blaðið - 13.05.2006, Blaðsíða 10
10 I PRÉTTIR
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 blaöÍA
Torfæruhjólamenn valda
stórfelldum náttúruspjöllum
Umhverfisspjöllafvöldumökumanna
torfæruhjóla hafa aukist mikið á
undanförnum árum og segja þeir
sem best til þekkja að ástandið hafi
aldrei verið jafnslæmt. Þó vandinn
sé landlægur er hann einna mestur
á suðvesturhorni landsins, ekki síst
á Reykjanesi og í nágrenni höfuðborg-
arsvæðisins. Skráðum torfæruhjólum
hefur fjölgað mikið á undanförnum
árum en einnig eru mörg óskráð hjól
í umferð. „Nýskráning torfærumótor-
hjóla (Enduro hjóla) jókst frá 13 - 15
hjólum á ári á tímabilinu 1994 - 1996
upp i tæplega 450 hjól á árinu 2004.
Einnig má nefna að af þeim 1908
hjólum sem hafa verið forskráð hér á
landi á síðustu 10 árum hafa einungis
1412 verið nýskráð,“ segir í skýrslu
starfshóps umhverflsráðherra um
vegi og slóða í óbyggðum sem unnin
var á síðasta ári.
Erfitt að hafa uppi á sökudólgum
{ skýrslunni segir jafnframt að tor-
færumótorhjól séu kraftmikil og
fjölmörg dæmi séu um skemmdir af
völdum ökumanna sem farið hafa
óvarlega. „Það er erfitt að sækja mál
þar sem torfærumótorhjól koma við
sögu vegna þess að pottur virðist
brotinn í skráningu þeirra og eins
vegna þess að erfitt er að hafa uppi á
sökudólgnum."
Ásgeir Eiríksson, sýslumanns-
fulltrúi í Keflavík, tekur undir að
utanvegaakstur mótorhjóla sé mikið
vandamál og hafi verið undanfarin
ár en lögreglu gangi illa að hafa uppi
á ökumönnum hjólanna. „Þeir fara
náttúrlega undan lögreglunni þegar
þeir sjá hana þannig að það er ekki
mjög auðvelt að ná þeim. Það lýsir
kannski hug þessara manna þegar
þeir fara undan lögreglu og skemma
náttúruna í leiðinni,“ segir Ásgeir.
Aðstöðuleysi vélhjólamanna
Sumir telja að skýringar á utanvega-
akstri torfærumótorhjólamanna sé
meðal annars að leita í aðstöðuleysi
þeirra. „Skipulögð samtök vélhjóla-
manna hafa því miður ekki alltaf
mætt nægum skilningi stjórnvalda
i viðleitni sinni til að fá afmörkuð
svæði og keppnisbrautir fyrir íþrótt
sína. Nokkur bæjarfélög hafa þó
tekið frá svæði og vonandi heyra
skemmdir af völdum hjólanna brátt
sögunni til,“ segir í skýrslu starfshóps
umhverfisráðherra um vegi og slóða í
óbyggðum.
Vélhjólaíþróttaklúbburinn (VÍK),
sem er stærsti félagsskapur vélhjóla-
íþróttamanna á landinu og hagsmuna-
samtök þeirra, hefur lengi barist fyrir
því að fá viðunandi og varanlega æf-
ingaaðstöðu fyrir félagsmenn sína.
Árið 2003 fékk Vélhjólaíþrótta-
klúbburinn úthlutað svæði í nágrenni
Reykjavíkur sem nýtist félögum til æf-
inga og keppni og í fyrra samdi VÍK
ennfremur við sveitarfélagið Ölfus
um afnot af Bolöldusvæðinu og Jós-
epsdal fyrir íþróttina. Uppbyggingu
Auglýsing - kjörskrá
Borgarstjórnarkosningar 27. maí 2006
Kjörskrá
Kjörskrá vegna borgarstjórnarkosninga 27.maí n.k.mun liggja frammi,almenningi
til sýnis, í Ráðhúsi Reykjavíkur frá 17. maí n.k. fram á kjördag. Vakin er athygli á að
kjörskrána verður einnig að finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is.
Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskrá.
Athugasemdum við kjörskrána skal beina til borgarráðs.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Bílaleigubílar erlendis
sparaðu tíma, peninga og fyrirhöfn.
bókaðu bílinn heima:
&4616010
BILALEIGA
AKUREYRAR
Alamo
þínar þarfir - okkar þjónusta.
Bókanir erlendis | 461-6010 | 08-17 virka daga | ertendis@holdur.is | holdur.is
þessara svæða er ekki enn lokið.
