blaðið - 13.05.2006, Page 46

blaðið - 13.05.2006, Page 46
46 I ÍPRÓTTIR LAUGARDAGUR 13. MAÍ 2006 blaóió Valsmenn verða íslandsmeistarar íslandsmótið í knattspyrnu hefst á morgun. Blaðið fjallar um liðin sem taka þátt í Landsbankadeildinni í knattspyrnu í sumar ogspáir í spilin. Samkvœmt úttekt Blaðsins munu Valsmenn standa uppi sem sigurvegarar. I.Valur Valsmenn voru sann- kallað spútniklið Is- landsmótsins í fyrra, þá nýkomnir upp úr 1. deildinni, og mikil uppbygging hefur átt sér stað hjá Hlíðarendamönnum undan- farin tvö ár. Liðið hefur misst marga leikmenn en fengið aðra firnasterka í staðinn og er óhætt að fullyrða að valinn maður verði í hverju rúmi hjá Valsmönnum í sumar. Valur hefur leikið vel á undirbúningstímabilinu og meðal annars lagt að velli FH og í A, sem almennt eru talin tvö af þremur sterkustu liðum landsins. Willum Þór Þórsson getur valið úr góðum sóknar- mönnum og fyrir aftan þá leikur ís- lenski Brasilíumaðurinn Guðmundur Benediktsson. Kjartan Sturluson er öruggur markvörður, vörnin er traust og miðjan sterk. Valur mun fljúga vængjum þöndum í sumar. 2. FH Allan Borgvardt, einnbestileikmaður íslandsmótsins fyrr og síðar, er horfinn á braut. Sömuleiðis Jón Þorgrímur Stef- ánsson, Heimir Guð- jónsson og þá verður Auðunn Helgason ekkert með vegna erfiðra meiðsla. í lið íslandsmeistar- ana hafa verið hoggin stór skörð. Á sama tíma hafa önnur íslandsmeist- araefni bætt við sig leikmönnum og þarf Hafnarfjarðarmafían því að hafa talsvert meira fyrir hlutunum en í fyrra. Þrátt fyrir blóðtöku hefur FH einn sterkasta og breiðasta hóp deild- arinnar en ef Tryggvi Guðmundsson verður ekki í banastuði er líklegt að ís- landsmeistaratitillinn bóki flugmiða frá Hafnarfirði i haust. 3. lA Skagamenn áttu gott tímabil í fyrra og hafa fengið f;óðan liðsstyrk fyrir slandsmótið í ár. Ól- afur Þórðarson hefur yfir fín- asta mannskap að ráða og reynsla bræðranna Bjarna og Þórðar mun vega þungt, þó líklegt sé að sá síðar- nefndi verði að einhverju leyti frá vegna meiðsla. Arnar Gunnlaugsson er einnig heimkominn en telja verður óliklegt að hann Gunnlaugsson verði maðurinn sem raðar inn mörkum fyrir ÍA, líkt og fyrir rúmum áratug síðan. Akurnesingar hafa nógu sterkt lið til þess að fara alla leið en Vals- menn og FH-ingar eru líklegri til að þrauka til enda. Skagamenn verða gulir... en glaðir? Meira svona mátu- lega sáttir! 4.KR „Mótlæti er til að sigr- ast á“ söng kóngur kónganna og KR- ingar hafa svo sann- arlega gengið á móti vindinum á undirbún- ingstímabilinu. I hjörð sebrahestanna vantar tilfinnalega leiðtoga í líkingu við Þormóð Egilsson eða Sigurvin Ól- afsson en Gunnlaugur Jónsson gæti þó mögulega sinnt því hlutverki. Það verður að teljast ólíklegt að Vesturbæj- arstórveldið ríði feitum hesti í sumar, en slæmt gengi um vorið hefur þó oft þýtt ríkulega uppskeru um haustið og aldrei að vita nema Vesturbæingar beri höfúðið hæst allra undir lok móts. 5. Fylkir Fylkismenn hafa orðið fyrir blóðtöku og misst nokkrar af sínum helstu stjörnum. Það eru hins vegar sömu stjörnur og hafa brugðist því ár eftir ár að koma með hinn langþráða íslandsmeistaratitil í Árbæinn. Svo bregðast krossbönd sem önnur. Á blaðinu lítur Fylkir út fyrir að tefla fram slakara liði en áður, en Þróttararnir þrír hafa verið að koma sterkir inn og þá eru ungu strákarnir til alls líklegir. Enginn býst við miklu af appelsínuhernum og ein- mitt þá eru þeir líklegastir til afreka. 