blaðið - 21.06.2006, Blaðsíða 11
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 21.JÚNÍ 2006
SKOÐUNI 11
Meistari í að
verja vondan
málstað?
Eftir Össur Skarphéðinsson
Það er einsog sumir menn séu
fæddir til að stjórna heim-
inum. Þannig er uppgangur
Einars K. Guðfinnssonar
einsog eldflaugar á leið út úr
gufuhvolfinu.
Hann varð sjávarútvegsráðherra
- kannski ekki upp úr þurru
- þegar Davíð Oddsson fór í Seðla-
bankann á sínum tíma til að
moka flór efnahagsmála eftir
sjálfan sig.
Það var ekki
öfundsvert
hlutskipti.
Síðan hef ég
beðið eftir
því í ofvæni
að Einar end-
urtaki gömlu
ræðurnar úr
Skarphéðinsson þinginu og
............... af kosninga-
fundum að
vestan sem hann hélt um vonsku
kvótakerfisins. En stundum er
sagt að ekkert hrörni eins hratt
og minni stjórnmálamanna - og
Einar virðist hafa gleymt þeim
með öllu. Hann hefur þvert á
móti sýnt einmuna dugnað við
að halda saman kerfinu sem
hann sagði áður að væri ónýtt!
1 hrókeringunum um daginn,
þegar Framsókn tókst með ótrú-
legum hætti að þvinga út eitt
ráðherrasæti til viðbótar í verð-
launaskyni fyrir að hafa tapað
meira en helmingi af fylgi sínu
- þá beindust sjónir margra að
Einari.
Margir töldu, að þar sem hann
var síðastur inn í ríkisstjórn og
hefði setið langskemmst ætti
hann að víkja fyrir nýjum Fram-
sóknarráðherra. Valið stóð á
milli hans og Sigríðar Önnu Þórð-
ardóttur, umhverfisráðherra,
sem ekkert hafði til saka unnið
nema vera býsna góður ráðherra.
í takt við áherslur sínar á jafn-
rétti kynjanna og mikilvægi um-
hverfismála var henni fórnað af
Sjálfstæðisflokknum - en Einar
hélt ráðherralífi sínu og spriklar
af pólitískri ánægju einsog haust-
feitur silungur.
Ég sagði reyndar á sínum tíma,
þegar hann varð ráðherra, að
hann hefði hlotið upphefð sína
vegna þess að enginn maður í
þingflokki Sjálfstæðismanna
hefði jafn mikla reynslu og hann
í að verja vondan málstað. Einar
var nefnilega lengi formaður
þingflokks Sjálfstæðismanna. í
því hlutverki hafði hann það erf-
iða hlutskipti að kippa ráðherr-
unum upp á lappirnar þegar þeir
voru komnir á hnén í hörðum
umræðum á Alþingi. Það fórst
honum vel úr hendi.
Nú er komið í ljós að líklega
var þetta erindi hans í ráðherra-
stól - að verja vondan málstað.
Þá á ég nú ekki bara við kvóta-
kerfið sem Einar hefur hjúkrað
einsog lasburða sjúkling eftir að
hann kom í ráðuneytið - þrátt
fyrir gömlu ræðurnar. Nei, í dag
kom í ljós, að Einar er ekki bara
sjávarútvegsráðherra, heldur fer
hann í fjarveru stallbræðra og
-systra með ráðuneyti mennta-
mála, samgangna, dómsmála
- og fjármála! Þar með er hann
líka orðinn varaforsætisráð-
herra - um sinn.
Gæti verið að þetta sé vegna
þess að hann hefur manna
mesta reynslu í að verja vondan
málstað?
Höfundur er þingmaður Samfylkingar-
innar
www.althingi.is/ossur
Fólk á flótta
Eftir Þórunni Sveinbjarnardóttur
Dagurinn í
dag er tileink-
aður flótta-
mönnum um
allan heim.
Flóttamanna-
hjálp Samein-
uðu þjóðanna,
Alþjóða Rauði
krossinn og
ýmsar hjálpar-
stofnanir nota
tækifærið til þess að vekja athygli
almennings á hlutskipti flóttafólks.
Ekki veitir af.
Árið 1956 var í fyrsta sinn tekið
skipulega á móti hópi flóttafólks á
íslandi. Síðan eru liðin 50 ár og á
þeim tíma hafa 450 manns fengið
hæli hér á landi fyrir milligöngu
stjórnvalda og Flóttamannahjálpar
SÞ, eða að jafnaði 9 manns á ári. Á
sama tíma hefur einn einstaklingur
hlotið pólitískt hæli á íslandi. Ve-
gna legu sinnar er ísland sjaldnast
fyrsti viðkomustaður flóttamanna.
Það breytir því hins vegar ekki að á
hverju ári leitar fjöldi fólks hælis hér
á landi. Langflestum er vísað frá.
Á liðnum árum hefur gætt vaxandi
skilningsleysis á Islandi og annars
staðar í Evrópu gagnvart hlutskipti
flóttamanna. Það er eins og fólk
geri ekki greinarmun á almennum
innflytjendum og svo þeim sem
leita hælis vegna ofsókna í heima-
landi sínu. Allir eru settir undir
sama hatt og úr verður óskemmtileg
umræða um hættuna sem Evrópu-
löndum á að stafa af ólöglegum inn-
flytjendum. Víða hafa stjórnvöld og
stjórnmálaflokkar gert sitt til þess
að hræra í potti fordóma og ótta
við hið óþekkta. Úr verður umræða
lituð útlendingaandúð, fordómum
og fáfræði.
Það er brýnt verkefni að taka
löggjöf og reglur um útlendinga á
slandi til endurskoðunar, réttindi
jeirra og skyldur. Meðal þess sem
)arf að hafa til hliðsjónar er hvort
slendingar vilji lengi enn láta það
um sig fréttast að hér hafi einn
maður fengið pólitískt hæli. Einn
einstaklingur í 62 ára sögu lýðveldis-
ins. Vonandi gefst okkur tækifæri til
þess eftir næstu alþingiskosningar
að færa málefni flóttamanna til nú-
tímahorfs á íslandi.
Höfundur er þingkona Samfylkingarinnar
www. althingi.is/tsv
4 RETTA VEISLA
Njóttu kvöldsins
með einstakri sælkeraveislu!
LAXATARTAR
með sýrðum rjóma og hrærðu eggi
REYKT ÝSA
með smjörsteiktum vorlauk og blómkálsfroðu
LAMBA-TVENNA
hryggur og skanki með kartöflumauki, lambasoði með tómötum,
ólívum og fáfnisgrasi
LJÓST SÚKKULAÐIFRAUÐ
með mangóhlaupi og jarðarberjadrykk með vanillufroðu
Aðeins 5.950 kr.
7*»* »06
s Best'. Tebles at^
T(WV
Perlan í hópi 5 bestu
útsýnisveitingahúsa heims!
Sophie Lam, blaðamaður The Independent, gerði á dögunum úttekt á útsýnis-
veitingahúsum um víða veröld. Engan skal undra að Perlan var í hópi 5 bestu!
Hin veitingahúsin eru: The Portrait Restaurant (London), Sirrocco (Bangkok),
Tower Top (Zanzibar) & Maison Blanche (París).
Hægt er að lesa greinina á: www.independent.co.uk.
P E R I- A N
Þórunn
Sveinbjarnardóttir
Perlan • Öskjuhlið • Sími: 562 0200 • Fax: 562 0207 • perlan@perlan.is