Fyrr á árinu gerði Landgræðsla
ríkisins samning við vélhjóladeild
ungmennafélagsins Þórs í Ölfusi
um afnot af sjö hektara svæði sem
ætlað er til vélhjólaakstursíþrótta
á Hafnarsandi við Þorlákshöfn.
Svæðið uppfyllir öll skilyrði fyrir
íþróttina og með tilkomu samn-
ingsins geta vélhjólamenn stundað
íþrótt sína á afmörkuðu svæði.
Vélhjóladeildin hefur einnig gert
samning við sveitarfélagið Ölfus
um aðkomu þess að uppbyggingu
svæðisins.
Ekki eru allir trúaðir á að tilkoma
afmarkaðra svæða fyrir torfærumót-
orhjólamenn muni draga úr utanvega-
akstri, svæðin verði fyrst og fremst
notuð til æfinga og keppni en stór
hópur muni halda áfram að aka um
óbyggðir og valda náttúruspjöllum.
Státa sig af náttúruspjöllum
Vélhjólaíþróttaklúbburinn hvetur
félagsmenn sína til þess að aka ekki
utan vega og virða náttúruna. Sér-
stök umhverfisnefnd starfar á vegum
klúbbsins sem meðal annars hefur
gefið út bækling um hvernig bifhjóla-
menn eigi að ganga um landið og
Mynd/Ámi Tryggvoson
koma fram við annað útivistarfólk.
Ljóst er að boðskapurinn nær ekki
eyrum allra vélhjólamanna og þess
þekkjast jafnvel dæmi að þeir birti
myndir og gorti sig af utanvegaakstri
á heimasíðum. „Dæmi um hugsunar-
eða virðingarleysi gagnvart náttúru
landsins er að finna á myndum af
heimasíðu „torfærusamtaka". Myndir
af utanvegaakstri þar sem menn státa
sig af gerðum sínum,“ segir í skýrslu
starfshóps umhverfisráðherra.
Sumir telja að draga megi úr
landspjöllum ökumanna torfæru-
tækja með því að herða viðurlög við
landspjöllum sem unnin eru með
utanvegaakstri. Samkvæmt leiðbein-
ingum ríkissaksóknara geta sektir
fyrir brot af þessu tagi verið á bilinu
5.000 til íoo.ooo krónur en algengt er
að þeir sem staðnir eru að verki fái um
20.000 króna sekt. Það fer eftir eðli og
umfangi brotsins hve há sektin er auk
þess sem hún hækkar ef ökumaður
reynist réttindalaus eða hjólið óskráð.
„Það eru nokkuð harðar refsingar við
þessu. Ég veit ekki hvort það hafi til-
gang að hækka refsingarnar. Þá flýja
menn frekar undan lögreglunni,"
segir Ásgeir Eiriksson, sýslumanns-
fulltrúi í Keflavík.
Getur tekiö náttúruna
áratugi að jafna sig
Utanvegaakstur veldur margs
konar skemmdum á gróðri
og dýralífi. Erfitt er að afmá
skemmdir á íslenskri náttúru
enda liggur landið rétt sunnan
við heimskautsbaug þar sem vaxt-
artími gróðurs er stuttur og það
getur tekið áratugi fyrir sárin að
gróa.
í síðasta mánuði greindi Land-
IAN ANDERSON
Ctlll
græðsla ríkisins frá því að miklar
skemmdir hefðu verið unnar á
uppgræðslusvæði hennar á Héraðss-
andi á Fljótsdalshéraði. Þar hafði
verið ekið yfir viðkvæmt land á
jeppum og mótorhjólum þar sem
uppgræðsla hefur verið stunduð í
tugi ára. Einnig hafa torfæruhjóla-
menn unnið skemmdir á gróðri í
Sandvík á Reykjanesi þar sem kvik-
mynd Clint Eastwood, Flags of Our
Fathers, var tekin að hluta til í fyrra.
„Landgræðslan tók að sér að ganga
frá eftir kvikmyndatökuna og stýra
þeim aðgerðum. Núna er búið að
tæta þetta upp á mótorhjólum. Það
er svolítið magnað að það var mikið
veður gert út af kvikmyndatöku þar
sem menn gengu frá eftir sig en nú
eru það mótorhjól sem eiga í hlut og
það segir enginn neitt,“ segir Garðar
Þorfinnsson, héraðsfulltrúi Land-
græðslunnar á Suðurlandi.
Umhverfisvernd
Umhverfisvottun