blaðið - 21.06.2006, Blaðsíða 12
12 I DEZGLAN
MIÐVIKUDAGUR 21.JÚNÍ 2006 blaöiö
Erfðatœkni í landbúnaði
Bændasamtök íslands, landbúnað-
arráðuney tið og Landbúnaðarhá-
skóli íslands efna til málþings um
erfðatækni í landbúnaði í Súlnasal
Hótels Sögu í dag frá klukkan 13-17.
Tilefnið er ályktun búnaðarþings
árið 2005 og umræða sem hefur
verið í gangi um þetta efni. í frétta-
tilkynningu segir að þar verði
„fjallað um erfðatækni faglega og
fordómalaust, bæði möguleika og
hvað varast ber, og m.a. fengnir
til þess tveir vísindamenn frá
Bretlandi og Bandaríkjunum, sem
eru meðal virtustu fagmanna og
ráðgjafa á þessu sviði.“
Dr. Björn Örvar mun ásamt sam-
starfsmanni sínum frá ORF Líftækni,
dr. Einari Mantyla, halda fyrirlestur
sem nefnist: Plöntuerfðatækni og ís-
lenskur landbúnaður - Möguleikar
og tækifæri. „Það er rétt að taka það
fram að þó að ráðstefnan fjalli um
erfðatækni í landbúnaði þá erum við
ekki beinlínis að fást við erfðatækni
í landbúnaði. Það sem við erum að
gera er að hanna kerfi í byggplönt-
unni þannig að byggið sé fært um
að framleiða sérvirkt prótein. Þessi
sérvirku prótein eru síðan hreinsuð
úr byggfræinu og notuð í ýmsum til-
gangi, þá fyrst og fremst í rannsóknir
og til lyfjagerðar. Við erum því ekki
í framleiðslu á erfðabreyttum mat-
vælum og fóðri eða neinu sliku. Við
erum að búa til þessar sérstöku, erfða-
bættu plöntur sem eru færar um að
framleiða mikilvæg prótein. Það er
það sem ORF snýst um,“ segir Björn
Órvar.
Staðreyndir, ekki tilfinningar
Erfðatækni í landbúnaði er þannig
ekki sérsvið ORF en fyrirtækið var
beðið um taka þátt vegna þess að
það er eina fyrirtækið á íslandi sem
stundar erfðatækni í plöntum. „Við
erum eina fyrirtækið sem kemur að
þessari tækni hér á landi og það þótti
ástæða til að hafa íslenskt innlegg.
Fyrirlestur okkar fjallar þá annars
vegar um það hvað sé hægt að gera
fyrir landbúnaðinn á Islandi og hins
vegar komum við inn á hvað við
hjá ORF erum að gera,“ segir Björn
Örvar.
I Blaðinu i gær birtist viðtal við
Jóhannes Gunnarsson þar sem
hann skammaði meðal annars ís-
lensk stjórnvöld fyrir að „heimila
útiræktun á erfðabreyttu lyfjabyggi
án þess að krefjast óháðra tilrauna
á áhrifum þess á dýr og menn.“ Þar
átti Jóhannes augljóslega við ORF
Líftækni og því ástæða til að spyrja
Björn út í málið. „Þetta er hans sjón-
arhorn í þessu máli og við höfum
heyrt þetta í 3-4 ár. Þetta endurómar
svolítið skoðanir grænfriðunga í Evr-
ópu. Það sem hann ætti náttúrlega
að vita betur er að við fórum eftir
reglum Evrópusambandsins í einu
og öllu. Við erum til dæmis með leyfi
fyrir tilraunaræktun í afmörkuðum
reit f Gunnarsholti. Þetta fer þannig
fram að við fyllum út umsókn þar
sem kemur fram hverskonar plöntur
þetta eru og til hvers við viljum gera
þessar rannsóknir og síðan hvert
áhættumatið er. Þessi umsókn fer
í gegnum Umhverfisstofnun og
þar tekur nefnd við sem skipuð er
ýmsum aðilum úr þjóðfélaginu. Áður
en nefndin gefur svar um hvort veita
skuli leyfi þá óskar hún eftir áliti hjá
ýmsum stofnunum. I okkar tilviki
hefur hún leitað álits meðal annars
hjá Náttúrufræðistofnun Islands
og eftir að hafa fengið álit frá henni
hefur nefndin heimilað leyfi í þau
tvö skipti sem við höfum sótt um.
Það er síðan Umhverfisstofnun sem
gefur leyfin út eftir að hafa séð allar
umsagnir fagaðila. Þetta er leyfisfer-
ill sem er staðlaður og gildir innan
Evrópusambandsins. Ferillinn er
langur og ægileg skriffinska sem er í
kringum þetta og það er mikil vinna
fyrir lítið fyrirtæki að standa í þessu.
