blaðið - 26.04.2006, Side 12
12 I DEIGLAN
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 blaAÍÖ
Vítisvélar og fyrirlestrar i Salnum
Útskriftartónleikar og -fyrirlestrar tónlistardeildar Listaháskóla íslands í Salnum í Kópavogi í kvöld.
Með skinku oq osti
Fulleldaðir og tilbúnir JVtHl||tI$
á pönnuna eða í ofninn! „„■dmnnunrhoi,,
Ein af myndum Hjörleifs sem sýnd er í Öskju, náttúrufræðihúsi Háskóla Islands.
Náttúra íslands
í myndum Hjörleifs
í dag verður opnuð ljósmyndasýning
í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla
íslands, í tilefni af 70 ára afmæli nátt-
úrufræðingsins og náttúruljósmynd-
arans Hjörleifs Guttormss'onar.
Sýndar verða 28 myndir úr stóru
ljósmyndasafni Hjörleifs sem
teknar voru á árunumi968-2003.
Það er Landvernd sem stendur að
sýningunni. Myndirnar eru frá
öllum landshlutum og endurspegla
fjölbreytileika íslenskrar náttúru.
Flestar eru þær stækkaðar í íoocm
og þykja njóta sín vel í birtunni í
Öskju.
Ljósmyndirnar sem sýndar eru
verða til sölu þegar sýningunni
lýkur. Hagnaður af sölunni mun
renna til Lögverndarsjóðs náttúru
og umhverfis sem hefur það hlut-
verk að styðja málafylgju sem varðar
almenna hagsmuni um verndun
náttúru og umhverfis. Eitt af meg-
inverkefnum sjóðsins um þessar
mundir er að fjármagna málaferli
vegna mats á umhverfisáhrifum
Norðlingaölduveitu í Þjórsárverum.
1 tilefni af opnun sýningarinnar
mun Hjörleifur halda stutta kynn-
ingu í sal 132 í Öskju í dag. Þar mun
hann greina frá þeim stöðum sem
myndirnar 28 sýna. Kynning þessi
er opin og allir velkomnir. Sýningin
stendur yfir til 18. maí og er opin
alla daga nema sunnudaga.
Ljósmyndirnar frá sýningunni
má einnig finna á heimasíðu sam-
takanna www.landvernd.is.
Miðvikudaginn 26. apríl verður
verkið Vítisvélar eftir Hallvarð Ás-
geirsson frumflutt í Salnum í Kópa-
vogi. Verkið er útskriftarverk hans
frá Listaháskóla Islands, en hann
útskrifast af Nýmiðlabraut Listahá-
skólans nú í vor. Var það í annað
sinn sem útskrifað er af þeirri braut.
Fyrir tónleikana halda tveir
útskriftarnemendur í tónlistar-
fræðum og tónlistarkennslu fræði-
lega fyrirlestra um lokaverkefni sín.
Það eru þær Þorbjörg Daphne Hall
sem heldur fyrirlestur um ættjarð-
arlög og Aðalheiður Margrét Gunn-
arsdóttir sem heldur fyrirlestur um
mátt tónmenntakennslu og viðhorf
11 ára barna til tónmenntarkennslu.
Ryðmíski þátturinn og
andrýmishugmyndir
,1 Vítisvélum leitast ég við að nota
ryþmíska þáttinn sem drifkraft
í tónlistinni. Við þetta blandast
önnur áhrif, þar sem ég hef gengið
út frá andrýmishugmyndum, þ.e.
hugmyndum um tóna sem flæða
yfir hverja aðra. Sú hugsun smitast
„f Vítisvélum leitast ég við að nota ryþmíska þáttinn sem drifkraft í tónlistinni," segir Halivarður Ásgeirsson, sem frumflytur verkið i kvöld.
síðan yfir í þetta verk, sem var líka
óbeint ætlunin. Samt sem áður er
nýr útgangspunktur fyrir hendi,“
segir Hallvarður um verk sitt.
