blaðið - 21.06.2006, Qupperneq 16
16 I MATUR
MIÐVIKUDAGUR 21.JÚNÍ 2006 blaöiö
U
8
GRILLAÐ MEÐ
HEREFORD
GUÐNIÁHEREFORD
Prjár hugmyndir að krœklingi
sem forrétti á undan steikinni
konar klemmur og svo má dýfa 1 bolli fínsaxaður rauðlaukur
Hægt er að kaupa þrjár tegundir af
kræklingi í verslunum Hagkaupa
og Nóatúns en hver pakkning er
ætluð sirka tveimur persónum. Þær
tegundir sem hægt er að fá eru kræk-
lingur í provencial tómatlegi, kræk-
lingur í hvítlauksmaríneringu og
svo kræklingur án maríneringar en
við erum með uppskrift að legi fyrir
hann.
Uppskrift að maríneruðum
kræklingi fyrir fjóra
2 pakkar kræklingur
2 dl rjómi
6 dl hvítvín
12 stk grófsaxaðir hvílauksgeirar
í búnt fínsöxuð steinselja
salt og pipar eftir smekk
BlaöiDMki
Blandið öllu nema steinseljunni
saman í pott og setjið pottinn á
grillið. Látið suðuna koma upp.
Setjið þá kræklinginn í og lokið yfir
í ca. 4-5 mín. eða þar til kræklingur-
inn er búinn að opna sig. Athugið
að ekki er ráðlegt að borða úr þeim
skeljum sem opnast ekki.
Til að borða kræklinga án þess
að verða of skítugur á fingrunum
er upplagt nota skeljarnar sem eins-
fingrunum annað slagið í heitt vatn
með sítrónu líkt og þegar humar
er snæddur. Við þetta myndast oft
skemmtileg stemning.
Humarfylltar grísaiundir með
papriku- og apríkósu-chutney
8oo gr hreinsaðar grísalundir
8-12 humarhalar, pillaðir og
hreinsaðir
Setjið humarhalana í frysti í ca. 15
til 20 mín. Stingið enda á trésleif í
gegnum lundina og troðið humr-
inum í. Kryddið með salti og pipar.
Grillið svo í ca. 5-6 mín. á hvorri
hlið. Færið síðan upp á efri grindina
í grillinu og látið malla í ca. 5 mín.
Papriku- og apríkósu-chutney
!4 bolli bökuð og söxuð paprika (fæst
tilbúin í Hagkaup)
2/3 eplaedik
‘/2 bolli þurrar, saxaðar apríkósur
1/3 bolli gular rúsínur
!4 bolli sykur
!4 bolli brúnn sykur
1 msk. ferskt, saxað engifer
1 tsk. malaður pipar
'/2 tsk. salt
Vi tsk þurrt sinnep
3 fínsöxuð hvítlauksrif
Fínsaxið öll hráefnin. Setjið upp
meðalstóran pott, látið suðuna
koma upp og mallið á hægum hita í
ca. 20 mínútur eða þar til byrjar að
þykkna.
Með grisalundunum er einnig
gott að bera fram grillaðan rauðlauk
og grillaðar kartöfluskífur.
Klæjar þig í tærnar?
Gætu það verið fótsveppir?
...einu sinni á dag í viku drepur fótsveppinn
Lífrænt jógúrt slær
rækilega í gegn
Framleiðendur anna ekki eftirspurn.
Undanfarin þrjú ár hafa
heilsusinnar glaðst yfir nýrri
íslenskri tegund af jógúrt sem
finna má í hillum flestra mat-
vöruverslana. Þessi framleiðsla
kemur frá Biobúi, en í júlí árið
2002 hófu hjónin Dóra Rut og
Kristján Oddsson að stunda
lífræna mjólkurframleiðslu
að Neðra Hálsi í Kjós. Fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins
er Helgi Rafn Gunnarsson
viðskiptafræðingur.
Um lífrænt jógúrt
Lífrænt jógúrt er sagt vera eins og
jógúrt á að vera. Mátulega þykkt
með fersku og lifandi bragði. Það
er búið til úr mjólk úr kúm sem
fóðraðar eru eingöngu á grasi.
Ferska og milda bragðið kemur
frá vinalegum jógúrtgerlum
og lífrænt ræktuðum ávöxtum.
Mikið magn ensíma og önnur holl-
usta jógúrtsins er svo sagt vera
afrakstur þrautseigju og þolin-
mæði. Lífrænt jógúrt er tilvalinn
kostur fyrir fólk sem sækist eftir
heilbrigðari lífsstíl og fyrir fólk
sem vill vita hvað það er að borða.