Það má þó nefna að í Evrópu eru
svona leyfi veitt nær daglega og það
er ekkert nýtt sem er að gerast hér á
landi.
Aðspurður hvort leyfisferlið sé
einfaldara víða í Evrópu en á íslandi
segir Björn að svo sé ekki. „Það sem
var sem betur fer ákveðið að gera hér,
bæði innan Umhverfisstofnunar og
Náttúrufræðistofnunar, var að líta á
þetta hleypidómalaust og taka það
fræðilega fyrir. Afgreiða þetta á þeim
forsendum án þess að blanda tilfinn-
ingum inn í þetta og halda sig við
staðreyndir. Því miður hafa ákveðnir
aðilar alltaf barist gegn okkar starf-
semi einhverra hluta vegna."
Möguleikar í lyfjaframleiðslu
í erindinu munu Björn Örvar og
Einar koma inn á hvaða möguleikar
eru fyrir hendi í þessum geira á Is-
landi. „Það er hægt að tala um alþjóð-
leg tækifæri og hægt að vitna í ýmsar
skýrslur Sameinuðu þjóðanna, þar
sem litið er á plöntuerfðatækni sem
mikilvægan lið í framtíðinni til að
brauðfæða hinn fátækari heim og til
lyfjaframleiðslu. Það eru mörg vanda-
mál sem blasa við í þriðja heiminum,
vatnsskortur til ræktunar, lítið jarð-
næði og mikil álmengun í jarðvegi
sem gerir hann súran. Menn hafa
því reynt að búa til plöntur sem unnt
er að rækta í súrum jarðvegi. Hér á
landi eru ýmsir möguleikar og við
höfum fyrst og fremst verið að horfa
til þeirra miklu möguleika sem felast
í lyfjaframleiðslu. Við hófum þetta
ferli fyrir um 5 árum og þá var það
gífurleg áhætta fyrir okkur, bæði fjár-
hagslega og tæknilega, að nota byggið
í framleiðslu á þessum lyfjavirku pró-
teinum,“ segir Björn Örvar.
Flutt verða fimm erindi á mál-
þinginu en fyrirlesarar eru Ólafur S.
Andrésson prófessor við Háskóla fs-
lands, Björn Örvar og Einar Mántylá
frá ORF Líftækni, Snorri Baldurs-
son aðstoðarforstjóri Náttúrufræði-
stofnunar íslands og tveir erlendir
fræðimenn, Chris Pollock forstjóri
Rannsóknarstofnunar grasræktar og
umhverfismála og formaður ráðgjaf-
arnefndar bresku ríkisstjórnarinnar
um losun erfðabreyttra lífvera út í
umhverfið og Charles Arntzen, sam-
eindalíffræðingur frá Arizona State
University í Bandaríkjunum, en hann
á sæti í ýmsum ráðgjafarnefndum,
þar á meðal ráðgjafarráði Bandaríkja-
forseta í vísindum og tækni.
Fundarstjóri verður Kristín Ingólfs-
dóttir rektor Háskóla Islands en Ág-
ústa Guðmundsdóttir prófessor við
Hl stjórnar pallborðsumræðum.
I erindunum verður fjallað almennt
um erfðatækni og hagnýtingu hennar
í landbúnaði, framleiðslu álífvirkum
lyfjum úr plöntum, möguleika ís-
lensks landbúnaðar og umhverfis-
lega áhættu við slíka framleiðslu og
um reglur Evrópusambandsins um
þá varúð sem gæta ber við ræktun
erfðabreyttra plantna. I lok fundar-
ins gefst tækifæri til að varpa fram
fyrirspurnum til málshefjenda.
jon@bladid.net
Dr. Björn Örvar og dr. Einari Mantyla hjá ORF Lfftækni
VILTU SKJOL A
VERÖNDINA?
MARKISUR
www.markisur.com
Dalbrant 3,105 Reykjavík - Nánari upplýsingar í síma
567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar
Jón B. Sveinsson matreiðslukennari sýnir nemum uppröðun á fat
Samningur um
hótelkennslu
I dag munu skólameistari Mennta-
skólans í Kópavogi og fulltrúi frá
hótelskólum César Ritz undirrita
samstarfssamning um að Mennta-
skólinn muni taka að sér kennslu í
hótelgreinum undir nafni César Ritz.
César Ritz er einn af þekktustu hótel-
skólum í heimi og eru þeir með skóla
í Sviss, Bandaríkjunum og Ástralíu.
Blaðið náði tali af Baldri Sæmunds-
syni sem er áfangastjóri verknáms-
greina í Menntaskólanum í Kópavogi.
