blaðið - 21.06.2006, Blaðsíða 2
2IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2006 blaöið
O Heiðskirtv LéttskýJað.Sut Skýjað Alskýjað"^1- Rigning,litllsháttar^^>Rigning.^»Súl(t '■* Snjókoma'—- ■> siyddaí^is Snjóél *Skúr
OPNUNARTlMI:MÁNUD-FÖSrUD 11:00-18:00 LAUGARDAGA11:00-16:00 SUNNUDAGALOKAÐ
SETT HÚSGAGNAVERSLUN • ASKAUND 2A - 201 KÖPAVOGUR - SlMI 534 1400 - WWW.SETT.IS
ihjjyti'
Algarve 25
Amsterdam 17
Barcelona 26
Berlín 20
Chicago 22
Dublin 16
Frankfurt 23
Glasgow 11
Hamborg 23
Helsinki 27
Kaupmannahöfn 18
London 20
Madrid 32
Mallorka 29
Montreal 16
New York 22
Orlando 25
Osló 17
París 20
Stokkhólmur 24
Vín 30
Þórshöfn 11
m m m * m HB #■ Mynd/Svemi
Samnmgur loks 1 hofn
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri ritaði í gær undir samning um kaup byggingarvöruverslunarinnar Bauhaus á lóð við Úlfarsfell.
Þar hyggst fyrirtækið reka um 20.000 fermetra verslun sem verður stærsta verslunarhús sinnar tegundar hér á landi. Stefnt er að því
að verslunin verði opnuð í árslok 2008.
Frestun á byggingu tónlistarhúss
skiptir litlu fyrir hagstjórnina
Helgi Hjörvar, alþingismaður, segir ekkert vit í að fresta byggingu tónlistarhúss. Allar
aðrar frestanir komi hins vegar til álita, þar á meðal bygging hátæknisjúkrahúss.
MEÐ MICROFIBERÁKLÆÐI
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
Að mati Helga Hjörvar alþingis-
manns koma flestar frestanir á op-
inberum framkvæmdum til álita, ef
undan er skilin bygging tónlistar-
og ráðstefnuhúss í Reykjavík. Einar
Oddur Kristjánsson, kollega Helga á
Alþingi, sagði í Blaðinu í gær brýnt
að fresta framkvæmdum á borð við
tónlistarhúsið og hátæknisjúkrahús
við Hringbraut.
Efnahagsmálum stefnt í óefni
„Það þýðir ekkert fyrir Einar Odd
að skrifa tékka fyrir Héðinsfjarðar-
göngum í annarri vikunni og ætla
ÞU FÆRÐ HM
SÆTIÐ HJÁ OKKUR
kr. 19.900,-
MATTHEW HÆGINDASTÓLL
síðan að skera niður tónlistar- og
ráðstefnuhús í hinni,“ segir Helgi
Hjörvar, alþingismaður. „Fjárfest-
ingin í því nemur innan við þremur
prósentum af fjárfestingunni fyrir
austan og mun engu meginmáli
skipta fyrir hagstjórnina í land-
inu.“ Helgi segir framkvæmdina á
hafnarbakkanum hins vegar skipta
miklu fyrir uppbyggingu á sviði
ferðaþjónustu og menningarstarf-
semi í Reykjavík. „Frestun á öðrum
framkvæmdum, svo sem hátækni-
sjúkrahúsinu, hljóta hins vegar allar
að koma til álita því að ríkisstjórnin
hefur stefnt efnahagsmálunum
í algjört óefni. Ef hér hefði verið
einhver efnahagsstjórn þá hefðu
menn skorið niður framkvæmdir á
síðustu árum og farið síðan í fram-
kvæmdir þegar samdráttur verður
á næstunni. Það hefði komið sér vel
fyrir byggingariðnaðinn að fá stór
verkefni eins og TRH og hátækni-
sjúkrahús í þeim samdætti “
Helgi segir að engar slíkar að-
gerðir hafi verið af hálfu ríkisstjórn-
arinnar. „Þrátt fyrir að kallað sé
eftir þeim nú á maður eftir að sjá að
þessi ríkisstjórn hafi þrek til að gera
eitt eða neitt sem erfitt geti talist,"
segir Helgi
Þegar farið að fjara undan
í byggingariðnaði
Alfreð Þorsteinsson, formaður fram-
kvæmdarnefndar vegna byggingar
nýs Landsspítala-háskólasjúkra-
húss, segir óráðlegt að fresta undi-
búningi verkefnisins og bendir á að
verklegar framkvæmdir hefjist ekki
fyrr en í fyrsta lagi eftir tvö ár. Einar
Oddur sagði í viðtalinu við Blaðið í
gær, að þá fjármuni sem ríkið fékk
fyrir sölu Landssímans ætti að nota
til að styrkja gjaldeyrisvaraforða
Seðlabankans.
