blaðið - 21.06.2006, Blaðsíða 17
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 21 JÚNÍ 2006
TÍSKA I 25
Glœsilegir
rússnesk-
ir kjólar
Rússneski fatahönnuðurinn Va-
lentín Yudaskin stóð fyrir sérstakri
tískusýningu fyrir fréttamenn í
Moskvu fyrir nokkrum dögum
þar sem þessir fallegu kjólar voru
meðal annars sýndir. Valentín er
eini rússneski hönnuðurinn sem á
sæti í Couture Syndicate of Paris en
hönnun hans er sýnd á búningasafn-
inu í Louvre-safninu í París.
*
Sérstakt raka-
krem íyrir
hálsinn
Fyrstu öldrunareinkenni sjá konur
oft á hálsinum sem fer snemma að
sýna slitmerki.
Benefiance línan frá Shiseido er
sérstaklega hönnuð fyrir húð sem
er farin að sýna öldrunareinkenni
og leggur áherslu á að auka rakastig
húðarinnar og næringarefni auk
þess sem línunni er ætlað að auka
ljóma húðarinnar.
Við þróun á þessari línu var sér-
lega horft til þess hvaða áhrif sól-
argeislar hafa á hrukkumyndun
húðarinnar. Kremin eru unnin
úr grænþörungum ríkum af pró-
teinum, steinefnum og beta-caró-
tíni, sem eiga náttúrleg heimkynni
sín i ferskvatni. Shiseido-fyrirtækið
þróaði sérstakan kraft úr þessum
þörungum með sérstakri tækni sem
leggur áherslu á TSP-i prótein í húð-
þekjufrumum. Þessi prótein hjálpa
húðinni við að draga úr öldrunar-
merkjum svo sem eins og hrukkum
auk þess sem þau byggja hana upp
til framtíðar.
Öðruvísi húð
Concentrated Neck Contour Treat-
ment kremið er nýjung frá Shiseido-
fyrirtækinu og nýjasti meðlimur
Benefiance línunnar, sem ætlað
er að mæta vöntun á markaðnum.
Margar konur nota rakakrem fyrir
andlit og bera það einnig á hálsinn
á sér. Húðin á hálsinum er þó öðru-
vísi uppbyggð en húðin í andlitinu
og þarf því annarskonar meðferð.
Framleiðandi segir áhrifin augljós í
þéttari og mýkri húð á hálsinum.
Eins og lífstykki
Hrukkur og pokamyndun á hálsi
myndast aðallega vegna endurtek-
innar teygju á húðinni. Nýja kremið
myndar mjúka filmu yfir húðinni
sem nærir hana og
verndar
og styður
við háls-
inn líkt og
lífstykkivið
líkamann.
Þetta nýja krem
frá Shiseido er sér-
staklega ætlað til
aðhindraöldrunar-
einkenni á hálsi.
Fatalína innblás-
in af Tweety
Nýja línan hennar Nicky Hilton er
innblásin af teiknimyndafígúrunni
Tweety Bird. Nicky hóf sölu á eigin
fatalínu árið 2004 og þá strax var
ljóst að stíll hennar var áberandi sér-
stakur. Nicky segir að hún horfi til
þess hverskonar fötum hún sjálf og
vinir hennar vilji ganga í og miðar
hönnunina algerlega út frá því.
Verðið er hins vegar ekki miðað við
efnahag stúlkunnar og vinkvenna
hennar: „Fötin eru miklu ódýrari
en það sem ég sjálf hef ráð á.“
Sjálf hefur Nicky sagt að hún
sé engin Prada og það er líklega
óravegur á milli þessara tveggja
hönnuða. Systir Nicky, Paris Hil-
ton, hannar hins vegar föt sem eru
öllu líkari hönnun Nicky . I dag eru
systurnar því í samkeppni hvor við
aðra.
Fatahönnuðurinn og hótelkeðjuerfing-
in Nicky Hilton stillir sér hér upp fyrir
Ijósmyndara á fréttamannafundi þar sem
nýja fatalínan hennar var kynnt f New
York í gær.