blaðið - 26.04.2006, Page 2
2 I FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 blaðiö
blaöiö—
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
5io 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Stal 30 þúsund
plastfötum
Fyrrum ríkissaksóknari Túrk-
menistan, Kurmanbibi Atadz-
hanova, grátbað Saparmurat
Niyazov,
f o r s e t a
landsins,
um fyrir-
gefningu í
þætti í rík-
issjónvarpi
landsins í
gær.Atadz- Túrkmenbashi skilur
hanova, ekki hvað einn maður
sem sagðl hefur að gera við 30
af sér emb- þúsund plastfötur.
ætti fyrr
í þessum mánuði, er sakaður
um að hafa stolið 25 bílum, 36
húsum, 2 þúsund nautgripum
og 30 þúsund plastfötum af rík-
isstjórn landsins. f sjónvarps-
þættinum ávarpaði hann forset-
ann, sem einnig gengur undir
nafninu Túrkmenbashi, kallaði
hann „Hinn mikla leiðtoga“, við-
urkenndi stuldinn og bað um
fyrirgefningu.
Túrkmenbashi sýndi fyrrum
ríkissaksóknaranum lítinn
skilning og sagðist ekki skilja
hvað einn maður hefði við
30 þúsund plastfötur að gera.
Hann sagðist ekki geta fyrir-
gefið honum glæpinn og að
Atadzhanova yrði dæmdur til
fangelsisvistar.
Túrkmenbashi er leiðtogi fyrir
lífstíð í landinu og er persóna
hans ákaft dýrkuð. Kurmanbibi
Atadzhanova var náinn sam-
starfsmaður hans og sótti hann
meðal annars sextíu manns til
saka árið 2002 en þeir voru grun-
aðir um að eiga aðild að morðtil-
ræði við forsetann. Líktu mann-
réttindasamtök sem fylgdust
með réttarhöldunum þeim við
réttarhöld í valdatíð Jósefs Stal-
íns í Sovétríkjunum.
Blaöiö/Steinar Hugi
ískúludeginum fagnað
Það var kátt á hjalla í Smáralind í gær þegar allir fengu ókeypis íkúlu frá Ben & Jerry's t tilefni alþjóðlega ískúludagsins. Þetta er í 28.
sinn sem hann er haldinn hátíðlegur um heim allan þó Sameinuðu þjóðirnar hafi enn ekki lagt blessun sína yfir hann.
Halldór blæs
á krepputal
Halldór Ásgrímsson, forsætisráð-
herra, var ræðumaður á aðalfundi
Samtaka atvinnulífsins (SA), sem
fram fór í gær og notaði hann tæki-
færið til þess að mótmæla tali um
yfirvofandi samdráttar- eða kreppu-
ástand hér á landi. Benti hann m.a. á
að fjármálaráðuneytið spáði tæplega
2% hagvexti á næsta ári og rúmlega
2,5% hagvexti á árunum 2008-2010.
Það væri minni hagvöxtur en á und-
anförnum árum, en samt hærri en
verið hefur í flestum ríkjum Evrópu.
Forsætisráðherra telur að menn
vanmeti innri styrk íslenska hagkerf-
isins, „ekki síst sveigjanleika þess
og getu til að mæta utanaðkomandi
sveiflum og bregðast við þeim á
skjótan og árangursríkan hátt.“
Halldórs sagðisumahaldaþví fram
að þörf væri á verulegri stefnubreyt-
ingu í efnahagsmálum, en kvaðst
ósammála því. Miklum breytingum
og framförum fylgdi jafnan nokkur
órói og þá væri einmitt hvað mest
ástæða til þess að halda stefnufestu
og ró. Efnahagsstefna ríkisstjórnar-
innar hefði skilað miklum árangri
sem meðal annars birtist í rúmlega
25.000 nýjum störfum hér á landi frá
árinu 1995. „Með hringlandahætti og
vanstillingu er hins vegar auðvelt að
missa tækifærin út úr höndunum,“
sagði Halldór.
Frumvarp um kjararáö til bóta
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Ögmundur Jónasson hyggjast bæði styðja frumvarp um
kjararáð. Bæði telja þau þó að breyta beri fyrirkomulagi við ákvörðun launa þingmanna.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar í
efnahags- og viðskiptanefnd taka
undir gagnrýni Alþýðusambands
íslands á nýtt frumvarp um kjararáð
en hyggjast engu að síður styðja
frumvarpið og kalla það skref í
rétta átt. Eins og greint var frá í
Blaðinu í gær hefur ASf skilað inn
áliti á frumvarpið til nefndarinnar
ar sem það er harðlega gagnrýnt.
frumvarpinu er gert ráð fyrir að
fimm manna kjararáð leysi kjaradóm
og kjaranefnd af hólmi við að
ákvarða laun æðstu embættismanna
þjóðarinnar.
