blaðið - 21.06.2006, Síða 8
8IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2006 blaöið
Þorsteinn hlýtur íslensku
forvarnaverðlaunin
Þorsteinn Pétursson, forvarna- og
fræðslufulltrúi lögreglunnar á Akur-
eyri, varð í gær fyrstur til að hljóta
íslensku forvarnaverðlaunin. Þor-
steinn hefur um árabil verið dug-
legur í alhliða forvarnastarfi á Akur-
eyri. Hann hefur farið í alla leik- og
grunnskóla bæjarins, auk þess að
heimsækja Menntaskólann á Akur-
eyri og Verkmenntaskólann á Akur-
eyri þar sem hann hefur rætt það
sem við á, allt frá umferðarmálum
til skaðsemi fíkniefna.
Sérstakur vinnuhópur var skip-
aður og var hlutverk hans að finna
aðila sem hafa skarað fram úr í for-
vörnum og ákvað vinnuhópurinn
að skipta tilnefningum niður í þrjá
hópa; einstaklinga, félagasamtök og
fyrirtæki. Einn aðili var tilnefndur í
hverjum flokki og fengu viðurkenn-
ingu. Handhafi „Islensku forvarna-
verðlaunanna“ var svo valinn úr
hópi þessara þriggja aðila.
Þorsteinn Pétursson fékk verð-
launin í flokki einstaklinga, Ki-
Þorsteinn Pétursson
wanisumdæmið Island-Færeyjar í
samstarfi við Eimskip í flokki félaga-
samtaka og Sæbjörgin - Slysavarna-
skóli sjómanna í flokki fyrirtækja.
íslensku forvarnaverðlaunin voru
afhent í fyrsta sinn í gær í Kjarna-
skógi við Akureyri en um er að ræða
samstarfsverkefni Sjóvár, Lands-
bjargar, Landspítala- háskólasjúkra-
húss og Lýðheilsustöðvar.
Reuters
Þjóöareinkennin dyljast fáum
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu virðist draga fram sterk þjóðareinkenni meðal
þess ótrúlega fjölda aðdáenda íþróttarinnar sem nú er staddur í Þýskalandi og gildir
einu hvort rætt er um menn eða ferfætlinga. Nokkrir aðdáendur enska landsliðsins virtu
fyrir sér hund sem hafði verið klæddur upp í gervi þýsks lögreglumanns í Köln í gær.
Japanar kalla 600 manna
liðsafla heim frá írak
Japönsk stjórnvöld segja að mannúðarstarf hermanna hafi skilað mikl-
um árangri og heita Irökum áframhaldandi aðstoð við uppbyggingu.
Stjórnvöld í Japan kölluðu í gær heim
liðsafla sinn í írak með þeim orðum
að mannúðarstarf hermanna þar
hefði skilað miklum árangri. Með
þessu lýkur merkri aðgerð í sögu
Japans því þetta er í fyrsta skipti frá
lokum seinni heimsstyrjaldarinnar
sem Japanar senda umtalsverðan
liðsafla til að láta til sín taka utan
landsteina.
Junichiro Koizumi forsætisráð-
herra sagði að liðsaflinn sem telur
um 600 menn hefði aðstoðað við
margvíslegt uppbyggingarstarf
í Samawah-héraði í Irak þar sem
þeir héldu til og hét því að Japanar
myndu áfram veita írökum marg-
víslega aðstoð við uppbyggingu
landsins. Sveitirnar hafa ekki tekið
þátt í bardögum við uppreisnaröfl
og hryðjuverkamenn í Irak og hart
var um það deilt árið 2004 hvort jap-
anska stjórnarskráin heimilaði að
sveitir yrðu sendar úr landi.
I máli Koizumi kom fram að
ákvörðunin hefði verið tekin að
höfðu samráði við Bandaríkjastjórn
og aðra bandamenn. Fukushiro Nuk-
aga, varnarmálaráðherra Japans,
sagði á fundi með fréttamönnum að
„nokkrir tugir daga” myndu líða þar
til heimkvaðningunni yrði lokið.
Áfram náin samvinna
við Bandaríkin
Koizumi hefur stutt stefnu Banda-
ríkjastjórnar í málefnum Iraks
dyggilega. Hann hélt því fram að
nauðsynlegt væri að senda japanska
liðsaflann til íraks til að aðstoða við
uppbyggingu, tryggja olíuvinnslu
og styrkja sambandið við stjórn
George W. Bush Bandaríkjaforseta.
