strimla
1 lítil rauð paprika, skorin I teninga
1 msk Llós sojasósa
1 msk hrísgrjónaedik
1 msk fíngerður sykur (caster)
1 msktómatamauk
2 tsk maísenamjöl þykkt upp í 4 tsk af
köldu vatni
i. Blandið saman kjúklingahakki,
vorlauk, chili, engifer, maís og
kryddi og hrærið vel.
2. Hnoðið 16 kúlur og setið ofan í
gufusuðupott (eða grind) með
bökunarpappír í botninum. Legg-
ið gufusuðupottinn ofan í pott
með sjóðandi vatni, lokið og sjóð-
ið í 12 mínútur.
3. Setjið kjúklingakraft og ananas-
safa saman í pott og látið suðu
koma upp. Bætið við gulrót og
papriku, lokið og látið malla í 5
mínútur. Bætið restinni af hráefn-
unum við og hrærið í þar til sósan
þykknar. Kryddið og takið af hell-
unni.
4. Þurrkið kjúklingabollurnar og
setjið á bakka, skreytið með rest-
inni af vorlauknum og berið fram
með jasmin hrísgrjónum.
margret@bladid. net
VeÍHltikaíiid er komið í verslanir
Kaffihús: Verslanir: r1 1
Uuqavegi 24 Smáralind Kringlunni Ssnáralind
laugavegi 27 Suðurveri
Akureyri Egilsstóðum TE & KAFFI
fyótió vf/meö kaffi Uó fe og kcffi, vcrduÖ ffc,nleiðslQ íUjai 1984 www.teogkaffi.ii
Hvað er nori?
Japanskur sjávargróður er til
ýmissa hluta nytsamlegur.
Við sushigerð notar maður sölblöð
sem kallast nori til þess að vefja upp
því sem er inni í rúllunni. Þau eru
vanalega á stærð við A-5 blað, ristuð
og mjög þunn en þó er hægt að fá
fleiri gerðir af nori ef vill. Algengust
er sú dökkgræna, en einnig eru til
svört, fjólublá eða dökkrauð nori-
blöð og þau má líka fá misjafnlega
þykk. Vert er að benda á að það er
mjög gott að frysta nori blöð þar sem
þau þiðna nánast um leið og þau eru
tekin úr frysti. Síðast en ekki síst, þá
er hægt að nota Nori í fleira en sushi,
til að mynda er mjög gott að mylja
það yfir fiskrétti og salöt!
margret@bladid.net
Spælegg með sólþurrkuðum kirsu-
berjatómötum - fyrir 1
Það er hægt að gera spælegg mun
meira spennandi. Sóþurrkaðir
kirsuberjatómatar frá La Selva eru
ljúffengir.
Einnig er hægt að nota venjulega sól-
þurrkaða tómata en þeir verða að
sjálfsögðu að vera í kaldpressaðri
extra jómfrúarolíu og fínthakkaðir.
1-2 msk. kókosolía
2 hamingjuegg
2 msk. sólþurrkaðir kirsuberjatómatar í
extra jómfrúaróltfuolíu,
t.d. frá La Selva
Sjávarsalt, t.d. Maldon
Nýmalaður svartur pipar, t.d. Maidon
Bræðið kókosolíuna á pönnunni við miðl-
ungshita, spælið eggin þar til
þau eru gullin og setjið þau á disk. Tóm-
atarnir eru settir á pönnuna og eggin
ofan á með rauðuna niður. Steikt i 2
mlnútur.
Snöggsteiktar frosnar rækjur og
grænmeti-fyrir4
Fljótlegt, hollt og ótrúlega bragð-
gott.
Frosnar rækjur og grænmeti á 10
mínútum.
Einnig er hægt að nota þessa aðferð við
rækjurnar ef nota á þær í annað, eða ef
þiða þarf frosið grænmeti í hvelli. Það
þarf þó að bæta við örlitlu vatni svo
rækjurnar eða grænmetið brenni ekki
eða festist við. Munið að nota góða wok-
pönnu sem þolir háan hita.
1 poki frosnar rækjur (400-500 gr)
1 poki wokblanda (150-200 gr),fersk
eða frosin, t.d. frá
Himneskri hollustu
300 gr spínat, ferskt eða frosið
1 /8 hvítkálshöf uð, skorið í þunna strimla
1 fíntsaxað hvitlauksrif
5 gr fíntsöxuð engiferrót
3-4 dr. fiskisósa
Sjávarsalt, t.d. Maldon
Nýmalaöur svartur pipar, t.d. Maldon
Kókos- eða extra jómfrúarólífuolía
Sojasósa, t.d. frá Himneskri hollustu
Sítrónu- eða limesafi
E.t.v. Crema di Balsamico frá LaSelva
Hitið wokpönnu eða aðra pönnu á
hæsta hita í 5-10 mín. Setjið
rækjurnar á pönnuna og hrærið
og veltið þeim fram og aftur svo
að þær
brenni ekki við. Bætið grænmet-
inu við, svo og hvítlauk, engifer
og
fiskisósu ásamt salti og pipar eftir
svona 2 mín. eða þegar
rækjurnar eru orðnar þíðar.
Snöggsteikið áfram í ca 2 mín þar
til grænmetið er meyrt.
Berið grænmetis- og rækjublönd-
una fram með kókos-eða ólífuolíu,
soyasósu, sítrónusafa og e.t.v. ör-
litlu Crema di Balsamico.
Hreint jógúrt með
bankabyggi - fyrir 1
Bankabygg þarf að marínera í
blöndu af vatni, ediki og sítrónu-
safa yfir nótt
(sjá nánar í heftinu ”10 uppskriftir
með heilkorni”).
Bankabygg er sjálfsagður morgun-
matur þar sem það seður vel og
heldur blóðsykri stöðugum. Bætið
mysupróteini og hollri fitu eins og
hörfræjaolíu saman við til að auka
hollustugildið.
1 di bankabygg (helstfrá Móður Jörð)
2 dlvatn
skvetta af sitrónusafa, eplasiderediki
eða ediki úr brúnum hrísgrjónum.
1 dós hreint jógúrt (gjarnan Bio Bu)
ögn af kaneldufti, t.d frá Sonnentor
ögn af vanilludufti, t.d. frá Himneskri
hollustu
ögn af kardemommudufti, t.d. frá Sonn-
entor
e.t.v. 1-2 msk. extra jómfrúar-hörfræjaol-
ía, t.d. frá Himneskri hollustu eða Orgran
e.t.v. 1 mæliskeið mysupróteinduft, t.d.
frá Himneskri hollustu
e.t.v. svolítið af ferskum berjum eða epla-
bitum með sitrónusafa
e.t.v. xylitol ef fólk vill meiri sætu
Setjið bankabygg, vatn, sítrónusafa eða
edik í pott kvöldið áður og látið standa
yfir nótt. Um morguninn er kveikt undir
pottinum og hitinn lækkaður þegar sýð-
uren látið krauma
i pottinum með lokinu á I ca. 15 min eða
þar til byggið hefur dregið allan vökv-
ann í sig. Hrærið létt og varlega jógúrti,
mysupróteini, kryddi, olíu og ávöxtum í
bankabyggið og njótið.