Áættanleg málamiðlun
Ögmundur Jónasson, þingflokks-
formaður VG segist munu styðja
frumvarpið eins og það er í dag þrátt
fyrir að hann hefði viljað sjá frekari
breytingar gerðar í þessum málum
en hann hefur meðal annars lagt
fram frumvörp þess efnis. „Fyrir
mitt leyti mun ég styðja frumvarpið
enda byggir það á samvinnu allra
flokka á Alþingi.“ Ögmundur segist
hins vegar hafa viljað fyrir sitt leyti
sjá þetta mál vera leyst með öðrum
hætti. „Ég hefði viljað að ákvarðanir
um launakjör alþingismanna og
ráðherra yrðu teknar af þinginu
sjálfu." Hann segir þá afstöðu byggja
á því að þannig væri hægt að kalla
einhverntilábyrgðarþegarákvarðanir
um launamál valda deilum. Það væri
að sögn Ögmundar sannarlega hægt
gagnvart Alþingismönnum. „Hins
vegar er stigið skref í þessa átt í þessu
frumvarpi. Einnig er búið í haginn
fyrir að fækkað verði verulega þeim
sem fá sín laun samkvæmt úrskurði
kjaradóms eða kjaranefndar og stefnt
verður að því að fjölmennir hópar
embættismanna eins og prestar og
prófessorar semji um sín laun eins
og aðrir.“ Ögmundur segir að þrátt
fyrir að ekki sé kveðið á um þetta
í frumvarpinu þá sé búið í haginn
fyrir það að þróunin verði á þá leið í
framtíðinni.
„Ég hef vissulega gert tillögur um
öðruvísi fýrirkomulag á þessum
málum sem ég hefði frekar viljað
sjá verða að veruleika, en þetta er
málamiðlun sem ég ætla að fella mig
við.“
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda-
stjóri ASÍ er ósáttur við að ákvörðun
um lífeyrisréttindi . kjörinna
fulltrúa sé ekki inni í frumvarpinu.
Ögmundur segist oft hafa lýst
því yfir að kjörnir fulltrúar eigi
að hafa sömu lífeyrisréttindi
og aðrir landsmenn. „En það er
minnihlutasjónarmið í þinginu og
þetta mál var aldrei lagt upp þannig
að tekið yrði á lífeyrisréttindunum.
Hins vegar er vísað til réttinda á
borð við lífeyriskjörin í frumvarpinu
og kjararáði er gert að líta til slíkra
réttinda við ákvörðun kjara þessara
hópa.“
Skref í rétta átt
„Ég held að það sé engum blöðum um
það að fletta að með þessu frumvarpi
er verið að gera jákvæðar breytingar
sem ættu að koma til móts við þá
gagnrýni sem fram kom á lögin um
síðustu áramót," segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður
Samfylkingarinnar. „Hitt er svo
annað mál, að það er ekki verið með
þessu að taka á öllu því sem lýtur
að starfskjörum þingmanna eins
og Gylfi benti réttilega á í viðtali
í Blaðinu í gær.“ Ingibjörg segist
efnislega geta tekið undir sjónarmið
ASf þess efnis að þingmenn eigi ekki
að fá að ákvarða hluta sinna launa
sjálfir. „En það er spurning hvort það
mál eigi að leysa í þessari atrennu eða
hvort við eigum að vinna okkur í þá
átt"
Ingibjörg segir frumvarpið því
tvímælalaust skref í rétta átt þrátt
fyrir að ekki sé tekið heildstætt á
kjaramálumþingmanna. „Enþað var
ekki það verkefni sem nefndinni var
falið og því ekkivið hana að sakast í
því efni. Ég held að það sé til bóta að
samþykkja þetta frumvarp og þá er
jafnframt hægt að taka ákvörðun um
hver næstu skref í þessum málum
verða. Við eigum að mínu mati að
fara í þá átt sem ASÍ bendir á því
það er auðvitað eðlilegast að líta á
kjaramálin sem eina heild."
Ingibjörg bætir því við að það
sé einnig brýnt að reyna að ljúka
breytingum á eftirlaunamálum
þingmanna en óvíst sé hvort
það takist. „Það mál er statt hjá
forsætisráðherra, hann getur ekkert
komið sér undan því.“
's'qrænmeti
sérmerkt þér!
HeMMdltO Léttskýjaðii*-*. Skýjaö Alskýjaö'’ • -■ Rigning, litilsháttar‘~^Rigningiíy.Súld “ SnJókoma.i£Ái. Slydda^^ SnJöélH^Skúr
Algarve Amsterdam 19 13
Barcelona 22
Berlín 19
Chicago 04
Dublin 13
Frankfurt 16
Glasgow 11
Hamborg 15
Helsinki 08
Kaupmannahöfn 09
London 16
Madrid 23
Mallorka 22
Montreal 04
NewYork 07
Orlando 21
Osló 08
París 15
Stokkhólmur 10
Vín 21
Þórshöfn 06
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands