blaðið - 12.04.2006, Page 38
38 I FÓLK
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2006 blaöiö
GETTU BETUR
OG RISAEGG
Smáborgarinn fylgdist með sínum
gamla skóla tapa í úrslitum Gettu betur
í síðustu viku. Fyrir keppnina hafði Smá-
borgarinn talið Verzlingana líklegri en
eftir hraðaspurningarnar var nokkuð
Ijóst að Hljóðneminn myndi hreiðra um
sig í Eyjafjarðarsýslunni næsta árið. Og
sannarlega var það verðskuldað. Lið
Akureyringanna stóð sig frábærlega og
þá sérstaklega miðjumaðurinn Ásgeir
sem þrátt fyrir dulúðlegt útlit er óhætt
að kalla „no-nonsense player" að hætti
tjallans. Svipaður og Michael Dawson í
vörninni hjá Tottenham. Ekki verður þó
af Ofanleitismönnum tekið að þeir eiga
fínasta lið og vafalaust munu þeir fara
alla leiðaðári.
Smáborgarinn má til með að minn-
ast á skemmtiatriði Menntaskólans á
Akureyri. Til voru kallaðir ungir sveinar
vopnaðir gítar og blokkflautu og léku
þeir eitt alsýrðasta lag sem Smáborgar-
inn hefur heyrt. „Hann ersvarturog með
stél" ómaði í sjónvarpssal og hefur ómað
í toppstykki Smáborgarans æ síðan. Und-
ursamlega fáránlegt og skemmtilegt.
Hormónasprautuð páskaegg
Yfir i siðmenninguna. Um þessar mund-
ir er vart þverfótað fyrir páskaeggjum í
matvöruverslunum landsins, enda pásk-
ar í nánd. Smáborgarinn er mikill sælkeri
og nýtur þess að gæða sér á páskaeggj-
um þrátt fyrir að vera fullmeðvitaður
um hversu óholl og óhagkvæm þau eru.
Smáborgarinn leggur ekki f vana sinn
að röfla yfir óhollustu en honum brá þar
sem hann var staddur í matvöruverslun í
vikunni og sá hversu vitfirringslega stór
súkkulaðieggin eru orðin. Stærstu eggin
náðu fullvaxta karlmanni upp að hné og
voru þung eftir því.
„Hver gefur barninu sínu svona páska-
egg?" spurði Smáborgarinn vin sinn þar
sem þeir gengu slefandi um nammiálm-
una. Svarið stóð ekki á sér: „Sá sem vill
drepa það," svaraði vinurinn. Eflaust er
full djúpt í árina tekið að stimpla foreldra
sem gefa slík páskaegg sem morðingja,
en Smáborgarinn óskar engu barni að
fagna upprisu Jesú með því að innbyrða
slíkt magn af rjómasúkkulaði. Jesú fór
ekki á fæturfyrir það.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Björn Ingi Hrafnsson, framsóknarmaður.
Hvar er Framsóknarflokkurinn?
„Hann er traustur bakhjarl okkar hóps og allra annarra framboða B-list-
ans til þessara sveitarstjórnarkosninga. Framsóknarflokkurinn hefur í
tæplega nítíu ár boðið fram undir merkjum B-listans og í borgarstjórnar-
kosningunum '82, '86 og '90 þá var auglýst undir merkjum hans og gekk
það vel. Því gerum við það einnig nú en höldum áfram að kynna okkar
málstað undir merkjum Framsóknarflokksins jafnhliða, enda förum við
ekki að fórna einu dýmætasta vörumerki landsins.“
Auglýsingar B-listans hafa vakið athygli fyrir frísklegt útlit, en bent hefur verið á að í þeim fari lítið fyrir nafni flokksins sem að
baki framboðinu standi, það er að segja, Framsóknarflokknum.
Franskir stúdentar frá Bordeaux mótmæla í Suður-Frakklandi.
Hljómsveitin Rolling Stones á tónleikum I Sydney, Ástralíu.
