blaðið - 21.06.2006, Side 18
26 I HEIMILX
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2006 blaðiö
Grillið er mikið nýtt á sumrin en því miður þarf líka að halda því við með þrifum.
Hreint grill
er gott grill
Grilltímabilið er í hámarki um
þessar mundir og því fylgir lokk-
andi ilmur um hverfið á kvöld-
matartíma. Islendingar nýta yf-
irleitt sumarið til hins ýtrasta og
grillið er því óspart notað, hvort
heldur sem er gasgrill eða gamla
góða kolagrillið. Grillin eiga það
hins vegar til að verða ansi skítug
eftir notkun, bæði vegna fitu sem
lekur á milli rimlanna auk þess
sem grænmeti og annað dettur af
grindinni.
Komið í veg fyrir óhreinindi
Það eru ýmsar leiðir til þess að
halda grillinu hreinu sem lengst.
Til að mynda má pensla grind-
ina með olíu áður en kveikt er á
grillinu en það kemur í veg fyrir
að matur festist á grindinni. Þó
verður að fara varlega þar sem
það má aldrei setja olíu á grillið
eftir að kveikt hefur verið á því,
einungis þegar það er kalt. Sumir
kjósa að renna lauk eftir grind-
inni þegar grillið er orðið heitt
en það þrífur grindina og kemur
í veg fyrir að matur festist við
þær. Hins vegar er nauðsynlegt
að þrífa grindurnar eftir hverja
notkun. Það fer betur með þær
og auðveldar þrifin. Svo má vitan-
lega ekki gleyma yfirbreiðslunni
en hún er nauðsynleg ef ætlunin
er að fara vel með grillið.
Þrif á gasgrilli
Breiðið yfir grindurnar með ál-
pappír til að þær hitni betur, lokið
grillinu og stillið á hæsta hita í
tíu mínútur. Varist að hita grillið
ekki um of og hafið einungis
kveikt á því í tíu mínútur. Þegar
grindurnar eru orðnar kaldar
notið harðan bursta til að fjar-
lægja ruslið af grindunum. Þar á
eftir er best að þrífa grindurnar
vandlega með sápu og vatni. Ryð
má fjarlægja með olíu.
Þrif á kolagrilli
Eftir að búið er að nota grillið
og það er örugglega orðið kalt
þarf að tæma það og henda kol-
unum. Búið til kúlu úr álpappír og
nuddið henni yfir grindina til að
fjarlægja matarafganga og annað.
Grindin er síðan þvegin upp úr
heitu sápuvatni.
Áhöld fyrir
Eldhús í dag gegna að miklu leyti öðru hlutverki en fyrir nokkrum tugum ára. Vitanlega eru þau
ennþá nýtt til eldamennsku en í dag eru þau oröinn meiri samverustaður en áður.
Oft á tíðum er eldhúsið nokkurs konar stofa þar sem fólk hittist, gæðir sér á góðum mat eða situr
jafnvel bara við eldhúsborðið og rabbar tímunum saman. Það er því meiri íburður í eldhúsi nútím-
ans auk þess sem hefðbundin eldhúsáhöld fylgja tískunni. Það sem áður var falið inn í skáp má
stilla upp sem fallegu punti í dag. Hver kannast ekki við að hafa átt gamlan og brotinn pískara,
ljótan ketil sem var löngu hættur aö pípa og smákökubox sem engin prýði var að? Blaðiö fór á
flakk og leitaði upp fallega hluti sem væri synd að henda inn í skáp enda listrænir og fallegir.
svanhvit@bladid.net
Smekklegur bakki sem ertil í þremur
litum. Kokka, 7.500 krónur.
\
Falleg stálfata sem er tilvalin til að kæla
drykki í sumarhitanum. Kokka, 4.500 krónur.
Hver kannast ekki við það að eyða endalausum pokum undir
oststykkið. Væri ekki gáfulegra að kaupa svona fallegt osta-
box þannig að osturinn sé alltaf á sínum stað, vel varðveittur.
Lífog list, 3.790 krónur
Þessi sniðuga Eva Solo
skál geymir ísklaka í
nokkra klukkutíma og er
því tilvalin í veislum. Auk
þess má fylla hana af vatni
og frysta. Með einum
snúningi brotnar ísinn í
klaka. Einfalt, þægilegt og
glæsilegt. Líf og list, 6.230
krónur.
Pensiil er mikið notaður í elda-
mennsku og því ein af skyldueignum
kokksins. Líf og list, 2.390 krónur.
Huggulegur íverustaður
Flestir nýta sumarið til útiveru og
hreyfingar en eins og veðrið hefur
verið undanfarið eru ansi margir
sem kjósa að vera innandyra. Það
er þvi tilvalið að nota þessa ótal
rigningardaga í það að gera heim-
ilið að slakandi og huggulegum
íverustað. Það er þá hægt að
bjóða gestum heim í sjarmerandi
andrúmsloft þar sem allir gleyma
rigningunni úti við.
Gleðin býr heima
Það er ekki ríkidæmi eða gnægð hús-
gagna sem segja til um hvort heimili
sé huggulegt. Frekar er það andinn
sem ríkir á heimilinu og hvort það sé
fyllt gleði. Það er því auðvelt að hafa
huggulegt í kringum sig, án þess að
peningarnir þurfi að flæða. Fyrst og
fremst er að hafa gaman af lífinu og
njóta heimilisins, einungis þá geta
aðrir notið þess að dvelja þar.
Upplyfting andans
Til að gera heimilið sem þægilegast
fyrir sálina og líkamann er hægt
að leita í aðra menningu, eins og
Feng Shui eða þess háttar kenningar.
Einnig geta innanhússarkitektar
gefið ráð um hvernig beri að gera
heimilið sem huggulegast. Fyrir
þá sem kjósa að eyða litlum sem
engum peningum í breytingarnar
er tilvalið að kaupa haug af innrétt-
ingatímaritum og fá innblástur úr
þeim. Það er auðveldlega hægt að
búa til umhverfi sem býður ham-
ingju, vináttu og ást velkomna með
því einu að færa til húsgögn og bæta
við nokkrum ódýrum hlutum.
Huggulegt athvarf
Breyttu svefnherberginu í þægilegt
hvíldarherbergi, athvarf sem hægt
er að flýja í og leita endurnæringar
þegar lífið verður of erfitt. Málaðu
herbergið í fallegum lit og hafðu
gluggatjöldin hlýleg. Teppi og
púðar gera herbergið hlýlegra og
heimilislegra.
Smáatriði skipta miklu máli
Það þarf ekki að mála alla íbúðina
eða skipta út húsgögnum til að fylla
heimilið af lífi og hlátri. Hugaðu að
smáatriðinum því þau geta skipta
ótrúlega miklu máli. Til dæmis
má fylla íbúð af ást og lífi með því
einu að gera myndir af ástvinum
sýnilegar. Það fyllir heimili hlýju og
gerir það vinalegt. Kerti eru alltaf
áhrifamikil og eins er huggulegt að
teppi á sófanum fyrir gesti og gang-
andi sem þurfa að hlýja sér.
Blómlegt heimili
Það er fátt heimilislegra en falleg
blóm í stofu og herbergjum. Blóm
eru ekki bara heimilisleg heldur
færa þau ákveðna hlýju og líf utan
frá. Ræktið falleg blóm í fallegum
litum innandyra og heimilið verður
allt annað.
Það er ekki ríkidæmi eða gnægð húsgagna sem segja til um hvort heimili sé huggulegt.
Frekar er það andinn sem ríkir á heimilinu og hvort það sé fyllt gleði.