blaðið - 29.04.2006, Síða 24

blaðið - 29.04.2006, Síða 24
24 I VÍSINDI LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 MaöÍA Island hentar vel fyrir gervigreindarrannsóknir ISIR félag íslands um gervigreind og vitvísindi verður formlega stofnað á Gervigreindarhátíðinni í Borgarleikhúsinu í dag en und- irbúningur að stofnun þess hefur staðið yfir í tæpt ár. ISIR stendur fyrir The Icelandic Soci- ety of Intelligence Research og er hugarfóstur Hrafns Þorra Þórissonar tölvunarfræðinema við Háskólann í Reykjavík. Hrafn Þorri segir að hann og félagar hans hafi byrjað að vinna að undirbúningi félagsins fyrir um ári í kjölfar þess að þeir hlutu styrk frá Evrópusambandinu. „Við þurftum að leggja grundvöllinn að því hvað skyldi gert og hver væru helstu mál- efnin sem við vildum snúa okkur að áður en við myndum formlega stofna félagið," segir hann. ESB-styrkurinn dugði þó aðeins fyrir grundvallarút- gjöldum og því hafa í raun allir sem unnið hafa að undirbúningsvinn- unni gert það í sjálfboðastarfi. Þarf að efla áhuga á gervigreind Eitt af meginmarkmiðum ISIR er að efla áhuga á gervigreind og vitvís- indum á fslandi. „Ég vildi að ísland sneri sér meira að þessum málum vegna þess að þau eru í gífurlegri uppsveiflu erlendis og allar spár benda til þess að svo verði áfram. fs- land er í raun mjög vel sett til þess að takast á við svona rannsóknir, sérstaklega hvað varðar hugbúnaðar- þáttinn. Við erum með háhraðanet- tengingar, mjög gott menntakerfi, góð tengsl á milli skóla, heilbrigða samkeppni milli nemenda sem ýtir undir nýsköpun og samskipti,“ segir Hrafn. Jafnframt hyggst félagið standa að reglulegum fundum og fyrirlestrum og stuðla að kynnum og samstarfi fólks með ólíka reynslu- og menntunarbakgrunn. Margir tengja gervigeind einkum við vísindaskáldskap en hún kemur á ýmsan hátt við sögu í daglegu lífi okkar. Mikil uppsveifla hefur verið í um- fjöllun og rannsóknum á gervigreind hér á landi frá því að Gervigreind- arsetur Háskólans I Reykjavík var stofnað fyrir um ári. Engu að síður telur Hrafn Þorri mikilvægt að upp- fræða fslendinga um hvað felist í gervigreind enda hafi margir ekki hugmynd um það. „Gervigreind snýst í raun og veru bara um það að líkja eftir greind í náttúrunni í tölvu,“ segir Hrafn Þorri. Tölvan bregst þá á rökrænan hátt við upplýsingum og tekur ákvarðanir líkt og til dæmis manneskja myndi gera. Látum tölvur sjá um leiðinleg verkefni Hrafn telur mjög mikilvægt fyrir mannkynið að geta nýtt sér þá mögu- leika sem í því felast að geta gætt tölvur greind og látið þær sjá um ýmis hversdagsleg verkefni. „Það er BlaSiö/FMi Hrafn Þorri Þórisson formaður ISIR - fé- lags um gervigreind og vitvísindi. Eitt af meginmarkmiðum ISIR er að efla áhuga á gervigreind og vitvísindum á fslandi. svo mikið af stórum vandamálum í heiminum eins og hungursneyð og hryðjuverk. Því fleiri leiðinleg og tímafrek verkefni sem tölvur geta séð um fyrir okkur þeim mun meiri tíma höfum við til að leysa þessi alvarlegu vandamál. Heimurinn er sífellt að verða flóknari og það þarf að vinna úr sífellt meiri upplýsingum og við þurfum hjálp við það,“ segir Hrafn. Sem dæmi um hagnýta notkun gervigreindar bendir Hrafn Þorri á læknavísindin. „Það eru til róbotar sem skera upp hárnákvæmt, miklu nákvæmar en læknar og koma þannig í veg fyrir mistök. Sömuleiðis nýtist hún