6. Keflavík Keflvíkingar áttu fínt tímabil í fyrra en munuþurfaaðhafa sig alla við til þess að fylgja því eftir. Hörður Sveinsson var drjúgur í fram- línunni og skarðið sem hann skyldi eftir sig verður vandfyllt. Á móti kemur að Ingvi Rafn Guðmundsson hefur jafnað sig af meiðslum og mun mæða mikið á honum á miðjunni. Keflvíkingar hafa fengið til sín nokkra erlenda leikmenn og er þeim ætluð stór hlutverk í lið- inu. Frammistaða þeirra mun eflaust ráða miklu um hvar Bítlabæjarmenn hafna í deildinni og má því með sanni segja að Keflavík sé óskrifað blað fyrir sumarið. 7.Víkingur Vörn Víkinga var þéttari en Berlínar- múrinn í í. deildinni í fyrra og var lykilþáttur í því að liðið tryggði sér sæti í Landsbankadeildinni á ný. En þeir sem hafa ekki eytt allri ævinni í að fylgjast með fótbolta vita hver örlög Berlínarmúrsins urðu og hvort Víkingsvörnin verður brotin á bak aftur þegar þeir spila aftur á meðal þeirra bestu verður spennandi að sjá. Magnús Gylfason þarf að fóðra leikmenn sína á sama galdraseyði og hann gaf Eyjamönnum 2004. Týndu synirnir Grétar Sigfinnur Sigurðsson og Viktor Bjarki Arnarson verða afar mikilvægir. 8. Breiðablik „Hvað er grænt og fellur á haustin?" I ár verðurþað ekki Breiða- blik. BÍikar sigruðu 1. deildina í fyrra með yfirburðum og hafa, með sinn bráðefnilega mannskap, burði til þess að verða spútniklið deildarinnar í ár. Hafa haldið sínum bestu leikmönnum og fengið Marel Baldvinsson og Norðmanninn Stig Krohn Haaland sem ættu að verða þeim góður liðsstyrkur. Fleiri bitar eru sagðir á leiðinni og einhverjir hafa haldið því fram að sjálfur Arnar Grétarsson ætli að ganga til liðs við sína gömlu félaga í sumar. Þjálfarinn Bjarni Jóhannsson er og eldri en tvæ- vetur í bransanum og ætti að geta gert góða hluti fyrir Kópavogsmenn. 9.ÍBV Eftir frábært tíma- bil 2004 fór hálft ÍBV-liðið og eftir tímabilið í fyrra fór afgangurinn. Vestmanna- ingar tefla því fram útlendingaher- sveit til blands við unga og óreynda leikmenn og fátt bendir til þess að sá pottréttur verði vænlegur til árang- urs. Þó að hráefnið komi ekki frá Arg- entínu gæti Guðlaugur Baldursson hins vegar galdrað ýmislegt úr mann- skapnum og ekki er hægt að ganga að neinu vísu þegar Islandsmeistararnir í að afsanna fallspár eru annars vegar. Ef ÍBV heldur sér uppi verður það vissulega sannkallað Tyrkjarán. Ja, eða Úgandarán! lO.Grindavík Á pappírunum virð- ast Grindvíkingar ekki vera með nægi- lega sterkan hóp til að halda sér uppi. En þannig var það líka í fyrra, og árið þar áður, og árið þar áður... Menn ættu því að varast að leggja líf sitt undir að Grindvíkingar falli, þó að vissulega bendi flest til þess að það verði örlög þeirra. „Við lifum aðeins einu sinni... og því er um að gera að nýta hvert tækifæri sem best,“ söng Grindvíkingurinn Kalli Bjarni og það þurfa sveitungar hans svo sannarlega að gera ætli þeir sér áframhaldandi veru í Landsbankadeildinni. Sinisa Kekic, Paul McShane og Jóhann Þór- hallsson eru fljótt á litið þeir sem mest mun mæða á. bjorn@bladid.net 1. Valur 2. FH 3. ÍA 4. KR 5. Fylkir 6. Keflavík 7. Víkingur 8. Breiðablik 9. ÍBV 10. Grindavík Hvað segja kempurnar? Hörður Magnússon, íþróttafréttamaður á Sýn. Meistararnir: ,FH, ÍA og Valur munu líklega berj- ast um titilinn að þessu sinni. Ég tel að FH-ingar séu með sterkasta liðið þrátt fyrir að þeir hafi misst marga góða leikmenn. Þeir hafa fengið nýja leikmenn eins og Sigurvin Ól- afsson og tvo Dani sem eru kannski