blaðið - 17.06.2006, Page 19
blaðið LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 2006
MATURI 19
Að laga til pakkasósu
Þegar maður grillar er mjög algengt
að hafa kalda sósu með, jafnvel
þótt það sé kjöt, fiskur eða græn-
meti. Það eru til ýmsar útfærslur
á þess konar sósum. Ein aðferðin
er náttúrlega sú að blanda saman
sýrðum rjóma og majónesi og laga
hana til með ýmsum bragðbætum,
til dæmis sinnepi, hvítlauk og
alls kyns kryddum. Einnig eru til
margar aðrar skemmtilegar aðferðir
og má þar nefna að taka sýrðan
rjóma og blanda út í pakkasúpur.
Blaðlaukssúpa er til dæmis mjög
góð í slíka dressingu. Það má svo
prófa sig áfram með hinar og þessar
kryddaðar súpur. Slíkar sósur þurfa
að standa í u.þ.b. 2 klukkutíma fyrir
neyslu svo að kryddin gefi bragð.
Uppskriftin sem fylgir með í dag er
af skemmtilegri kaldri sósu sem ég
hef notað upp á síðkastið með grill-
mat. Það á að laga pakkapiparsósu
eftir leiðbeiningum, kæla hana og
blanda út í hana sýrðum rjóma og
majónesi eftir smekk. Alveg skothelt
með grilluðum mat, kjöti, fiski eða
grænmeti. Á myndinni er einmitt
grilluð kálfasteik með grilluðu græn-
meti og þessi fína piparsósa, beint úr
pakkanum og blönduð með sýrðum
rjóma og majónesi.
Kveðja Raggi
Blaóiö/Frikki
Hlý stemnin
arnanledt an
02 OVl
rums
ma
Bantastræti 2 • 101 Reykjavíls • sími 551 4430 • fax 552 8684
in fo@l aekjartrekka.is • www.laekjarkrekka.is