við greiningar. Það er til dæmis nýkomið til sögunnar tæki sem greinir krabbameinstilfelli mun hraðar og fyrr, allt að hálfu ári fyrr, en maðurinn gæti ger t,“ segir hann. Gervigreind úr bílskúrnum Gervigreindarhátíðin 2006 verður haldin í fyrsta skipti í dag en stefnt er að því að hún verði árviss viðburður héðan í frá. Sigrún B. Gunnhildar- dóttir umsjónarmaður hátiðarinnar segir að aðstandendur hennar vonist til að auka áhuga íslendinga á gervi- greind og efla rannsóknir á þessu sviði hér á landi. „Gervigreind er vaxandi svið og það sýna allar rann- sóknir að velta í þessum geira mun margfaldast á næstu árum,“ segir hún. „Það er mjög margt að gerast í gervigreindarrannsóknum á Islandi um þessar mundir en almenningur veit samt mjög lítið um gervigreind," segir Sigrún og bendir á að hátíðinni sé öðrum þræði ætlað að bæta úr því. Hátíðin er því ekki síður fyrir almenn- ing en innvígða tölvunarfræðinga. Tvískipt dagskrá Á hátíðinni munu fulltrúar gervi- greindariðnaðarins á íslandi segja þátttakendum og gestum frá ýmsum verkefnum og rannsóknum á þessu sviði og svara spurningum. Dagskrá hátíðarinnar er tvískipt en hún hefst með fyrirlestrum í Borgarleikhúsinu kl. 13. Þar verður einnig ISIR félag um gervigreind og vitvísindi stofnað formlega auk þess sem frumflutt verða tónverk eftir nemendur við Listaháskóla Islands og Háskólann í Reykjavík. Dagskránni í Borgarleikhúsinu lýkur kl. 15 og heldur þá öll hersingin yfir götuna í gamla prentsmiðjuhús- næði Morgunblaðsins. Þar verða fýrirtæki og aðrir sem tengjast gervi- greindariðnaðinum hér á landi með kynningarbása auk þess sem boðið verður upp á veitingar. Jafnframt munu þátttakendur í hinni svo köll- Blaðið/Frikki Sigrún B. Gunnhildardóttir umsjónarmað- ur Gervigreindarhátíðar. uðu Bílskúrsgervigreindarkeppni kynna verkefni sín. Hátíðinni lýkur síðan rétt fyrir kl. 17 með verðlauna- afhendingu í keppninni þar sem veitt verða verðlaun í niu flokkum. Gervigreind kerfi úrgömlu drasli Sigrún B. Gunnhildadóttir segir að bílskúrsgervigreindarkeppnin sé einkum ætluð byrjendum. „Þeir eiga að búa til gervigreind kerfi á sem einfaldastan og ódýrastan hátt. Þess vegna köllum við þetta bílskúrs- gervigreind. Það er miðað við að fólk geti notast við drasl úr bílskúrnum eins og til dæmis gamlar tölvur,“ segir hún. Öllum er heimil þátttaka í keppninni og koma þátttakendur úr ýmsum áttum þó að háskólanemar í tölvunarfræði eða verkfræði séu í meirihluta. SiáttuuéiamarKaðurinn .»\V\Öö Ný verslun á Vagnhöföa 8 . « | Bestu verðin í bænum Flymo Electrolux 4 Hö án drífs með safnara Verð nú kr. 27.900.- Verð áður kr. 34.900.- 4,75 Hö án drífs með safnara Verð nú kr. 29.900.- Verð áður kr. 34.900.- 18 Ho Bnggs & Stratton Besta verðið í bænum kr. 249.000 Fylgir grassafnarí NYTT Bríggs & Stratton orf 4 gengis (þarf ekki að blanda oliu við bensin - minni hávaði) Verð nú 26.900.- Verðáður 37.900.- 15% afsláttur af annarri vöru i verslun (nema sláttutraktorum) Rafmagns vélsög Verð 7.900.- ilMjDHgipir fyrír atvinnumenn Flymo loftpúðavél 25% afsláttur Verðfrá 14.990.- Á TILB0ÐI Bensin velsög Verð kr. 14.900 12” án blaðs, verð 74.900 14” án blaðs, verð 76.900 SlattuueiamarHaðurinn Viðgerða- og varahlutaþjónusta fyrir sláttuvélar og reiðhjól s: 517 2010 Opið 10 -14 laugardaga

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.