blaðið - 29.04.2006, Síða 32

blaðið - 29.04.2006, Síða 32
32 I TÍSKA LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2006 blaöiö Rómantísk og kvenleg Leikkonan Diane Kruger hefur löngum vakið athygli fyrir fallegan, rómantískan og kvenlegan stíl. Þrátt fyrir að leikkonan hafi ekki markað mjög djúp spor í Hollywood muna margir eftir Diane Kruger sem hinni gullfallegu Helen í myndinni Troy. Diane vildi ekki alltaf verða leikkona því hún hóf feril sinn sem mjög farsæll ballettdansari. Ballettferill hennar tók þó fljótt enda þegar hún meiddist við x8 ára aldur. Diane hóf þá að starfa sem fyrirsæta í heimalandi sínu, Þýskalandi, en var fljótt flutt til tískuborgarinnar París til að ná meiri frama. Ekki leið á löngu þar til Diane hóf að sýna föt fyrir stærstu nöfnin í bransanum, Dior, Yves Saint Lauren, Armani og Jill Sander ásamt því að sitja fyrir á forsíðu helstu tískutímaritanna. Þaðan lá leið hennar á hvíta tjaldið en Wolfgang Petersen leitaði mánuðum saman að réttu konunni til að leika Helenu af Troju, konu sem væri svo falleg að hún gæti sett af stað þúsundir skipa. Eftir að Diane þyngdist um 7 kíló, samkvæmt fyrirmælum Petersen, fékk hún hlutverkið og sneri þar með á 3000 aðrar leikkonur. A þessri mynd klæðist Diane aðsniðnum, Diane er gullfalleg og ein af þeim konum rómantískum kjól svo vöxturinn fái að sem líta vel út í hverju sem er. njóta sín. Enda ekki amalegur vöxturl Diane klæðist stuttum, síðum og millisíð- um kjólum sitt á hvað og virðist engan kjósa umfram annan. Diane Kruger var stórglæsileg á Golden Globe hátíðinni í rauðum og rómantískum flauelskjól. Ný sending: Hvítu jakkafötin komin! Nýjar aösniönar Bertoni skyrtur í sumarlitunum. Firði Hafnarfirði I Sími ilcua hafnarfjörður

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.