Hallvarður verður þrítugur á
þessu ári. Hann lék sjálfan sig í kvik-
myndunum Varði fer á vertíð og
Varði goes Europe eftir Grím Hákon-
arson, en einnig kom út geisladiskur
með tónlistinni úr myndinni. Um
þessar mundir er hann meðlimur í
Stórsveit Nix Noltes sem gaf út geisla-
diskinn Orkideur Havaí í fyrra.
Hver er máttur
tónmenntarkennslu?
Aðalheiður Margrét Gunnarsdóttir
hefur starfað sem tónmenntakenn-
ari og kórstjóri í Álftanesskóla frá ár-
inu 2001. „Ég hef oft heyrt frá fólki
á mínum aldri að það hafi verið svo
leiðinlegt að læra tónmennt í grunn-
skóla. Eftir að ég hafði sjálf staðið í
sporum tónmenntakennarans vökn-
uðu hjá mér vangaveltur um það
hvort ég væri að gera eitthvað sem
krökkunum þætti skemmtilegt. Var
ég að glæða hjá þeim áhuga á tón-
list? Hefur tónmenntakennslan þró-
ast í átt að því að gera fagið ánægju-
legra fyrir nemendurna? Á að vera
skemmtilegt að læra tónmennt? Við
þessum spurningum og fleirum
reyni ég að finna svör í ritgerð
minni,“ segir Aðalheiður.
„Ég fór í fjóra grunnskóla á höf-
uðborgarsvæðinu og setti fram
spurningar fyrir nemendur í 6. bekk
um líðan þeirra og viðhorf til tón-
menntakennslu. Þá ræddi ég einnig
við tónmenntakennara þeirra til að
bera saman áherslur í kennslunni.
Niðurstöður könnunarinnar verða
ræddar i tengslum við þróun og
hefðir í tónmenntakennslu á Islandi
sem ég geri grein fyrir í byrjun rit-
gerðarinnar," segir Aðalheiður enn
fremur.
Fyrirlestur Þorbjargar hefst kl. 20,
fyrirlestur Aðalheiðar kl. 20.40 og
tónleikar Hallvarðar kl. 21.30.
Fyrirlestur
í Háskóla
íslands
Runólfur Smári Steinþórson,
prófessor við viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Islands,
flytur erindið „Stefna í raun
og veru: Dæmið um Háskóla ís-
lands" í málstofu Hagfræði- og
Viðskiptafræðistofnunar í dag.
í fyrirlestrinum verður fyrst
gefið yfirlit yfir stefnumiðaða
stjórnun, en einnig verður
fjallað um nýjar áherslur i fag-
inu og þær settar í samhengi
við stefnumótunarvinnu sem
fram hefur farið í Háskóla Is-
lands. Að lokum er fjallað um
lykilspurningar og sjónarhorn
i rannsóknum á stefnumiðaðri
stjórnun í praxis. Málstofan
hefst klukkan 12.20 í Odda og
eru allir velkomnir.
Samtíma-
bókmenntir
í Québec
Fransk-kanadíski rithöfundur-
inn Lise Tremblay heldur fyr-
irlestur hjá Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur í dag. Lise Trem-
blay mun rekja stuttlega sögu
bókmennta í Québec og fjalla
um helstu strauma og stefnur í
þarlendum bókmenntum í dag.
Þá tekur hún fyrir kvenrithöf-
unda og bókmenntir innflytj-
enda sem kosið hafa að skrifa
á frönsku, þrátt fyrir að það sé
ekki þeirra móðurmál.
Fy rirlesturinn verður fluttur á
frönsku en hann verður þýddur
jafnóðum á íslensku. Að honum
loknum fara fram umræður á
ensku. Lise Tremblay er fædd
árið 1957 í bænum Chicoutimi
í Québec-fylki í Kanada. Hún
hefur sent frá sér fjórar bækur,
þrjár skáldsögur (La péche
blanche 1994, L’hiver de pluie
1997, La danse juive 1999) og eitt
smásagnasafn, La héronniére
2003. Lise Tremblay hefur hlotið
fjölda verðlauna fyrir verk sín
og er meðal fremstu rithöfunda
í Québec.