blaðið - 12.04.2006, Blaðsíða 35
blaðið MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006
AFREYmG l 35
Konungur frumskógarins mœttur
Hingað til lands er mættur drum
and bass/jungle tónlistarmaðurinn
Roni Size sem mun spila á Nasa mið-
vikudaginn 19. apríl ásamt völdum
tónlistarmönnum
Frá Bristol í Englandi kemur maður
að nafni Ryan Williams en hann er
betur þekktur sem Roni Size og er eitt
stærsta og virtasta nafnið í drum and
bass heiminum. Roni Size skilur eftir
sig gríðarlegt magn af smáskífum,
breiðskífum, endurhljóðblöndunum
og öðrum tónverkum og hefur hann
unnið með tónlistarmönnum á borð
við Method Man úr Wu Tang Klang,
Rage Against the Machine og Cypress
Hill. Einnig hefur Roni Size spilað út
um allan heim og þá oft með heilli
hlljómsveit en hann stofnaði hljóm-
sveitina Roni Size / Reprazent með
félögum sínum DJ Die, DJ Suv, MC
Dynamite, Dj Krust og Onallee.
Örlagaplatan
Frægasta verk þeirra er sennilega
fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar
en hún ber nafnið New forms og
kom út árið 1997 en sú plata hlaut
Mercury verðlaunin í Bretlandi. í
framhaldinu varð Roni Size einn
vinsælasti og virtasti drum and bass
tónlistarmaður Bretlandseyja og
náðu vinsældir hans langt út fyrir
heimalandið og platan New Forms
seldist meðal annars grimmt á Is-
landi. Sú breiðskífa markaði nokkuð
nýja stefnu í drum and bass sem var
orðið nokkuð staðnað í tveimur
Ronl Size
MBhíinfwfiny * Tggaa á' fjBw
■ m
v 1 * > *
deildum. Annars vegar var það hið
dökka og hraða techstep sem heyra
mátti á klúbbum og hins vegar intell-
igent drum and bass með seiðandi
takti og hljóðum. New Forms braut
upp þessa tvíhyggju og fór nýstár-
legar leiðir í samanbræðingi takta
og radda.
Upphaf ferils Roni Size má rekja
til þátttöku hans í verkefninu Base-
ment Project program for Bristol’s
musical youth, og kom fljótt í ljós að
hann stefndi á að endurskilgreina
danstónlistina. Með rætur í dub
,reggae og hip hop stakk hann sér á
bólakaf í danssenu níunda áratugar-
ins ásamt hljómsveitum og tónlistar-
mönnum á borð við Massive Attack,
Tricky og fleirum.
Miðvikudaginn 19. apríl, ásamt
Roni Size, koma fram tónlistar-
menn á borð við techno gestgjafann
Exos, Hermigervil sem spilar ferskt
lifandi efni og Reykjavik Swing Orc-
hestra sem samanstendur af þremur
hljómsveitarmönnum, söngkonu,
bassaleikara og raftónlistarmanni.
Dr.Mista og Mr.Handsome koma
einnig fram. Plötusnúðarnir Dj Ri-
chard Cuellar og Dj Óli Ofur slá tón-
inn á efri hæðinni ásamt Dj Kaido
Kirikmae sem er einn virtasti plötu-
snúður og tónlistarmaður Eistlands.
Húsið opnar kl.23.00. Miðaverð
er aðeins 1.800 krónur við hurð en
1.400 krónur í forsölu en miðar eru
seldir í 12 tónum. Roni Size er í boði
TECHNO.IS.
Kiefer Sutherland i hlutverki leyni-
þjónustumannsins Jack Bauer.
Kiefer mal-
ar gull
Leikarinn góðkunni Kiefer
Sutherland hefur gert nýjan
samning við framleiðendur sjón-
varpsþáttarins 24 sem fjallar
um leyniþjónustumanninn Jack
Bauer og baráttu hans við ill öfl.
Samningurinn sem um
ræðir er fyrir þrjár þáttaraðir
af þessum metsöluþætti og fær
Kiefar fyrir vikið litlar 40 millj-
ónir dollara. Leikarinn sem
er 39 ára verður þannig einn
hæstlaunaði sjónvarpsleikari
Bandaríkjannna.
Ísöld2 slœr met
fsöld 2 sló um helgina opnunarmetiö á teiknimynd á Islandi og velti þar með myndinni
Madagaskar úr sessi sem hún hefur haldiö frá því í júlí í fyrra. A (söid 2 fóru 11.843
manns frá föstudegi tii sunnudags og samtals halaði hún inn 8.1 milljón í aðsóknartekj-
ur. Isöid 2 bætti metið tiltöiulega því þetta er meira en 1.000 manns í aðsókn frá gamla
metinu og tæpum 600.000 kr meira i aðsóknartekjur. Uppselt var á flest allar dagsýn-
ingar um helgina og þess má geta að sunnudagurinn 9. apríl 2006 var stærsti einstaki
dagur Smárabíós frá opnun fyrir tæpum 5 árum en ails borguðu sig inn 3.636 manns í
fyrradag og nam sjoppusalan hvorki meira né minna en einni og hálfri milljón. Að end-
ingu má nefna að fsöld 2 var með tæpa 60% af allri bíóaðsókn helgarinnar.
Hvaðerað gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði líðandi stundar. Sendu okkur línu á gerast@bladid.net
12.20 - Fyrirlestur Þjóðleikhúsið
Einar Guðbjartsson: Óefnislegar Midi.is| Verkið, sem er gestasýn-
eignir í efnahagsreikningi ing í Þjóðleikhúsinu, verður ein-
Oddi stofa 101 ungis sýnd þrisvar sinnum. Höf- undur og ílytjandi er Margrét
16.00-Sýning Lósmyndir Sigríðar Bachmann í Sigurðardóttir.
Skotinu 21.00-Tónlist
Ljósmyndasafn Reykjavíkur F.R.E.T á Blúshátíð Þjóðleikhúskjallarinn
19.00 - Leikrit Litla Hryllingsbúðin 22.00-Leikrit
Leikfélag Akureyrar Litla Hryllingsbúðin
Miðasala á midi.is Leikfélag Akureyrar Miðasala á midi.is
20.00-Dans Vorsýning Listdansskóla íslands 22.00-Tónlist
Borgarleikhúsið Númer Núll og Múgsefjun
Miðasala á midi.is Barn
21.00-Tónlist 22.00 -Tónlist
Blúshátíð í Reykjavík 2006 Malneirophrenia, Mogadon og
Stórtónleikar á Nordica Hótel Indigo
Miðasala á midi.is Grandrokk Sjá umfjöllun á opnu
21.00-Leikrit BIG CRY
B
dekkjanna
taldir!
www.reykjavik.is/fs