Síðar í júní mun Bush eiga fund með
Koizumi í Washington.
Koizumi, sem lætur af embætti
forsætisráðherra í september, lagði
áherslu á að Japanar myndu áfram
reynast Bandaríkjunum tryggir
bandamenn. Bandaríkin halda úti
um 50.000 manna herliði í Japan í
samræmi við varnarsamning þar
um. „Sú stefna Japansstjórnar að
vinna náið með Bandaríkjamönnum
byggist á mikilvægi bandalags þess-
ara tveggja þjóða. Sú afstaða hefur
ekki breyst og mun aldrei breytast,”
sagði Koizumi.
Frá lokum síðari heimsstyrjaldar-
innar hafa Japanar aldrei áður sent
svo fjölmennan liðsafla til annars
ríkis. Stjórnarskrá landsins bindur
líka mjög hendur stjórnvalda í
slíkum efnum. Þótti mörgum sýnt
að þetta myndi reynast hin mesta
hættuför. Héraðið þar sem japönsku
Reuters
Fukushiro Nukaga, varnarmálaráðherra Japans, svarar spurningum blaðamanna í gær.
sveitirnar störfuðu einkum var þó
jafnan talið heldur öruggt. Japanir
héldu sig að mestu í miðstöð sinni
þegar ástandið tók að versna í land-
inu og hryðjuverkamenn juku um-
svif sín.
Stjórnvöld í Tókíó hyggjast nú
auka loftflutninga til lraks, m.a.
flytja þangað lyf og starfsfólk Sam-
einuðu þjóðanna. Er það í samræmi
við beiðni þessa efnis sem borist
hefur frá Kofi Annan, framkvæmda-
stjóra Sameinuðu þjóðanna.
Á mánudag var frá því skýrt
að Bretar og Ástralir myndu fela
Irökum að halda uppi öryggisgæslu
í því héraði þar sem japönsku sveit-
irnar eru staðsettar. Japanar hafa
haft af því miklar áhyggjur að sveitir
þeirra lendi í átökum í írak og virð-
ist sem tilkynningin um breytt fyr-
irkomulag öryggisgæslu hafi verið
merkið sem stjórnvöld í Tókíó biðu
eftir.
Enginn efi um rétt-
mæti ákvörðunar
Fyrirskipun um heimkvaðningu var
síðan gefin í gær og er gert ráð fyrir
að Japanarnir verði allir komnir
heim um miðjan næsta mánuð.
Skoðanakannanir hafa ítrekað leitt í
ljós að helmingur þjóðarinnar og oft
rúmlega það hefur verið andvígur
þeirri ákvörðun að senda sveitirnar
til íraks. Margir hafa látið í ljós
áhyggjur af því að Japan kunni að
verða skotmark hryðjuverkamanna
af þessum sökum.
Koizumi hélt uppi vörnum fyrir
ákvörðun stjórnvalda í gær og kvaðst
sannfærður um að hún hefði verið
Junichiro Koizumi, forsætisráðherra
Japans.
rétt. Japanar hafa ekki orðið fyrir
manntjóni í írak. Hins vegar létu
vígamenn í Irak til skarar skríða
gegn óbreyttum borgurum og kröfð-
ust þess að japönsku sveitirnar yrðu
kallaðar heim. Sjö Japönum hefur
verið rænt í írak frá því að liðsafl-
inn var sendur þangað 2004 og tveir
þeirra voru teknir af lífi.
Koizumi neitaði jafnan að kalla
sveitirnar heim fyrr en verkefni
þeirra væri lokið. Hann lét skoðana-
kannanir sem vind um eyru þjóta.
Mjög reyndi á staðfestu forsætisráð-
herrans í aprílmánuði 2004 þegar
þremur japönskum hjálparstarfs-
mönnum var rænt í írak. Mönnum
var hótað aftöku yrði japanski liðs-
aflinn ekki kallaður heim. Koizumi
neitaði að verða við þessari kröfu
og svo fór að lokum að mönnunum
þremur var sleppt.
STÆRRI VERSLUN
MEIRA ÚRVAL
eykavíkurvegur 22
220 Hafnarfirði
565-5970
www.sjonarholl.is
Arabísk alþjóöavæöing
Knapar ríöa á kameldýrum á Nad-al Sheba veðreiðabrautinni t Dubai. Griðarleg uppbygging er í Dubai um þessar mundir og spretta
háhýsin upp eins og gorkúlur eins og sést á myndinni.