blaðið - 13.05.2006, Page 20
20 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 blaðið
Heilagt hlutverk
skopmyndateiknarans
Skopteikningar Halldórs Bald-
urssonar, sem birtast daglega
í Blaðinu, hafa vakið mikla
athygli. Skopteiknarinn vinsæli
er fæddur árið 196; og útskrif-
aðist frá Myndlista- og handíða-
skólanum árið 1989. Hann hefur
unnið sem skopmyndateiknari
fyrir Viðskiptablaðið frá stofnun
þess árið 1995. Hann hefur mynd-
skreytt um tuttugu barnabækur
og unnið fyrir auglýsingastofur.
Halldór hlaut hönnunarverðlaun
Félags islenskra teiknara árið
2006 fyrir myndir í Dýr eftir
Tove Appelgren og bók þeirra
Kristínar Helgu Gunnarsdóttur
Fíasól í hosiló fékk Bókaverðlaun
barnanna 2006.
„Ég teiknaði mikið sem krakki
og tætti í mig pappírinn. Pabbi
var kennari og kom með ljósritun-
arblöð úr skólanum og ég teiknaði
og litaði og henti myndunum jafn-
óðum. Ég vildi helst ekki að nokkur
sæi þær. Myndlistin var afþrey-
ingin mín,“ segir Halldór. „Þegar ég
var ellefu ára byrjaði ég að teikna
skopmyndir af kennurunum og
uppskar fyrir vikið nokkra athygli
nemenda. Teiknikennarinn var
hins vegar ekki mjög hrifinn.
Ég var feiminn og inn í mig sem
barn og sérstaklega sem unglingur.
Fyrir svoleiðis krakka var gott að
sitja í einrúmi og fá útrás við að
teikna allt heimsins óréttlæti eða
bara teikna allt það sem mig lang-
aði til að vera að gera þá stundina.
I dag geta svona gaurar bara sökkt
sér í fyrstu persónu skotleik í
Playstation.
Ég man ekki eftir því að teikni-
hæfileikar mínir hafi þótt sérstakir
en ég var innst inni meðvitaður um
að þetta væri eitthvað sem ég ætti
að gera. Mesta hvatningu fékk ég
frá móður minni. Hún var kennari
eins og faðir minn og mjög meðvit-
aður uppalandi. Eiginlega var hún
uppeldis-„sjéní“. Hún sagði mér að
ég ætti að fara þessa leið. Hún hafði
ekki eins mikinn skilning á pönk-
tónlistinni sem mér fannst rétt að
hljómaði undir, helst alveg í botn.
Eftir á að hyggja skil ég hana.
Fyrsta skopmyndin sem ég teikn-
aði eftir pöntun var fyrir Stéttabar-
áttuna. Þá var ég tólf ára og mágur
minn sem var kommúnisti fékk
mig til að teikna mynd sem sýna
átti stemmninguna á 1. maí. Mynd
mín sýndi einn mann og hund í um-
hverfi þar sem var vægast sagt léleg
stemmning. Ég var rekinn med det
samme.
Ég fór að ráðum móður minnar
og ákvað að helga mig myndlistinni.
Draumurinn á þessum tíma var að
verða skrípateiknari. Á tímabili var
ég reyndar svo raunsær að ég ákvað
að verða auglýsingateiknari og arki-
tekt. En einhvern veginn lendir
maður í því að gera það sem maður
vill gera. Ég er kominn á þá skoðun
að listamenn verði að fylgja köllun
sinni. Það er ágætt hlutskipti."
A móti ráðandi öflum
Teikningar þínar í Blaðinu eru pól-
itískar skopmyndir. Hverju ertu að
reyna að náfram íþeim?
„Þetta er minn vettvangur til að
tjá mig um skoðanir mínar á pólitík,
fréttum og daglegu lífi. Vinir mínir
segja stundum að ég sé gefinn fyrir
að vera á móti ráðandi öflum. Það
er viss andstaða í mér. Ég horfi á
allt með gagnrýnum augum, senni-
lega eins og blaðamenn verða líka
að gera. Hlutverk skopteiknarans
er að koma auga á gallana á því
sem borið er á borð fyrir okkur
og benda á þá. Hann verður líka
að standa vörð um litla manninn.
Ég hef ekkert á móti auðmönnum.
Mér fannst alltaf vanta auðmenn
á íslandi til að styrkja menningu
og sumir hafa staðið sig ágætlega
í því. En auðmenn hugsa væntan-
lega mikið um eigin hag og það er
heilagt hlutverk skopmyndateiknar-
ans að taka afstöðu með litla mann-
inum. Hann getur ekki gengið í lið
með þeim sterku og sparkað í litla
manninn.
Að teikna skopmynd er ekki
bara spurning um að vera fyndinn
heldur líka að hafa eitthvað að segja.
Það er svo afstætt hvað er fyndið.
Ef einhver segir mér að skopmynd
eftir mig sé ekki fyndin þá get ég
svarað því að ég hafi bara verið að
koma ákveðinni skoðun á framfæri.
Það skiptir mig líka miklu máli að
myndin sem ég teikna sé góð. Að
hún sé listaverk. Ég er ekki feiminn
við að segja að ég sé listamaður."
Hlægilegir stjórnmálamenn
Ertu pólitískur?
„Auðvitað er ég rammpólitískur.
Skopmyndateiknari hlýtur að vera
pólitískur. í pólitík myndi ég stað-
setja mig á miðjunni. Ég aðhyllist
einstaklingshyggju fólks sem hefur
samfélagslega meðvitund."
Þú teiknar mjög mikið af myndum
af stjórnmálamönnum. Finnst þér
stjórnmálamenn vera hlœgilegir?