„Þetta er fyrst og fremst mál þing-
manna og ríkisstjórnarinnar," segir
Alfreð um mögulegar frestanir á
framkvæmdum hins opinbera.
„Hins vegar væri mjög óráðlegt
að fresta undirbúningi þessarar
framkvæmdar því að hann hefur
engin stórvægileg áhrif á efnahags-
lífið í heild sinni.“ Alfreð segir að
menn geti síðan ráðið því hvenær
hafist verði handa við verklegar
framkvæmdir. „Næstu tvö árin er
einungis um að ræða undirbúnings-
vinnu vegna framkvæmdarinnar
og það er síðan á valdi ríkisstjórnar-
innar og þingmeirihlutans hvernig
hann vill tímasetja verkefnið í fram-
haldi af því.“
Alfreð segir að eins og staðan sé í
dag sé gert ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist á tímabilinu 2008-2009. „Ég
vek athygli á því að það eru ýmsar
blikur á lofti í sambandi við atvinnu-
lífið. Það er ekki vist að hér verði
næg atvinna áfram eins og verið
hefur. Það er þegar byrjað að fjara
undan í byggingariðnaðinum og
áhrifa frá Kárahnjúkum mun hætta
að gæta strax á næsta ári. Það gæti
því allt eins verið að á næstu miss-
erum verði talið nauðsynlegt að fara
í ýmsar af þeim stórframkvæmdum
sem nú er rætt um að fresta," segir
Alfreð Þorsteinsson.
gunnar@bladid.net
blaðiöu^
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
51Q 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Evrópuþing-
maður
vekur furðu
Breskur þingmaður á Evrópu-
þinginu, Gerard Batten, vakti
milda furðu í gær þegar hann hóf
að söngla gamlan breskan slag-
ara úr þáttunum „Dad’s Army”
en skipti nafni Adolfs Hitlers í
laginu út og setti þess í stað nafn
kanslarara Austurríkis, Wolf-
gangs Schussels. f texta lagsins er
þýski einræðisherrann spurður
hvern hann haldi að hann sé að
blekkja þegar hann segi að Eng-
landi sé öllu lokið? Sagði Batten
lagið endurspegla afstöðu Breta
til Evrópusambandsins.
Kanslarinn hafði nýlokið að
halda ræðu í þinginu þar sem að
hann lýsti því yfir að helstu leið-
togar aðildarríkja Evrópusam-
bandsins hefðu komið sér saman
um að ekki yrðu gerðar veiga-
miklar breytingar á fyrirhugaðri
stjórnarskrá sambandsins, en
henni var hafnað af frönskum og
hollenskum kjósendum í þjóðar-
atkvæðisgreiðslum á síðasta ári.
Batten, sem er ekki hrifinn af
samrunaferlinu í Evrópu, steig í
pontu á eftir Schussel og fagnaði
yfirlýsingu Schussels þar sem
hún sýndi fram á að hin pólitíska
elíta Evrópusambandsins kærði
sig ekki um að hlusta á raddir
fólksins.
Úrskurða ekki
um HM fyrr
en að keppni
lokinni
Samkeppniseftirlitið mun ekki
úrskurða um hvort heimilt sé að
útiloka neytendur frá því að sjá
útsendingar erlendra sjónvarps-
stöðva á leikjum á heimsmeist-
aramótinu í knattspyrnu fyrr
en eftir að mótinu lýkur. Lokað
var fyrir útsendingar þeirra er-
lendu stöðva á Digital Island og
Skjánum sem sýna leiki á HM.
Á heimasíðu Neytendasamtak-
anna er spurt hvort það sé ásætt-
anlegt að draga úrskurðinn fram
yfir lok keppninnar. „Hvernig
sem úrskurðurinn fellur þá mun
það ekki hjálpa umkvörtunarað-
ilum að njóta útsendinga frá HM
2006,“ segir á heimasíðunni. Þar
sem keppnin standi aðeins yfir
í einn mánuð segjast Neytenda-
samtökin hafa búist við því að
fljótt yrði brugðist við af hálfu
Samkeppniseftirlitsins, en af
því verður ekki.
I
I
í
I
I