Vinnumenn halda áfram viðgerðum á Sfinx-
inum í Giza í Egyptalandi.
Sumardekk
Öryggi bílsins byggist
á góðum hjólbörðum
GÚMMÍVINNUSTOFAN
SP dekk
Skipholti 35. 105 RVK
Sírni: 553 1055
eftir Jim Unger
Það voru ekki til fiskibollur.
6-23
O Jlm Unger/dlst. by Unlted Medla, 2001
HEYRST HEFUR...
Ollum að óvörum var Hjör-
dís Hákonardóttir skipuð
í Hæstarétt þó
engum dyljist að
dr. Páll Hreins-
son, lagaprófess-
or, væri henni
mun hæfari til
starfans, svona
út frá júrískum sjónarmiðum.
Nú bíða menn þess í ofvæni
hvort dr. Páll kæri skipunina
til Jafnréttisráðs, en augljóst
þykir að hann hafi verið látinn
gjalda kynferðis síns...
Enda þótt Baugsmiðlarnir
hafi unnið eiða að ritstjórn-
arlegu sjálfstæði sínu runnu
tvær grímur á áhorfendur NFS
og lesendur Vísis í gær. Frétt
um að seðlabankastjóri hefði
sagt að bankinn væri reiðubú-
inn að hækka vexti enn frekar
ef þörf krefði fékk þannig fyrir-
sögnina „Davíð
vill stýrivexti í
16%“. Kæra Jó- >k,
hannesar Jóns-
sonar í Bónus
á hendur Jóni
Geraldi Sull-
enberger vegna rangra sakar-
gifta var ekki með minni tæpi-
tungu í fyrirsögn: „Jón Gerald
bar ljúgvitni gegn Jóhannesi“.
Orðalagið bendir svo til þess
að Baugsmiðlarnir telji Jón
Gerald ekki síður brotlegan við
Guðs lög en manna...
Ekki þurfti að bíða þess
lengi, sem spáð var á þess-
um stað, að
innan skamms
myndu Dagur
B. Eggertsson
og sveinar
hans í Samfylk-
ingunni láta að
sér kveða í kosningabaráttunni.
I gær birtust fyrstu auglýsingar
flokksins í kosningabaráttunni,
þar sem fjallað var um málefni
aldraðra og púað á málflutning
ihaldsins. Ekki er minnst einu
orði á aðra flokka, en þannig
vill Dagur vafalaust ýta undir
að kjósendur telji sig knúna til
þess að taka aðeins afstöðu til
turnanna tveggja, hinir flokk-
arnir skipti engu máli...
Framsóknarmenn hófu um
leið auglýsingaherferð
sína og dugði ekki minna en
opnuauglýsing. Þar fer Björn
Ingi Hrafnsson fyrir brosmild-
um frambjóðendum B-listans
á öðrum nótum en hjá Sam-
fylkingunni
og lætur sam-
anburðinn við
aðra flokka að
mestu eiga sig.
Þó ekki alveg,
því þar stendur:
„Margir stjórnmálamenn vilja
ástunda samræðustjórnmál.
Við erum hins vegar athafna-
stjórnmálamenn.“ Þess er vart
langt að bíða að framsóknar-
menn taki upp nýtt slagorð:
Framtak, ekki froðu...
Annars er athyglisvert að
bera saman viðlagið í aug-
lýsingum Samfylkingarinnar
og Framsóknarmanna. Sam-
fylkingarmenn ítreka þannig
„allir með“ og vilja þannig und-
irstrika hvernig flokkurinn sé
að taka við forystuhlutverki
R-listans, þar sem allir séu
velkomnir. Hjá B-listanum er
ekki alveg sama sjálfsöryggið,
því þar er spurt „Ertu með?“.
Segja gárungarnir að sjálfstæð-
ismenn muni örugglega setja
fram slagorðið „Viltu vera
memm?“ til þess að biðla til
kjósenda...