blaðið - 13.05.2006, Page 17
blaðið LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006
SAGA I 17
Jóhannes Páll páfi stendur (opnum bíl og heilsar mannfjöldanum á Péturstorginu I Róm
í þá mund er tilræðismaður hans Mehmet Ali Agca hef ur skammbyssu sína á loft (sjá
hring á myndinni til vinstri).
Heimshornaflakkarinn
Jóhannes Páll II páfi hafði setið þrjú
ár á páfastóli þegar reynt var að ráða
hann af dögum árið 1981. Hann var
fyrsti Pólverjinn sem varð páfi og
fyrsti páfinn í 456 ár sem ekki var
ítalskur. Jóhannes Páll II páfi tal-
aði nokkur tungumál reiprennandi
og var óþreyttur við að ferðast um
heiminn og hitta fólk. Fyrir vikið
naut hann mikillar hylli almenn-
ings. Hann heimsótti meira en 100
lönd og áætlað er að hann hafi farið
27 sinnum í kringum jörðina.
1 febrúar á síðasta ári var hann
lagður inn á sjúkrahús og lést hann
tveimur mánuðum síðar. Tvær millj-
ónir manna flykktust til Vatíkans-
ins til að vera við útför hans sem
Jóhannes Páli páfi II var óþreyttur við að
ferðast um heiminn og fara út á meðal
fólksins.
talið er að hafi verið sú stærsta í
mannkynssögunni.
Jóhannes Páll páfi var haldinn
Parkinsons-sjúkdómnum sem gerði
það að verkum að hann átti erfitt
með að ganga og tjá sig í mæltu
máli. Þrátt fyrir veikindin hélt hann
áfram að ferðast um heiminn og það
var ekki fyrr en á allra síðustu árum
ævi hans að hann fór að draga úr
ferðalögum. Jóhannes Páls páfa er
einkum minnst fyrir andstöðu hans
gegn kommúnisma og fyrir að hafa
brúað bilið milli kaþólskra og fólks
af öðrum trúarbrögðum.
Joseph Ratzinger kardináli var
kjörinn páfi eftir andlát Jóhannesar
Páls II og varð Benedikt XVI.
Jóhannes Páll II páfi var yfirlýstur
andstæðingur kommúnismans og
stuðningsmaður verkalýðssamtak-
anna Samstöðu i föðurlandi sínu
Póllandi og því ekki ólíklegt skot-
mark kommúnista. í kjölfar frekari
yfirheyrslna yfir Agca voru þrír
Búlgarar og þrír Tyrkir handteknir
sem komu fyrir rétt árið 1985.
Réttarhöldin yfir sakborning-
unum sex runnu út í sandinn þegar
Agca, sem átti að vera aðalvitni,
breytti framburði sínum á ný, lýsti
því yfir að hann væri Jesús Kristur
og sagði að heimsendir væri í nánd.
Að þessu sinni sagði Agca að Guð
hefði í raun fyrirskipað sér að skjóta
páfann og árásin tengdist þriðja
leyndarmáli hinna heilögu meyjar
í Fatima. Samkvæmt kaþólskri trú
birtist María mey þremur hirðingja-
börnum árið 1917 í portúgalska
bænum Fatima og deildi með þeim
þremur skilaboðum. Fyrstu skila-
boðin spáðu fyrir um seinni heims-
styrjöldina, þau seinni risi og falli
Sovétríkjanna og þau þriðju (sem
enn voru hulin leynd árið 1985 þegar
réttarhöldin áttu sér stað) hafa verið
túlkuð sem spádómur um tilraun til
að ráða páfa af dögum.
Páfi óskar Agca náðunar
Hulunni var ekki svipt af þriðja Fa-
tima-leyndarmálinu fyrr en árið
2000, sama ár og stjórnvöld á Ítalíu
náðuðu Agca. Jóhannes Páll páfi
hafði lýst yfir þeirri ósk sinni að
hann yrði náðaður á seinni hluta
tíunda áratugarins. Hann var fram-
seldur til Tyrklands þar sem hann
hóf afplánun átta ára dóms fyrir
morðið á Abdul Ipecksi.
Þegar Jóhannes Páll páfi lá baná-
leguna snemma á síðasta ári sendi
Agca honum batakveðjur og varaði
hann jafnframt við því að heims-
endir væri í nánd. Eftir andlát páfa
þann 2. apríl lýsti bróðir Agca því
yfir að Mehmet Ali og fjölskylda
hans syrgði páfa sem hefði verið
mikill vinur þeirra. Agca fór fram
á að fá að vera við útför páfa en
tyrknesk stjórnvöld höfnuðu beiðni
hans.
Mehmet Ali Agca var látinn laus
úr fangelsi i Tyrklandi í janúar á
þessu ári en náðunin var dregin til
baka skömmu síðar. Upphaflega var
hann látinn laus á þeirri forsendu að
hann hefði þegar tekið út stærstan
hluta fangelsisdómsins í fangelsi
á Italíu en hæstiréttur Tyrklands
snéri þeim úrskurði við og mátti
hann því snúa aftur í klefa sinn.
Öryggisverðir stumra yfir páfa skömmu
eftir tilræðið. Páfi var fluttur særður á
sjúkrahús þar sem hann náði fullum bata.