Jógúrtið er án aukefna og fyrir sýr-
ingu á mjólkinni er engu bætt í
og ekkert tekið úr. Enginn hvítur
sykur er notaður og allt hráefni er
lífrænt ræktað. í ávaxtajógúrtið er
notaður lífrænn hrásykur.
Meira af Omega-3
Nokkrar erlendar rannsóknir
hafa sýnt að mjólk sem framleidd
er með lífrænum aðferðum hefur
meira af lífsnauðsynlegum fitu-
sýrum, eins og Omega-3 og svo
af fitusýrunni CLA.( 4-7 sinnum
meira. Fer eftir árstíma og
fóðrun.)
Islensk samanburðarrannsókn
hefur staðfest að um 28% meira er
af omega-3 í lífrænni mjólk. CLA
er einnig fjölómettuð eins og om-
ega-3. Þessar fitusýrur eru taldar
mikilvægar fyrir efnaskipti líkam-
ans og geta verndað okkur fyrir
ýmsum læknisfræðilegum vanda-
málum, þar á meðal þunglyndi.
Þá hefur Rannsóknarstofnun
landbúnaðarins í Danmörku
einnig rannsakað innihald andox-
unarefna og vítamína í lífrænni og
hefðbundinni mjólk og sýna þær
rannsóknir að lífræn mjólk í niu
af hverjum tíu sýnum inniheldur
mun meira af náttúrlegum E-vít-
amínum en hefðbundin mjólk.
Það hefur m.a. í för með sér að
geymsluþol hennar er betra.
Auk þessa sýna rannsóknirnar
að innihald carótenóíða er tvisvar
til þrisvar sinnum hærra í líf-
rænni mjólk en hefðbundinni, en
það hefur áhrif á bragðið því efnið
á sinn þátt i að mynda ýmsa bragð-
þætti mjólkurinnar. Jógúrtið er
auk þess ríkt af próteini, kalki, og
steinefnum. Til viðbótar við E vít-
amínið fylgja fitunni einnig fitu-
leysanlegu vítamínin A og D. Að
jafnaði er minni mjólkursykur i
lífrænu jógúrt sem er jákvætt fyrir
fólk með mjólkuróþol.
Anna ekki eftirspurn
Neytendur velja lifrænt meðal
annars vegna þess að þeir telja að
náttúrlegri framleiðsla gefi af sér
hollarimatvörur. Rannsóknirstað-
festa þetta og það gera íslenskir
kaupmenn líka því að sögn Helga
Rafns er staðan orðin þannig að
Biobú þarf að skammta verslunum
lífrænt jógúrt. Fyrirtækið hefur i
hyggju að byrja að framleiða fleiri
vörutegundir en eins og staðan er í
dag strandar framleiðslan á skorti
á lífrænnni mjólk. Þetta stendur
þó til bóta því í haust er gert ráð
fyrir að bændunum hjá Biobúi ber-
ist liðsauki frá öðrum bónda.
fumarsteikin
fullkomnuð!
Orientdl BBQ-marinerinv meiUara flr?entínu komin í venlanir
Oriental BBQ-marinering meistara Argent/nu steikhúss
hefur notið gríðarlegrar hylli gesta staðarins í 16 ár.
Nú er þessi óviðjafnanlegi kryddlögur fáanlegur í verslunum
svo að eldklárir grillmeistarar heimilanna geta nýtt sér hann
til aukinna vinsælda í sumar.
Það er engin ástæða til að láta sér liða illa
á besta tima ársins.
Komdu og fáðu ráðgjöfhjá okkur.
Vlyf&heiísa
Við hlustum!
Lamisil er borið á einu sinni á dag í eina viku. Hreinsíð og þurrkið sýkt svæði vel áður en Lamisil er borið á. Bera skal Lamisil á í þunnu lagi á sýkta
húð þannig að það þekji allt sýkta svæðið. Lamisil er milt og veldur mjög sjaldan húðertingu. Lamisil inniheldur terbinafin sem er sveppadrepandi
(fungisid) efni og vinnur á sveppasýkingum í húð af völdum húðsveppa, gersveppa og litbrigðamyglu (“lifrarbrúnir blettir”). Lamisil á ekki að
nota gegn sveppasýkingum í hársverði, skeggi eða nöglum nema samkvæmt læknisráði. Það má ekki nota ef þekkt er ofnæmi fyrir terbinafini eða
öðrum innihaldsefnum í Lamisil. Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarseðil sem fylgir hverri pakkningu.
Fullkomnaðu grillsteikina að hætti Argentínu steikhúss!