„Við höfum lengi leitað að mögu-
leikum fyrir nemendur okkar í hótel-
og veitinganáminu. Margir vilja
komast erlendis og Ritz varð fyrir
valinu af því að við könnuðumst við
fyrirtækið úr geiranum, bæði ég og
aðrir fagstjórar skólans. Við settum
okkur í samband við kynningarfull-
trúa þeirra fýrir um 6-7 árum og
þeir hafa komið hingað að meðaltali
einu sinni á ári til að kynna skólann
undanfarin 5 ár. Árið 2000 fórum
við í heimsókn til skólans í Bandaríkj-
unum og ég fór til Sviss árið eftir. I
þessum heimsóknum, þar sem við
vorum að kynna okkur námið betur,
fæddist hugmyndin um að kenna
fyrsta árið af hótelstjórnunarnámi
Ritz hér á landi,“ segir Baldur.
Námíð hefst næsta vor
Þetta fyrirkomulag sem skrifað
verður undir i dag er þannig búið
að vera lengi í bígerð. „Við sjáum
okkur fært núna að stíga skrefið til
fulls og við munum hefjast handa
við að kenna fyrsta árið næsta vor.
Við munum byrja með millistjórnun-
arnám hérna heima en síðan verða
nemendur að fara frá okkur og halda
áfram náminu hjá Ritz, í Sviss, Banda-
ríkjunum eða Ástralíu. Þeir eru sem
sagt með tvo skóla í Sviss og síðan
með samstarfssamning við Banda-
ríkin og Ástralíu, svipað og við erum
að fara að gera,“ segir Baldur og bætir
þvi við að sambærilegt nám hefur
ekki verið kennt hér á landi áður.
Það hafa þó verið á bilinu 10-15
nemendur frá íslandi sem stundað
hafa nám við Ritz á ári hverju. „Þess
ber einnig að geta að við ráðgerum
að taka nemendur alls staðar frá úr
Baldur Sæmundsson áfangastjóri
heiminum því að skólarnir eru með
ákveðnar fjöldatakmarkanir frá
hverju landi. Þannig flæðir alltaf
eitthvað yfir og Ritz er ekki í þeirri
aðstöðu að geta tekið við öllum. Þá
horfum við til þess að umframum-
sóknum verði að einhverju leyti beint
hingað og við munum vinna úr þeim.
I þeim skilningi er þetta álþjóðlegt
nám og það mun væntanlega fara
fram á ensku en Ritz gerir kröfur um
það. Við munum þó kenna samhliða
önnur tungumál á borð við frönsku
og þýsku og nemendur geta valið um
mál.“
Það má þá hugsa sér hvort grund-
völlur sé fyrir því að taka upp jafn
sérhæft nám og hótelstjórnun er.
„Það tel ég vera, já. I ljósi skýrslu-
gerðar um ferðamál hefur komið
í ljós að verulegur skortur er á fag-
mennsku í þessum geira. Samhliða
náminu þurfa nemendur að fara í
starfsþjálfun og við horfum til þess
að hleypa af stað frá olckur um 26-
30 nemendum á ári til að kynna sér
hótelmál eða rekstur veitingastaða
í 4-6 mánuði. Nemendur taka þessa
reynslu með sér og til að mynda í
Bandaríkjunum er ætlast til þess að
nemendur fari fljótlega inn á stór og
virt hótel.”
Vantar fólk í hótelgreinar
Eins og fram hefur komið er hér ein-
ungis um fyrsta árið að ræða í náminu
en það nær til víðtækra þátta. „Þetta
eru hótel- og rekstrargreinar í fyrstu,
tungumál og margskonar þjálfun:
Gestamóttaka, þjálfun í veitingasal,
þjálfun í eldhúsi og fleira. Við horfum
á það að við höfum verið með meist-
araskóla í matvælagreinum og erum
að kenna þar stjórnunar- og rekstrar-
greinar. Þetta verður því unnið með
einhverjum samruna. Við gætum þó
þurft að bæta við enskukennurum
fyrir haustið.”
Menntaskólinn í Kópavogi hefur
vaxið gríðarlega eftir að hann samein-
aðist Hótel- og veitingaskólanum og
nú stunda þar í kringum 1.300 nem-
endur nám í margvíslegum greinum.
„Aðsóknin sem tengist hótel- og mat-
vælagreinunum hefur verið rokkandi
en við erum að tala um í kringum
300 nemendur sem sækja matvæla-
nám með einum eða öðrum hætti,“
segir Baldur. Það kemur þó fram í
máli Baldurs að skólinn hafi ekki
farið varhluta af þeirri þróun sem
hefur orðið 1 ferðamannaþjónustu.
„Það er meðal annars ástæðan fyrir
því að við erum að ganga með þessa
hugmynd alla leið að það vantar fólk
í þessar hótelgreinar. Það má segja að
þetta sé svar skólans við aukningu í
þessum geira.“
Undirritunin fer fram í húsnæði
Menntaskólans í Kópavogi við Digra-
nesveg í dag klukkan 11.00.
jon@bladid.net
I
í
I
r
1
1