spurningarmerki. Ég held að FH- ingar verði ekki eins sterkir og í fyrra en þó nægilega sterkir til að vinna mótið. Eins eru að koma upp ungir og mjög efnilegir leikmenn og kannski munu einhverjir af þeim koma til með að spjara sig. Skaginn er búinn að fá sterka leik- menn í ár, þá Þórð, Bjarna og Arnar Gunnlaugs. Það hefur verið helsta vandamál Skagamanna undanfarin ár en á móti kemur að þeir eru búnir að missa Gunnlaug Jónsson og það er mikil blóðtaka. En Skaginn er með marga unga og spræka stráka og munu gera harða atlögu að þessum titli. Valsmenn eru með mjög heilsteypt og traust lið. Þeir hafa sterka vörn og munu eflaust koma til með að byggja á henni og svipaðri spilamennsku og í fyrra. Þá mun Garðar Gunnlaugs- son eflaust koma til með að skora ein- hver mörk fyrir þá.“ Fallbaráttan: ,Ég held að það verði þrjú eða fjögur lið sem berjist í neðri hlut- anum í ár; Grindavík, ÍBV, Breiðablik og kannski Víkingur. Nýliðarnir eiga oft erfitt fyrir en Breiða- blik er þó að mörgu leyti óskrifað blað. Ég held að KR og Fylkir verði svo um miðja deild og Keflvíkingar fyrir ofan miðju.“ Leikmennirnir: „Það verður spennandi að fylgjast með Skagamönnunum þremur; Þórði, Bjarna og Arnari. Það verður fróðlegt að sjá hvort Tryggvi Guðmundsson nær að halda uppteknum hætti í marka- skorun og eins hvort að nýi Daninn, Allan Dyring, nær að slaga upp í Állan Borg- vardt. Maður veit ekki hvað Marel Baldvinsson kemur til með að gera hjá Breiðablik en hann hefur verið að spila vel á undirbún- ingstímabilinu. Björgólfur Takefusa gæti svo kannski verið sá maður sem gerir eitthvað fyrir KR-ingana.“ Gylfi Orrason, knattspyrnudómari til margra ára. Meistararnir: ,Ég held að baráttan verði á milli þessara stóru liða, eins og sagt er. Ég geri ráð fyrir því að KR, FH og Skaginn komi til með að berjast um titilinn enda hafa þau bætt vel í sinn hóp. Ég held að FH-ingar séu með sterkasta hópinn og það þarf vissulega að vinna titUinn af þeim. Þeir voru með frábæran hóp í fyrra og þrátt fyrir að það hafi orðið breytingar á liðinu held ég að þeir séu ekki með mikið veikara lið. Þrátt fyrir að KR-ingum hafi ekki gengið sem skyldi á undirbúningstíma- bilinu þarf það ekki að þýða mikið og ég held að Teitur sé alveg rólegur yfir því. Þegar komið er út í Islandsmótið sjálft skipta æfingaleikir, Reykjavíkurmótið og deilda- bikarinn engu máli. Á Akranesi er svo auðvitað mikill hugur í mönnum eftir heimkomu bræðranna og það gæti auðvitað lyft þeim upp á hærra plan. Svo er það nú yfirleitt þannig að eitthvað lið blandar sér óvænt í bar- áttuna en hvaða lið það verður er erfitt að segja um. Valsmenn komu svolítið á óvart í fyrra og þó það sé oft erfitt að viðhalda svona góðum árangri hafa þeir alla burði til að blanda sér í topp- baráttuna líka.“ Fallbaráttan: .Nýliðarnir verða þeir sem eiga einna erfiðasta sumarið fyrir höndum. Nýliðunum bíður alltaf það erfiða verkefni að ná fótfestu í deildinni og maður gerir ráð fyrir því að það verði eins erfitt hjá Breiðablik og Víkingi og það hefur verið hjá nýliðum und- anfarinna ára.“ Leikmennirnir: ,Það er alltaf svakalega gaman að sjá leikmennina sem eru að koma til baka úr atvinnumennskunni og spennandi að sjá hvernig þeir koma út. Svo verður athyglisvert að sjá í hvaða gæðaflokki Daninn sem FH- ingar fengu er og ef hann kemst með tærnar þar sem Borgvardt hefur hæl- ana eru þeir í góðum málum.“ Gylfi Orrason

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.